Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2006, Blaðsíða 33
I
Menning DV
MIÐVIKUDAGUR 12.APRÍL2006 33
I m
jjyr
II
5TVAL
Hæstiréttur fslands, Lindargötu 2, Rvk.: Studió
Grandi 1987-1992
„Skipulag hússins er afar vel leyst m. t.t. eldri bygg-
inga í nágrenninu, falleg bygging með einstæöa
upplifun frá anddyri að sölum efri hæðar."
Kjarvalsstaðir við Flókagötu: Hannes Kr. Dav-
íðsson. Byggt 1960-1973.
„Opin rými og alglerjaðir veggfletir skapa tengsl
við garðinn á sannfærandi hátt, efnisnotkun er
frumleg".
„Falleg og stílhrein bygging."
Gamla orkuveituhúsið: Guðmundur Kristinsson
„Mjög hógvær og öguð bygging. Einfaldur arkitektúr
en abstrakt. Bygging sem eldist vel og vinnur mjög
Torfan: Ymsir arkitektar
„Sumt er ekki hægt að hanna - það bara gerist með
tímanum. Torfan ergott dæmi um þetta. Mannlegur
mælikvarði og fjölbreytni. Það eru ekki nema rúm-
lega þrjátíu ár siðan það áttiað rífa þetta!"
„Mjög verðmætt i sögu Islendinga. Verðum að halda í
þetta. Þægilegt andrúmsloft, manni líður vel þarna."
7
m7
Laugavegur42
„Glæsileg bygging. Það er eitthvað heimsborgar-
legt við hana."
Háskólabíó: Gunnlaugur Halldórsson 1959
„Hús og táknmynd í einum massa. Byggingin kall-
ar BlÓ, BlÓ, ALLIRI BlÓ!"
Túngata 7
„Stendur fyrir virðuleika og glæsilegan stíl. Hús sem
erbyggtafmyndugleika og efnum. Það stendurá
hornlóð og nýtursín því vel, háreist og virðulegt."
„Mjög fallegt hús."
Sundhöii Reykjavikur
„Sundhöllin erglæsileg í einfaldleika sinum, þó
virðuleg og laus við prjál."
„Ofboðslega fallegt hús. Einfaldur og flottur stíll. A
undan sinni samtið."
Kaþólska kirkjan:
Guðjón Samúelsson
„Einstaklega glæsileg
bygging, enda teiknuð
afokkar ástsælasta arki-
tekt fyrr og síðar, Guð-
jóni Samúelssyni húsa-
meistara rikisins."
„Glæsilegt og klassískt
Alþingishús + viðbygging
„Hús með svip og sál. Viðbyggingin frábær og fell-
ur vel að gamla hlutanum. Manni þykir vænt um
þetta hús þótt maður sé ekkijafn hrifinn aföllum
sem þarstarfa."
Ráðhús Reykjavíkur
„Þrátt fyrir áköfmótmæli á sínum tlma erþetta fal-
lega hús orðið eittafhelstu kennileitum Reykjavíkur."
Sjómannaskólinn í Reykjavík: Sigurður Guð-
mundsson og Eiríkur Einarsson
„Það fer ótrúlega lítið fyrirþessu glæsilega húsi
þótt það sé stórt og mikið."
„Rosalega fallegur. Eitt affallegri kennileitum
borgarinnar."
Naustabryggja 21-29: Björn H. Jóhannesson
„Staðsetningin erákaflega skemmtileg, við smá-
bátahöfn, og skjólgóður garður er sunnan megin
við húsin. Húsin eru með vandaðri utanhúsklæðn
ingu úr áli og verða þvi viðhaldslítil."
Perlan
„Hugmynd sem er komin frá listamanninum Jó-
hannesi Kjarval. Útfærlsan er mjög vel heppnað
hús sem kórónar umhverfisitt."
—
Þjóðleikhúsið: Guöjón Samúelsson
„Ber mikils arkitekts vitni. Musteri eins og þjóðleik-
hús eiga að vera. Stuðlabergsstíllinn sem einkennir
loftið í húsinu er í senn frumlegur og þjóðlegur án
þess að vera borulegur."
Hljómskálinn
„Punkturinn yfir i-ið i Hljómskálagarðinum.'
Þjóðarbókhlaðan
„Gott dæmi um vel heppnaðan nútímaarkitektúr."
„Einstaklega skemmtileg bygging en umhverfið gerir
bygginguna í þessu tilfelli. Vatnið sem rennur í kring
gefur svo sannarlega„síkis" tilfinningu og fallega
grjóthleðslan að aftanverðu eralgjörlega ómissandi
og gefur fallega ásýnd á bygginguna frá Hringbraut.
Maður fær á tilfinninguna að handritin góðu og
bækurnar okkar séu í ótrúlega góðum höndum -
vantar bara riddarana á hestunum við innganginn."
Alorræna húsið: Alvar Aalto
„Látlaus skandinavískur arkitektúr. Glæsilegt í ein-
faldleika. Tekurmið af umhverfinu."
Hótel Nordica
„Einstaklega vel útfærð breyting. Sérstaklega eru
rými innanhúss vel heppnuð og notaleg og þar
hefur efnisval mikið að segja."
Húsnæði Ingvars Helgasonar hf: TT3 Arkitektar
„Stórfýrirtæki i húsi sem lætur ekki mikið yfir sér en
liðast mjúklega meðfram Elliðaánni."
gaBaaa
Bankastræti 7a
„Þetta fallega hornhús hefur hýst listir og menn-
ingu, kaffi og heimspekinga í áraraðir þóttyngri
kynslóðirnar þekki húsið betur sem skemmtistað.
Húsið er gullfallegt frá toppi til táar"
Neskirkja við Hagatorg: Ágúst Pálsson
„Áreiðanlega ein affáum kirkjum landsins sem er
bæði í senn gullfalleg og svöl. Allur frágangur á
lóð er til fyrirmyndar og rómantískur trjágróðurinn
fær að njóta sín nánast allan hringinn. Viðbygg-
ingin sem vígð var í fyrra er I senn nútlmaleg en
passar ótrúlega vel við gömlu bygginguna."
Jóhann Sigurðsson
arkitekt.
Sigríður Sigþórsdóttir
arkitekt.
Ólafur B. Blöndal
fasteignasali.
Hlynur Sigurðsson
Fasteignasjónvarpinu.
Andrés Þór Björnsson
innanhússarkitekt.
Ásta S. Ólafsdóttir
innanhússarkitekt.
Signý Þ. Ólafsdóttir
sagnfræðingur.
Hrafn Gunnlaugsson
kvikmyndagerðarmaður.
Sesselja Thorberg
hönnuður.