Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2006, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2006, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 12.APRÍL2006 Fréttir DV SígUrAlir Káni KrÍSQáilSSOII Skólastjórinn afhjúpar lausn í máli Flóka eftir páska Hann er gegnheill sómadreng- ur, fyndinn, duglegurog harður vígamaður ípólitískri orrahríð. Hann er lélegur hlaupari. Stuðningsmaður Manchest- er United. Of hægrisinnaður. „Hefkynnst honum Sigurði vet. Kann við fáa jafn vel og hann. Gegnheill sómadreng- ur. Fastur Isinni pólitik. Persónulega þekki ég enga ágalla aðra en hans hægrisinnuðu skoðanir. En Sjálfstæðisflokkurinn er heppinn að hafa hann ísinni framvarða- sveit." Björgvin G. Sigurösson alþingismaöur. „Helsti gallinn við Sigurð erhvað hann er seinn að hlaupa. Hann hefði verið með mér I fótboltanum efhann hefði verið sneggri. Hann ermjög traustur.m Maður veit alltafhvar maður hefur hann. Ég held að fáir viti hversu mikil húmoristi hann Sigurðurer. Hefur skemmtilegan gálgahúmor." Pétur Marteinsson æskufélagi. „Hann ermjög skemmtilegur, duglegur, færvígamaðuri pólitískri orrahríð. Hans helsti galli er að hann styður Mancester United." Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður. Sigurður er fæddur 9. mal 1973. Sonur hjónanna Kristjáns Ágústs ögmundsson- ar og Elínar Þórjónsdóttur. Sigurður er alinn upp I Suðurhólum í Breiðholtinu. Hann gekk I Hólabrekkuskóla, Verzlunarskólann og tóksvo lögfræðipróf frá Háskóla íslands. Árið 2003 var Sigurður kosinn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn og situr I fjórum þingnefndum fyrirhann; Allsherjarnefnd, iðnaðarnefnd, menntamálanefnd og sérnefnd um stjórnarskrármál. Hann á eina systur. Sigurður er í sambúð. Tölva ræður fólk í álver Um sjöhundruð um- sóknir hafa borist álverinu í Straumsvík sem er með því meira sem borist hefur hingað til samkvæmt vf.is. Ljóst er að Hafnfirðingar hafa ekki látið umtal um- hverfissinna á sig fá undan- farin misseri og því komin upp'sú staða að álverið þarf að vísa mörgum hæfum einstaklingum frá. Álverið hefur komið sér upp nýj- um hugbúnaði sem vinnur úr umsóknum og flýtir fýrir allri vinnu við ráðningar og ætti því að auðvelda mönn- um þetta erfiða ferli. Flokamalið sagt vera leyst í ágætri sás Ekkert fæst uppgefið um það í hverju sú lausn felst sem sögð er vera fundin vegna óánægju foreldra skólabarna á Hvanneyri um kennsluaðferðir séra Flóka Kristinssonar í kristinffæðitímum. ,Ég er ekki að taka fram fyrir hendurnar á skólastjóranum.'1 „Það er búið að leysa máiið í ágætri sátt. Eftir páska fær fólkið sem málið varðar fregnir af því," seg- ir Guðlaugur Óskarsson, skólastjóri í Grunnskóla Borgarfjarðarsveitar, um vandamái sem kom upp í skólanum vegna kvartana foreldra yfir kennslu- aðferðum séra Flóka Kristinssonar. Flóki fann lausnina sjálfur Sjálfur segist séra Flóki vera sáttur við þá lausn sem fundist hafi. Hún sé í samræmi við það sem hann sjálfur hafi upphaflega lagt til. „En ef Guð- laugur hefur ekki sagt hver lausnin er, þá ætla ég ekki að gera það held- ur. Ég er ekki að taka fram fýrir hend- urnar á skólastjóranum," segir Flóki. Guðlaugur skólastjóri boðaði til fundar á miðvikudag í síðustu viku vegna óánægju meðal foreldra þeirra barna sem eru nemendur í kristin- fræðum hjá séra Flóka. Fræðslunefnd fordæmir DV „Ég get ekkert tjáð mig um þetta mál. Skólastjórinn er með verkefn- ið á sinni könnu. Fræðslunefndin hefur fjallað um málið og ég vísa til ályktunar nefndarinnar," segir Snorri Sigurðsson, formaður fræðslu- nefndar Borgarfjarðarsveitar. Bókun fræðslunefndarinrtar er eftirfarandi: „Borist hafa athugasemdir vegna kristinfræðikennslu Flóka Kristinssonar í grunnskólanum á Hvanneyri. Skólastjóri vinnur að lausn málsins í samvinnu við for- eldra. Lakara er hinsvegar að DV hefur birt fréttir af málinu sem eru í engum takti við eðli og um- fang þess. Fræðslunefnd fordæmir fréttaflutning DV og stendur heils- hugar að baki skólastjóra í sáttastarfi hans." Dautt og ómerkt Séra Flóki hefur einnig gert athugasemdir við lýsingar sem DV hafði eftir heim- ildarmanni um samskipti Flóka við nemendur sína í skólanum á Hvanneyri. í þeim efnum hafi verið farið með staðlausa stafi. Þegar viðkomandi frétt birtist mánudaginn 3. apríl vildi þessi heimildar- maður ekki láta nafns síns getið. Sú staða er óbreytt. í yfirlýsingu sem séra Flóki sendi frá sér í liðinni viku sagði hann að meðan þessi heimildar- maður DV ekki stigi fram í dagsljós- ið undir eigin nafni væru ummæli hans dauð og ómerk. gar@dv. is Guðlaugur Óskarsson Skólastjórirm ætlar að kynna foreldrum skólabarna lausn Imáli séra Flóka Kristinssonar eftir páska. Eigendur Hallarinnar í Eyjum funduðu með nágrönnum. Fyrsta ballið á fóstudaginn langa. Svefnlaus nótt nágranna fram undan Ingi Sigurðsson, útibússtjóri Glitn- is í Vestmannaeyjum, og Ólafur Elís- son sparisjóðsstjóri héldu fund með nágrönnum Hallarinnar í fýrradag til að kynna þeim hvað er ffam undan í málefnum Hallarinnar. Eins og frarn kom í frétt DV um málið í gær hafa Glitnir og Sparisjóðurinn sem nú eiga húsið, fengið bráðabirgðastarfsleyfi fyrir starfsemi skemmtistaðar- ins. Fyrsta ballið verður eftir mið- nætti á föstu- daginn langa. Frið- björn Val- týsson, einn' nágrann- anna, segir að þeir sjái fram á svefnlausa nótt meðan á þessu balli stendur. Þeir Ingi og Ólafur greindu frá þeim endurbótum sem fyrirhugaðar eru á Höllinni í ár og jafnframt gerðu þeir nágrönnunum tilboð um að setja upp nýja hljóðeinangraða glugga í hús þeirra. Samkvæmt því sem þeir sögðu er ljóst að töluverðum upp- hæðum þarf að eyða til að starfsemi geti farið fullt í húsinu. Friðbjörn segir að eftir sem áður hafi engar breytingar átt sér stað frá því að Höllinni var lokað á sínum tíma og hávaðamengun verður sú sama og áður. Hann bendir einnig á að brunavörnum sé ábótavant að því leytí að útgangur út á svalir hússins sé brunavarnaútgangur en það vanti svo stíga eða tröppur tfi að komast niður af svölunum. Sigurður Smári Benónýsson, byggingarfulltrúi í Eyjum, segir hvað þetta varðar að lokaúttekt hafi ekki farið frarn á húsinu en hún standi fyr- ir dyrum. „Þetta atriði mun að sjálf- sögðu koma til skoðunar í þeirri út- tekt," segir Sigurður Smári en vísar að öðru leytí á Berg Elías Ágústsson bæj- arstjóra til svara fyrir framtíð Hallar- innar. Bergur svaraði ekki skilaboð- um frá DV í gær. Til eru tvær viðamiklar úttektir á ástandi Hallarinnar, annars vegar frá Línuhönnun og hins vegar frá Rann- sóknarstofnun byggingariðnaðarins. Samkvæmt þeim þarf að eyða tugum milljóna króna til að hljóðeinangra húsið á raun- hæfan hátt og gera aðr- ar nauðsyn legar end- urbætur á því.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.