Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2006, Page 53
r*V Sviðsljós
Ozzy vill
hjálpa Pete
Doherty
Hinn skrautlegi Ozzy Osbourne skilur
ekkert í því afhverju enginn er að
hjálpa Pete Doherty. „Ég hef farið tii
helvítis vegna eiturlyfjaneyslu og jafn-
vel þótt það fari í taugarnar á mér að
sjá hann klúðra lífinu svona myndi ég
hjálpa honum strax ef hann spyrði.
Sharon var eins og kiettur við hlið mér
og ef hann kæmi að búa hjá okkur
myndi hún taka hann i gegn. Afhverju í
andskotanum er enginn að hjálpa
drengum?"
Vill búa á
Hawaii
Britney Spears hefur dvalið á Hawaii
undanfarið og líkar það svo vel að hún
er búin að kaupa sér hús þar á þrjár
milljónir dollara. Smápeningur fyrir
hana.
Britney ætlar að einbeita sér að popp-
inu sem hún segir að þurfi nauðsyn-
lega að hrista upp í, en einnig finnst
henni Hawaii vera hinn fullkomni stað-
ur til þess að bjarga hjónabandi sínu.
En síðan Sean Preston fæddist hefur sá
orðrómur verið í gangi að brestir séu í
hjónabandi þeirra.
Skilaði
hundunum
Sienna Miller er greinilega ekki mikil
hundamanneskja. Hún og Jude Law
áttu saman tvo hunda sem þau kölluðu
börnin sfn, en Jude gaf henni hundana
er ástin blómstraði. Nú þegar þau eru
hætt saman hefur Sienna litla ekkert
með hundana lengur að gera og tók þá
beint á heimili Jude Law f Kaliforníu.
Jude var ekki á svæðinu en þjónustu-
stúlka hans tók við þeim. Sienna sagði
við hana „að hún gæti bara ekki séð
um þá lengur". Hún myndaði greini-
lega ekki nein tengsl við greyin litlu
sem gerðu henni ekki neitt.
Biblían og
Hairdoctor
Það verður nóg um að vera í Bókabúð
Máls og menningar við Laugaveg í
dag. Klukkan þrjú treður dúettinn
Hairdoctor upp í búðinni og tekur
nokkur lög. Hljómsveitin gaf út fína
plötu í fyrra, Shampoo, og er á góðri
siglingu. Fermingarnar eru nú að
bresta á og því verður Biblían á sér-
stöku tilboði í versluninni um helgina.
Það er ekki á hverjum degi sem „bók
bókanna" fer á útsölu og því er upp-
lagt fyrir sparsama sem neyðast í ferm
ingarveislu að tékka á þessu.
20% afsláttur af öllum viðburdum
Concert ef greitt cr meó Mastercard
á forsöludegi Mastercard
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA
Á WWW.CONCERT.IS
OG WWW.MIDI.IS OG í
VERSLUNUM SKÍFUNNAR
Masten