Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2006, Side 17
DV Sport
ÞRIÐJUDAGUR28. FEBRÚAR2006 77
Hermann æfði
með prinsinum
Fyrir fáeinum mánuðum
æfði Harry Bretaprins með
liði Charlton, félagi Hermanns
Hreiðarssonar. DV sport
leikur forvitni á að vita hvern-
ig æfingin gekk og þá sérstak-
lega hvort Hermann hefði
tæklað prinsinn. „Nei... það
var samt á stefnuskránni. En
hann var með lífverði með sér
og leyniskyttur í trjánum
þannig að ég ákvað að halda
aftur af mér," sagði hann og
hló. „Nei, nei - hann hitaði
bara upp með okkur. Annars
var ótrúlegt að sjá þann fjölda
ffétta-
manna
sem fylgdi
honum
eftir. Það
er greini-
lega mikil
og stór
starfsemi í
kringum
konung-
legu fjöl-
skylduna."
Warner klár
í slaginn
Leo Beenhakker, landsliðs-
þjálfari Trínidad og Tóbagó,
valdi Tony Warner, markvörð
hjá Fulham og félaga Heiðars
Helgusonar hjá liðinu, í lands-
lið sitt sem mætir íslending-
um í kvöld. Warner, sem er 31
árs, hefur aldrei áður spilað
með landsliðinu enda kom
það fyrst í ljós eftir að það
komst á HM í sumar að hann
ætti ættir að rekja til landsins.
Wamer var ásamt öðrum
landsliðs-
mönnum
Trínidad
ogTó-
bagó á
blaða-
manna-
fundi
liðsins í
gær og
bar sig
vel.
fml
.kúlulegur
..keflalegur
..veltilegur
..rúllulegur
..flangslegur
..búkkalegur
ívar Ingimarsson er kominn í íslenska landsliðið á nýjan leik
Ekki hræddur við að lenda á bekknum
fvar Ingimarsson ákvað fyrir
tveimur árum að gefa ekki kost á sér í
íslenska landsliðið undir stjóm þeirra
Ásgeirs Sigurvinssonar og Loga Ólafs-
sonar. Þeir hættu í haust og Eyjólfur
Sverrissón tók við og nú hefur ívar
verið valinn á ný í liðið. fvar var á sín-
um tíma ósáttur við að þáverandi
þjálfarar ómökuðu sig aldrei á því að
koma og sjá ívar spila með sínu fé-
lagsliði en hann fékk afar fá tækifæri í
byrjunarliði þeirra.
Hann mun þó ekki hætta á nýjan
leik ef Eyjólfur semr hann á bekkinn í
kvöld - sem er reyndar afar ólíklegt.
„Ef að þjálfari veit hvað ég getur - hef-
ur fylgst með mér en telur mig samt
ekki nógu góðan - verð ég einfaldlega
að bæta mig og ekkert meira með
það,“ sagði ívar í samtali við DV sport
í gær. „Eg er eins og hver annar leik-
maður í þessu liði enda hef ég aldrei
beðið um neitt annað. Eyjólfur kom
til Reading og sá mig spila sem ég var
mjög ánægður með. Það er það sem
skiptir máli. Þar ræddum við það sem
er framundan og ég sagði honum að
ég ætlaði að leggja mig 100% fram og
berjast fyrir mínu sæti í liðinu."
Og vissulega var ívar ánægður
með að hitta landsliðsfélagana á nýj-
an leik enda hefur hann margoft áður
sagt að hann hlakki mikið til þess að
leika með landsliðinu á nýjan leik.
„Framundan eru erfiðir leikir. Við
lentum í erfiðum riðli í undankeppn-
inni og nú fáum við tækifæri til að
stilla saman strengina í nokkrum æf-
ingaleikjum og þjappa okkur saman.
Nýr þjálfari þarf líka að koma sínum
hugmyndum til skila og vonandi
gengur það vel." einku&dvjs
%5»
Fyrsti leikurinn frá 2004 ívar
Ingimarsson spilar í dag sinn
fyrsta landsleik síðan I mai2004.
m
r„Ég hef
reyndar
alltaf
sagtað
égvllji
spila
j frammi en
það hlustar
enginn á
i
8*lS
Sló á léttD strencji
„Jú, það er langt síðan síðasti leikur var og það er alltaf gam-
an að hitta félagana," sagði Hermann Hreiðarsson í gær en
hann ásamt 16 öðrum landsliðsmönnum hitti stjórn lands-
liðsins á sunnudag. Hann segir í samtali við DV sport að ís-
lenska landsliðið búi yfir einum sterkasta leikmannahópi frá
upphafi en hann eigi engu að síður erfitt með að meta
möguleika liðsins gegn Trínidad og Tóbagó í kvöld.
I-Iermann segist ekki hafa
skynjað miklar breytingar undir
stjórn nýs landsliðsþjálfara, Eyjólfs
Sverrissonar, en bætir við að nýj-
um mönnum fylgi alltaf nýjar
áherslur. „En þetta lofar góðu enda
engin ástæða til að búast við
öðru," sagði Hermann í léttum
dúr.
Eyjólfur var sem kunnugt er
leikmaður landsliðsins þar til hann
hætti með því árið 2001 og hefur
því leikið ófáum sinnum við hlið
Hermanns í vörn íslenska lands-
liðsins.
Verið í kringum okkur
undanfarin ár
„Það er eðlilegt að þjálfarar séu
fyrrverandi leikmenn og þetta er
ekkert öðruvísi. Hann hefur vita-
skuld að sama skapi þjálfað U-21
landsliðið og hefur því verið í
kringum okkur undanfarin ár.“
Hermann segist ekki vita mikið
um andstæðing íslands í kvöld en
segir að leikmenn muni mæta af
fullum krafti í þennan leik. „Menn
vilja alltaf sanna sig fyrir þjálfaran-
um, sérstaklega þegar hann er að
stýra sínum fyrsta leik. Hópurinn
hefur sjaldan verið sterkari og get-
ur enginn leikmaður verið öruggur
með sæti í liðinu. Menn þurfa að
standa sig í hverjum einasta leik til
þess."
Nokkrir leikir til að slípa
hópinn
Hermann bætir því við að það
sé aldrei hægt að spila of marga
æfingalandsleiki og því verði að
nýta hverja ferð vel. „Við höfum nú
nokkra leiki til að slípa hópinn
r
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
| skrifar frá
Englandi
saman fyrir næstu undankeppni
og við þurfum að sýna það og
sanna í kvöld að við erum tilbúnir í
þetta verkefrii."
Aðspurður segir Hermann að
hann, rétt eins og aðrir í íslenska
landsliðinu, viti ekki mikið um lið
Trínidad og Tóbagó. „Ég veit þó að
þeir eru komnir á HM og það segir
sitt. Þó svo að maður þekki ekki
marga í þeirra liði eru þetta pott-
þétt góðir leikmenn enda greini-
lega að gera eitthvað rétt."
Hlustar enginn á mig
Lið Hermanns, Charlton, siglir
nú lygnan sjó í úivalsdeildinni og
segir hann að nú sé stefnan tekin
upp á við. „Undanfarin ár höfum
við gefið eftir á lokaspretti deildar-
innar en í þetta sinn náum við von-
andi að klífa töfluna," segir Her-
mann sem hefur verið fastamaður
í byrjunarliði liðsins og langoftast
spilað í stöðu miðvarðar. „Ég hef
reyndar alltaf sagt að ég vilji spila
frammi en það hlustar enginn á
mig," segir hann og hlær. „En í
fullri alvöru þá líkar mér best við
stöðu miðvarðar, sú staða hentar
mér best."
Félagi Hermanns í vörninni í ís-
lenska liðinu í kvöld verður vænt-
anlega ívar Ingimarsson en báðir
eru þeir fyrrverandi leikmenn ÍBV.
Þeir léku þó ekki á sama tíma með
liðinu en Ivar var fenginn til Eyja
þegar Hermann var seldur til Crys-
tal Palace árið 1997.
vinnur gegn fílapenslum og bolum.
Bindur bakterfur og húðflögur og dregur
Þannig getur þú I
þínni mjúkri og h
komið í veg fyrir I
Fæsi