Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2006, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 7 9
DV Sport
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Sigfús Sigurðsson og Arnór Atlason mega yfirgefa Magdeburg
íslendingahreinsanir í Magdeburg
Það er engu líkara en að Bemd
Uwe-Hildebrandt sé að hreinsa til hjá
þýska úrvalsdeildarliðinu Magdeburg
eftir að hann sagði Alfreði Gíslasyni
upp störfum í byrjun árs. Báðum ís-
lendingunum sem eftir em hjá félag-
inu, þeim Sigfúsi Sigurðssyni og Am-
óri Atlasyni, hefur verið sagt að þeir
megi fara ffá félaginu nú strax í vetur
eða þá klára sína samninga óski þeir
þess. Báðir em þeir samningsbundn-
ir félaginu fram á mitt sumar árið
2007.
„Framkvæmdarstjórinn ákvað að
félagið myndi kaupa pólskan línu-
mann og að ég þyrfti að víkja fyrir
honum þar sem ég er einnig útlend-
ingur. Hann vill ekki hafa of marga út-
lendinga í sínu liði,“ sagði Sigfús við
DV Sport í gær. Talið er líklegt að
Bogdan Wenta sem nú starfar sem
landsbðsþjálfari Póllands og aðstoð-
arþjálfari hjá Flensburg, taki við lið-
inu í sumar.
Sigfús og Amór fengu þau skila-
boð að félagið væri tilbúið að gera við
þá starfslokasamninga í vor til að þeir
gætu farið frítt til annarra félaga eða
þá að þeir klámðu sína samninga.
Þeim getur þó ekki þótt það spenn-
andi kostur þar sem þeir mega búast
við því að fá fáar mínútur á vellinum.
En þeir em þó sammála um að ef
þeim býðst ekki neitt spennandi,
munu þeir klára sína samninga. „Ég
lít á þetta jákvæðum augum þar sem
ég var farinn að hugsa mér til hreyf-
ings," sagði Amór. „Ég má ekki við því
að eyða öðm tímabili á bekknum og
því vil ég helst koma mér að hjá öðm
liði."
Sigfús sagðist ekki vera reiðubú-
inn að halda heim á leið alveg strax og
horfði helst til annarra félaga í Þýska-
landi eða á Spáni.
eirikurst@dv.is
Hefna Hauk-
arnir fyrir bik-
arúrslitin?
Haukar fá í dag tækifæri
til að hefha fyrir tapið fyrir
Stjömunni í bikarúrslita-
leiknum því bikarmeistaram-
ir sækja þá heim á Ásvelli í
DHL-deild karla.
Stjaman vann bikar-
úrslitaleikinn 24-20
um síðustu helgi þar
sem Roland Valur
Eradze lokaði marki
Stjömunnar og varði
30 skot. Haukamir
höfðu tveggja marka
forskot í hálfleik, 11-9, en
Stjaman vann seinni hálfleik-
inn 15-9 og hefur nú leikið 13
leiki í röð í deild og bikar án
þess að tapa.
Fimmti Reykja-
víkurmeistara-
titill Ásgeirs
Ásgeir Elíasson gerði Fram
að Reykjavíkurmeist-
urum í knattspymu á
fimmtudagskvöldið
þegar Fram vann Vík-
ing 2-0 í úrslitaleik
mótsins. Þetta er í
fimmta sinn sem Ás-
geir gerir lið að
Reykjavíkurmeisturum en
Fram vann titilinn einnig
undir hans stjóm 1985,1986
og 1998 og þá gerði hann
Þróttara að Reykjavíkurmeist-
urum 2002 en þá var liðið í B-
deild alveg eins og nýkrýndir
Reykjavíkurmeistarar Fram-
ara em næsta sumar.
22 þjálfararút-
skrifaðiraf KSÍ
KSÍ útskrifaði í gær 22
þjálfara sem hafa lokið UEFA
A-prófi í þjálfaramenntun
KSÍ. UEFA A-gráða er hæsta
þjálfaragráða sem er í boði á
íslandi og næsthæsta þjálf-
aragráða sem UEFA viður-
kennir.Þjálfarar með UEFA
A-gráðu hafa leyfi til að þjálfa
alla flokka og í öllum
deildum á íslandi.
Jafnframt er þjálfara-
gráðan viðurkennd í
48 af 52 löndum sem
eiga aðild að UEFA.
Meðal þeirra sem út-
skrifuðust vom Sig-
urður Jónsson og Milan Stef-
án Jankovic, þjálfarar
Grindavíkur, Éh'sabet Gunn-
arsdóttir, þjálfari kvennaliðs
Vals, Magnús Gylfason, þjálf-
ari Víldngs og Guðlaugur
Baldursson, þjálfari ÍBV.
.kúlulegur
..keflalegur
..veltilegur
..rúllulegur
..flangslegur
..búkkalegur
SMuaMSAtarejn Símí 461 2288
Mr 5TRAUMRÁS
~ZJB Funuwettr3-e00Alcureyri
Guðmundur Ágúst Ingvarsson formaður Handknattleikssam-
bands íslands segir að ráðning Alfreðs Gíslasonar í stöðu
landsliðsþjálfara sé mikill fengur fyrir íslenskan hand-
leik. Alfreð var ráðinn í gærkvöldi og stýrir liðinu
fram í júní árið 2007.
•. .
c_...
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
Alfreð Gíslason er tekinn við starfi þjálfara handknattleiks-
landsliðs karla og mun hann stýra liðinu fram í júní árið 2007.
Ekki hefur enn verið ráðinn aðstoðarmaður Alfreðs en það
verður sennilega gert strax í næstu viku.
HSÍ tilkynnti um ráðningu Al-
freðs á blaðamannafúndi í gær-
kvöld sem seinkaði vegna tafa á
flugi Alfreðs frá Frankfurt. Fór því
fundurinn fram eftir að helgarblað
DV fór í prentun. En Guðmundur
Ágúst Ingvarsson, formaður HSÍ,
sagði í samtali við blaðið í gær að
Alfreð hefði verið fyrsti kostur HSÍ í
starfið eftir að Viggó Sigurðsson
gerði mönnum ljóst að hann hefði
ekki áhuga á að ræða við samband-
ið um starfið.
Samningur Alfreðs nær fram til
júní á næsta ári og mun hami því
stýra liðinu fram yfir umspilsleiki
íslands um sæti á EM í Noregi sem
fer fram í janúar og febrúar árið
2008, taki íslenska landsliðið þátt í
því umspili. Fyrsta verkefni Alfreðs
verður þó að koma liðinu í gegnum
erfiða umspilsleiki gegn Svíum en
þar er leikið um laust sæti á HM í
Þýskalandi í janúar næstkomandi.
Þar yrði Alfreð sannarlega á heima-
velli enda hefur hann verið búsett-
ur þar síðan hann tók við Mag-
deburg árið 1999 og mun hann að
öllum líkindum búa þar áfram.
„Alfreð mun fljúga mikið á milli
til að fyigjast með leikmönnum
bæði hér heima og á meginlandi
Evrópu. En hann mun búa áfram í
Þýskalandi," sagði Guðmundur,
sem býst ekki við öðru en að Alfreð
muni leiða ísland til sigurs gegn
Svíum. „Ég held að það dyljist eng-
um hversu hæfúr þjálfari Álfreð er
og koma hans í starf landsliðsþjálf-
tu-a er mikill fengur fyrir íslenskan
handknattleik," sagði Guðmundur.
Þeir eru ófáir sem hafa haft það á
orði að Alfreð sé með hæfustu
þjálfurum sem starfa í handboltan-
um í dag.
En Alfreð er samningsbundinn
þýska úrvalsdeildarliðinu Gum-
mersbach frá og með sumrinu
2007 og því mun hann að öllu
óbreyttu hætta með landsliðið
þegar samningur hans við FISÍ
rennur út. Hver langtímalausnin á
starfi landsliðsþjálfara verður á
enn eftir að koma í ljós. Einn
möguleikinn er að ráða aðstoðar-
mann fyrir Alfreð sem svo tæki við
liðinu þegar hann hættir. „Það er
einn möguleiki en það er ekki víst
að við förum þá leið. Við komum til
með að setjast niöur með Alfreð og
fi'npússa þessa hluti sem aðra,"
sagði Guðmundur.
Alfreð gerði í vikunni starfsloka-
samning við Magdeburg eftir að
honum var vikið úr starfi í byrjun
árs. Til stóð að hann þægi laun út
samningstímann, ffam á mitt sum-
ar 2007, en aðilar sættust á starfs-
lokagreiðslu.
eirikurst@dv.is
HMELLUR.
t emum grænum
G. Tómasson ehf • SúiarvogiS
• simi: 577 6400 • www.hvellur.com
• hvellur@hveilur.com
Q
Q?
-o
Alfreð Gíslason
Verður á hliðarllnu Is-
lenska landsliðsins næstu
fímmtdn mánuðina.
*>