Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2006, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 12.APRÍL2006
Sport DV
Skallagrímsmenn hafa unnið alla heimaleiki sína í úrslitakeppninni i Iceland Express-deild karla í körfubolta.
Þetta eru allt leikir gegn Suðurnesjaliðunum, einn gegn Grindavík, tveir gegn íslandsmeisturum Keflavíkur
og svo fyrsti heimaleikurinn í lokaúrslitunum gegn Njarðvík.
ENGINN VENJULEGUR HEIMAVÖLLUR
Valur Ingimundarson, þjálfari Skallagríms, sýndi að hann hefði
trú á heimavelli sínum í Borganesi þegar hann gaf frá sér fyrsta
leikinn og kannski ekki að ástæðulausu. Skallagrímur hefur unn-
ið 15 af síðustu 16 leikjum sínum í Fjósinu eins og heimamenn
vilja kalla það.
Skallagrímsmenn unnu tíu stíga
sigur á Njarðvíkingum, 87-77, í öðr-
um leiknum og jöfnuðu þar með úr-
slitaeinvígið í 1-1 en Njarðvíkingar
höfðu unnið léttan sigur í íyrsta leikn-
um á laugardaginn, 89-70. Skalla-
grímsmenn mættu fullir sjálfstrausts
og með baráttuna að vopni og end-
uðu þriggja leikja sigurgöngu Njarð-
víkur í úrslitakeppninni.
Þriggja stiga skotsýning
Mönnum hefur margoft orðið tíð-
rætt um þriggja stiga skotsýningu
Borgnesinga í Borgarnesi og áhorf-
endur fengu að sjá eina í viðbót á
mánudagskvöldið. Eftir þrettán mín-
útna leik voru Skallagrímsmenn bún-
' ir að hitta úr 8 af 12 þriggja stiga skot-
um sínum og með því komnir með
17 stiga forskot, 35-18. Njarðvíkingar
komust aftur inn í leikhm og komu
muninum niður í fjögur stig fyrir hálf-
leik með því að skora 7 síðustu stig
hálfleiksins. Skallagrímsmenn unnu
hins vegar fyrstu þrjár mínútur seinni
hálfleiksins 9-2, náðu mest 15 stíga
forskoti í kjölfarið (76-61) og hleyptu
Njarðvíkingum aldrei nálægt sé.
Borgnesingar kláruðu síðan leikinn
með því að hitta úr 7 af 8 vítaskotum
sínum á lokamínútunum og unnu tíu
stiga sigur, 87-77.
Landarnir Dimitar Karadzovski
(22 stig, 6 stoðsendingar) og Jovan
Zdravevski (24 stíg, 5 fráköst) vóru í
miklu stuði og George Byrd skilaði
sínum 19 stigum og 18 fráköstum auk
þess að gefa 6 stoðsendingar og verja
4 skot. Hafþór Ingi Gunnarsson hitti
líka úr fjórum síðusm þriggja stiga
skotum sínum og var með 14 stíg og
4 stoðsendingar.
Hjá Njarðvík var Friðrik Stefáiils-* ‘
son (21 stíg, 12 ffáköst) mjög góður
sem og Jeh Ivey (25 stig) sem var mjög
ógnandi. Brenton Birmingham var
með 16 stíg og Guðmundur Jónsson
bætti við 11 stígum en það háði liðinu
að þrátt fyrir að þeir hafi eitthvað náð
að hemja Byrd inni í teig þá gekk illa
að ráða við Jovan og bakverðina.
Uppselt á leikinn
Það var uppselt á fyrsta heima-
leik Skallagríms í lokaúrslitunum og
heimamenn eru þegar farnir að hafa
áhyggjur af því hvernig þeir ætli koma
öllum fyrir á fjórða leiknum ekki síst
ef að liðið á kannski möguleika á að
tryggja sér íslandsmeistaratítilinn í
þeimleik.
Þrengslin eru samt hlutí af stemn-
ingunni sem fylgir húsinu og þótt
bæði liðin í úrsiitunum í ár séu með
tvö af minnstu íþróttahúsum deildar-
innar þá hafa fá hús meiri sál en ein-
mitt Ljónagryfjan í Njarðvík og Fjósið
í Borgarnesi,
Þriðji og fjórði leikur lokaúrslit-
anna fara ffam um páskana og áður
en DV kemur næst út. Þriðji leikur-
inn verður í Njarðvík á laugardaginn
klukkan 20.00 og sá ijórði er síðan í
Borgarnesi að kvöldi annars í pásk-
um.
Samfelld
sigurganga Þaðhefur
venðgaman að búa ÍBorganesiað
undanförnu og hérséststuðninqs-
maður númer eitt fagna *
Allt troðið Það var uppselt í Fjósið i
Borgarnesi og eins og sést hérá þessari
mynd þá var setið þéttíhúsinu.
_ -einniaf
morgum korfum liðsins lleiknum.
skora Þakið ætlar
skora. Hér hefurJovan Zdravevski skoraði
tvö af24 stigum slnum I leiknum.
s Tveir stórir og sterkir Þaðhefur í* ‘
i verio rrabært að fylgjast með J einvJ9Íþeirra Friðriks Stefánssonar I 1 09 George Byrd inni í teigunum. 1 ■
1 inal
■i