Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2006, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2006, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2006 Fréttir DV Hinn ævintýralegi bankastjóri KB Snorrason er síður en svo kominn úr kastljósi fjöl- miðlanna. Hér segir af undirskriftalista sem Dússi á Dússabar safnaði á til stuðnings KB. 300 skrifuðu undir á rúmri viku. Enda þótti mönnum illa með KB Snorrason farið af hálfu bankans. Hestahvíslari á íslandi Frægasti og þekktasti hestahvíslari veraldar er kominn til íslands. Maður- inn heitir Monty Roberts og ku vera einstakur í að hvísla að þessum þarfa þjóni mannsins. Samkvæmt hestar.is er hann kominn hingað til landsins til þess að sýna íslendingum hvern- ig hann nálgast og temur hross en það ku vera ein- stakt að fýlgjast með því. Sýning hans verður í Reið- höllinni í Víðidal á skírdag. Hjördís í Hæstarétt Hjördís Björk Hákonar- dóttir, héraðsdómari við Héraðsdóm Suður- lands, hefur sam- kvæmt tillögu Geirs H. Haarde, setts dómsmálaráðherra, verið skipuð dóm- ari við Hæstarétt ís- lands frá og með 1. maí næstkomandi. Aðrir umsækjendur um embættið voru: Dr. Páll Hreinsson, prófessor og forseti lagadeildar Háskóla íslands, Sigríður Ingvars- dóttir, héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, og Þorgeir Ingi Njálsson, hér- aðsdómari við Héraðsdóm Reykjaness. Haldið til haga í blaðinu í gær var greint frá óánægju í stétt lögmanna með að sér- lega skipaður saksóknari í Baugsmáli væri með starfsmann Björns Bjarnasonar dómsmála- ráðherra sem sérlegan aðstoðarmann. Með því hafa myndast bein tengsl milli framkvæmda- og dómsvalds. Hins vegar urðu þau leiðu mistök að Sigurður Tómas var sagður Björgvinsson en hann er að sjálfsögðu Magnússon og er beðist velvirðingar á því. Ilndirskriílalistar 01 stuðnings KB Snorrasyni „Og hvað með það?" spyr Steinþór Grönfeld sem aldrei er kallað- ur annað en Dússi á Dússabar í Borgarnesi. Hann er að svara spurningum blaðamanns DV um undirskriftasöfnun sem hann stóð fyrir til stuðnings KB Snorrasyni. Skrítin saga af undirskriftasöfn- un á þá leið að listarnir hefðu verið innsiglaðir á skjalasafní bókasafns Borgnesinga barst blaðinu. Dússi segir það ekki alls kostar rétt. „Þeir eru ekki innsiglaðir. Ég hef þá und- ir höndum. Man það ekki. Yfir 300 undirskriftir. Ég er að hugsa um að eyða þeim." Engar ástæður gefnar fyrir uppsögn „Ég get ekkert annað sagt en það að ég gerði ekkert af mér," segir Kristján B. Snorrason, útibússtjóri í KB banka í Borgarnesi, sem var rek- inn frá störfum á föstudag. Þessi um- mæli lét hinn umdeildi KB Snorra- son falla í samtali við DV í upphafi árs 2004. Og þetta sagði hann sveitung- um sínum jafnframt. Ogþeim ofbauð skítleg framkoma KB bankamanna í garð þessa velliðna útibússtjóra. KB Nýjustu fréttir af KB Snorrasyni eru svo þær að hann hefur verið ákærður fyrir að hafa svikið út tæp- ar tíu milljónir úr útibúinu í Borgar- nesi. Jafnframt hefur komið fram að hann flæktist í flókið Nígeríusvindl sem Kristinn Gunnarsson er sagður standa á bak við. Auk þesssemKBer meðlimur í hinni fomfrægu hljóm- sveit Upplyftíngu. Áfall þegar KB fór Þessi er forsagan: Þegar KB Snorrasyni var vikið frá störfum gekkst Dússi fyrir undirskriftasöfn- un sem gekk vonum framar. Um 300 manns rituðu nafn sitt á listana sem lágu frammi á bensínstöðvum í rúma viku. Ekki mikið fyrir því haft, að sögn Dússa. Enda mönnum brugðið og sam- úðina áttí KB alla. Dússi segist hafa heyrt af því og vití að menn hafi meira að segja gengið svo langt að færa viðskipti sín frá bankanum og til Sparisjóðs Mýrasýslu. „Hann var mjög vel liðinn og áfall þegar hann var látínn fara," segir Dússi sem enn telur KB hafa verið hafðan fýrir rangri sök. Segir illa hafa verið farið með hann af hálfu bank- ans. Mikill missirað Kristjáni En hvers vegna voru listarn- ir ekki lagðir fram? Dússi segist hafa fengið bakþanka. Og talið hættu á því að þeir sem rituðu nafn sitt á listana yrðu Jagðir í einelti af bankanum. „Það er mikill missir að I Kristjáni. Ég heyri að ann- ar útíbússtjóri hafi verið rek- inn af Suðurlandsbraut á sama tíma. Hann gerðist útíbússtjóri í Landsbankanum í Garðabæ og tók með sér marga kúnna. Það sama hefði gerst hér ef útibú hefði verið fyrir Kristján hér." Borgarnes I þessum fallega bæ, þarsem fínna | má Dússabar, átti KB I Snorrason - Ekki KB banki -samúðinaalla. Dússi segist ekkert þekkja tíl þessa nýja máls sem snúi að fjár- svikunum. „Var hann að lána ein- hverjum manni? Voru þetta venjuleg bankaviðskiptí? Ég veit ekkert um það mál." KB Snorrasson Naut samúðar bæjarbúa sem rituöu nafn sitt unnvörpum á lista honum til stuðnings. Dússi á Dússabar Veitingastaðurinn Dússabar Borgarnesi er nefndur í höfuðið Dússa. Hann segir konu sína reka barinn þótt hann sé uppnefndur eftír sér. Hann hangi þar stundum. Á barn- um. Að líta eftír konu sinni. „Hér getur myndast skemmtileg stemning.Þetta er austur- lenskur veit- ingastaður. En eftír níu á kvöld- in breyt- um við staðnum í bar," segir Dússi. jakob@dv.is Um meinta mærð pokapresta Svarthöfði hefur alltaf verið trú- aður maður. Mjög. Hefur alla tíð farið með bænirnar sínar kvölds og morgna. Og uppáhaldslagið hans er Afram, Kristmenn, krossmenn, kóngsmenn erum vér. Hins vegar hefur Svarthöfði látíð undir höfuð leggjast að sækja kirkj- ur. Svarthöfði hefur ekki farið í kirkju síðan hann fór í jarðarför fyrir fjór- um árum. Verið var að jarða gamlan menntaskólakunningja. Og Svart- höfðinn ákvað bara að skella sér. Það var ekki fyrr en komið var við lok ræðu klerks að Svarthöfði áttaði sig á því að hann hafði farið kirkjuvillt. Og það var verið að jarðsetja gamla Hvernig hefur þú það? Svarthöfði konu sem Svarthöfði þekkti hvorki haus né sporð á. Virtíst hafa verið al- veg einstakt gæðablóð. Eiginlega fer- legt að hafa farið þess á mis að hitta ekki á hana. Og fyrst hann var kominn af stað fór Svarthöfði líka- í kaffið á eftir. Glæsilegt veisluborð í Súlnasalnum. Og þar hitti Svarthöfði fjórar eldri konur. Afskaplega geðugar og sneð- ugar. Og þær tjáðu Svarthöfða einn- ig að þær hefðu ekki þekkt þá látnu. Nema af afspurn. En þeim þóttí sér „Það liggur á hjá mér að taka niöur jólatréö þvl það eru að koma páskar,“segir Arnþrúöur Karlsdóttir útvarpsstjóri á Útvarpi Sögu. „Tíminn líður svo hratt hjá mér þessa dagana að það hálfa væri nóg.Maðurá fullt í fangi meðað komast yfir það sem þarfað gera.“ Prestar og djáknar / prósessíu frá safnaðar- heimili Dómkirkjunnar OfS kirLril /nni' hollt andlega að kíkja reglulega í jarð- arfarir. Og eftir Guðsorðið væri alveg svona líka ljómandi gott að fá sér ör- lítinn kaffísopa. Og kannski kleinu með. En þetta er útúrdúr. Hvert var Svarthöfði kominn? Já, alveg rétt. Þessi meinta mærð pokaprest- anna, en Svarthöfði hefur staðið í þeirri meiningu að vellan úr þeim getí verið til að drepa hvurn guð- legan þanka, er líklega á misskiln- ingi byggð. En það er farin að renna önnur gríma á Svarthöfða með það dæmi allt. Prestar eru, guðsþakkar- lega, farnir að láta meira að sér kveða í samfélaginu. Þess hefur Svarthöfði saknað. Og þeir eru farnir að leið- beina skrílnum og er ekki vanþörf á. Segja hvað má og hvað ekki. Ef prest- arnir hefðu bara bannað Svarthöfða það fýrr að vera í þessum spilaköss- um, þá væri hann miklu ríkari. Og gætí gefið meira (eitthvað) í söfnun- arbaukinn. Svarthöfði
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.