Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2006, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2006, Qupperneq 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 Menning jyv íslendingar ekki hættir að lesa £'1 Það var vist troðfullt á bókamarkaðnum í ■ M Perlunni um helgina. Að sögn hefur sala á K markaðnum verið á niðurleið síðan árið 2002, en nú hafa bókaormar tekið við sér og f - salan hefur aldrei verið meiri. Félag islenskra p bókaútgefenda fékk sem kunnugt er mark- j aðsmanninn Ásmund Helgason til þess að hafa umsjón með markaðnum og greip hann m.a. til þess ráðs að fá bókaútgefendur ti! þess að hafa nýrri bækur á boðstólum, en henda út einhverju af þeim bókum sem höfðu legið þar óseldar áratugum saman. Eitt er víst að Islendingar eru ekki hættir að hafa V áhuga á því að eignast bækur - og langt í frá hættir að lesa. Perlumarkaðurinn er opinn frá tiu til sex alla daga og honum lýkur á sunnudaginn. Sesarverðlaunin veitt Á laugardags- kvöldið var „Sesar- inn", hin árlegu kvimyndaverðlaun Frakka, veittur við há- tíðlega athöfn í París. Sú mynd sem sópaði að sér verðlaununum er The Beat My Heart Skipped (De Battre Mon Coeur s'est Arrete) en leikstjóri hennar er Jacques Audiard. Myndin fékk tíu tilnefningar en hlaut alls átta verðlaun þegar upp var staðið; besta myndin, besti leikstjóri, besti leikari í aukahlutverki og besti kvenkyns nýliði, auk þess sem aðstandendur hennar fengu styttu fyrir kvikmyndatöku, að- lögun handrits, klippingu og tón- list. Það má segja að allir aðrir en Audiard hafi fallið í skuggann á hátíðinni, en sagt er á kvik- myndavefnum Cineuropa að þessi 53 ára gamli leikstjóri sé elskaður og dáður, jafnt af al- menningi sem og kollegum hans meðal kvikmyndaleikstjóra. Audiard fékk þrenn Sesarverð- laun árið 1995 fyrir See How They Fall og sex tilnefningar árið 1997 fyrir A Self-Made Hero. Hann fékk níu tilnefningar árið 2002 fyrir Read My Lips, en hreppti þrenn verðlaun. Lflca hef- ur hann áður unnið til verðlauna á Cannes-hátíðinni. The Beat My Heart Skipped fékk BAFTA-verðlaunin sem besta erlenda myndin á dögun- um og Silfurbjörninn á Berlínar- hátíðinni í íyrra. Million Dollar Baby besta er- lenda myndin Engum kom á óvart að Nathalie Baye var vaiin besta leikkona í aðalhlutverki, fyrir leik sinn í Le petit Lieutenant, en það er skemmtilegt að þetta er önnur Sesarstyttan sem hún hreppir, en það eru 23 ár síðan hún fékk verðlaun fyrir hlutverk sitt í La balance. Annar reyndur leikari, hinn áttræði Michel Bouquet, fékk verðlaun fyrir leik sinn í The Last Mitterand. Athygli vakti belgíska leikkon- an Cécile de France, sem fékk Sesarinn fyrir aukahlutverk í myndinni The Russian Dolls. Besta frumraunin þótti vera heimildamyndin Darwin’s Nightmare sem Hubert Sauper gerði. Eina myndin af „erlendum myndum" sem var verðlaunuð á hátíðinni var Million Dollar Baby, sem einmitt var sig- ursæl á óskars- hátíðinni vestan ^ . hafs í fyrra, en ■?" Æ , hún er sem kunnugt er leikstjórn- arverkefni fslandsvin- arins Clints I Eastwood. 1 - ■ ' Halldór Kvaran er nýr framkvæmdastjóri Jazzhátíðar Reykjavíkur. Hann er upp- fullur af eldmóöi og hefur ýmsar hugmyndir um það hvernig auka megi hróður djasstónlistarinnar á íslandi, m.a. með því að fá hingað fleiri fræga djassista. Það er aðeins rúm vika síðan jazzdeild FÍH réð Halldór í fram- kvæmdastjórastöðuna, þegar for- veri hans, Friðrik Theódórsson, lét af störfum fyrir aldurs sakir. Nú er hann önnum kafinn við að koma sér inn í hlutina. „Ég er að fara yfir þau gögn sem ég hef fengið í hendur og íhuga málin," segir Halldór í samtali við menningar- síðu, en hann ætti að hafa dágóð- an tíma til þess, þar sem Jazzhátíð Reykjavíkur hefst ekki fyrr en í haust. Stærri nöfn En er hann staðráðinn í því að gera miklar breytingar á fram- kvæmd hátíðarinnar? „Ég vil stækka hátíðina og tengja nafn hennar við fleiri við- burði. Þó að Jazzhátíð Reykjavíkur sé formlega haldin í fimm daga á ári, þá vil ég að hún sé allt árið í umræðunni," segir Halldór, en vill þó hrósa fráfarandi framkvæmda- stjóra fyrir vel unnin störf fyrri ára. „Mér finnst líka mikilvægt að komast að því hvað djassáhuga- menn vilja," segir Halldór. „Því hef ég verið í sambandi við góða menn sem hafa sent til mín lista yfir áhugaverðustu djasslista- menn samtímans. Ég vil fá hingað stærri nöfn - frægari djassista, vegna þess að ég hlera að það er það sem fólkið vill." Flytur inn Iggy Pop Halldór ætti að hafa dágóða reynslu í því að eiga við fræga tón- listarmenn, vegna þess að síðustu árin hefur hann ásamt Ragnheiði Hanson rekið fyrirtækið RR ehf. sem sérhæfir sig í innflutningi hljómlistarmanna og hefur staðið fyrir nokkrum hljómleikum lista- manna á borð við Metallicu, Iron Maiden og Megadeth. Á árinu mun RR meðal annars flytja inn velskorna brjálæðinginn Iggy Pop. Þegar nýi framkvæmdastjórinn er spurður út í eigin tónlist- arsmekk segist hann ekki geta gert I Halldór Kvaran Ætlar að gera I þaðsemhann þarf til þess að I Jazzhátíð Reykjavíkur vaxi og I dafni. Hann horfir bjartsýnn fram I á veginn. upp á milli tónlistarstefna. „Ég get varla skilgreint mig sem hlust- anda," segir hann. „Ég heyri gott lag og hef gaman af því að hlusta á það, sama hvort það heitir pönk eða sinfónía, enda er það lagið sem skiptir máli ekki stefnan." Halldór segir að djasstónlistin skiptist í margar undirgreinar, sumt finnist honum skemmtilegt en annað ekki. „Annars er ég náttúrlega ekki að taka að mér framkvæmda- stjórastarfið til þess að fullnægja eigin metnaði. Bissnesshugsjón- irnar þurfa auðvitað að vera fram- ar persónulegum löngunum mín- Jazz.is Halldór er uppfullur af eldmóði og segist vilja koma á djassvakn- ingu á íslandi. Til þess að það megi verða, má nefna að hann hefur ásamt fleirum fest djass- áhugamönnum lénið jazz.is en áformað er að í náinni framtíð verði það miðstöð djassumræð- unnar. Þar sé hægt að fletta upp öllu því sem er á döfrnni og öllu um djasshljómsveitir, hvort sem þær hafi aðsetur úti á landi eða í Reykjavík. Allar tillögur og uppá- stungur eru vel þegnar og þeim sem vilja hafa samband er bent á netfangið haildor@jazz.is. En þó að Halldór hafi áhuga á nýja starfinu tekur það ekki allan hans tíma. Hann er nýkvæntur og eftir nokkra daga leggur hann upp í ferð til Egyptalands þar sem hann ætlar að kafa í Rauða hafinu. Kannski rekst hann á einhverja fræga djassista við sömu iðju. Jónas hefur setið við flygilinn í Qörutíu ár Leikur Mozart og fleira um helgina Hinn góðkunni píanóleikari Jónas Ingimundarson mun halda tvenna píanótónleika á Suðurlandi um helgina. Fyrri tónleikamir verða haldnir í Safnaðarheimili Odda- sóknar, Dynsölum 8 á Hellu á láug- ardaginn og þeir seinni daginn eftir í Versölum, ráðhúsi ölfuss í Þorláks- höfn. Báðir tónleikar hefjast kl. 16. Jónas Ingimundarson var fyrsti heiðursverðlaunaþegi Menningar- verðlauna DV og vitaskuld er óþarfi að kynna hann fyrir lesendum með mörgum orðum. Hann hefur verið gríðariega virkur í íslensku tónlistar- lífi síðustu áratugi, en um þessar mundir heldur hann einmitt upp á fjörutíu ára starfsafmæli sitt. Því mun hann fagna með því að halda í tónleikaferð um landið á næstu vik- um. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Mozart, Beethoven, Schumann og Brahms. Þess er minnst um allan heim að á þessu ári eru 250 ár frá fæðingu Mozarts. Fyrsta verkið á tónleikunum er sónata eftir hann, sónatan með Tyrkneska rondóinu en hana kannast eflaust margir við. Því næst er sónata Beethovens op. 57 sem oft er kölluð Appasionata. Stórt og mikilfenglegt verk sem er óhikað í flokki stórverka klasssíska tímabilsins í tónlistarsögunni. Eftir hlé leikur Jónas „Fiðrildin" eftir Ro- bert Schumann en hann lést 1856 og er þess minnst víða í veröldinni á þessu ári. Tónleikunum lýkur svo með hugleiðingu Brahms um stef eftir Hándel. Stef Hándels er úr h'tilli svítu og gerir Brahms 25 tilbrigði og fúgu á einkar glæsilegan hátt. Aðgöngumiðar að tónleikunum em seldir við innganginn. Jj Jonas Ingimundarson píanóleikari j Eríslenskum tónlistarunnendum að góðu kunnur og heldur um þessar mundir upp á starfsafmæii sitt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.