Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2006, Síða 21
Helgarblaö DV
MIÐVIKUDAGUR 12. APRlL 2006 21
V" ið erum mjög samstíga í
okkar lífi og það hefur
gengið vel hjá okkur," seg-
ir Felix Bergsson leikari
um samband hans og sambýlis-
manns hans, Baldurs Þórhallsson-
ar. Leikaratitillinn er aðeins einn af
fáum titlum sem Felix hefur unnið
sér í gegnum tíðina enda hefur
hann verið áberandi í íslensku sam-
félagi um langt skeið, eða allt frá því
hann sló í gegn í sýningu Verzlun-
arskólans snemma á níunda ára-
tugnum.
Síðan þá hefur hann unnið ötul-
lega í listalífi landsmanna. Allt virð-
ist einfaldlega leika í höndum hans,
sama hvort um er að ræða í leik-
húsi, sem söngvari einnar ástsæl-
ustu hljómsveitar landsins, sem
dagskrárgerðarmaður í mörgum
vinsælum þáttum eins og Popp-
punkti þar sem hann skemmti
landanum með fjörugum spurn-
ingaleik, og að ógleymdri Stundinni
okkar sem hann sá um ásamt
Gunnari Helgasyni í mörg ár.
Nýjasta verkefni hans á opinberum
vettvangi er þátturinn 6 til sjö sem
hann stýrir ásamt Guðrúnu Gunn-
arsdóttur á Skjá einum.
Felix kom út úr skápnum fyrir 15
árum og hefur síðan verið hrein-
skilinn um kynhneigð sína án þess
að flagga einkalífi sínu. Hann er
giftur Baldri Þórhallssyni stjórn-
málafræðingi og báðir eiga þeir
börn úr fyrri samböndum sem þeir
hafa lagt rika áherslu á að rækta
gott og heilbrigt fjölskyldulíf með.
Aftur á æskuheimilið
„Okkur Baldri og börnunum leið
mjög vel á Vesturgötu þar sem við
bjuggum en svo kom að því að for-
eldrar mínir fóru að hugsa sér til
þannig að ég bý á íslandi og hér búa
bömin mín og því er ég hér," segir
Felix en hann og Baldur eiginmað-
ur hans hafa þó sterk tengsl til fleiri
landa en íslands og dvelja löngum
stundum utan landsteinanna.
„Við höfum skipulagt tíma okkar
þannig að við getum verið mikið í
útlöndum. Við vorum báðir við
nám erlendis og höfum tengingar
við ýmsa staði utan íslands sem við
höfum leitast við að rækta. Það
hefst alveg því við höfum einbeitt
okkur að því að ferðast fremur en
að hlaða veraldlegum hlutum í
kringum okkur,“ segir Felix.
Get farið þangað sem
hugurinn og hjartað stefnir
Felix hefur verið mjög afkasta-
mikill og komið víða við innan
skemmtana- og listabransans.
Hann gerir samt lítið úr dugnaði
sínum og útskýrir fjölda viðkomu-
staða sinna með því að hann sé ein-
faldlega þannig gerður að honum
þyki gott að vera hreyfanlegur - allt
eftir því hvernig liggi á honum
hverju sinni.
„Mér finnst mjög gefandi að geta
farið þangað sem hugurinn og
hjartað stefnir hverju sinni og tel
mig mjög lánsaman að geta leyft
mér það. Það er líka eitt af þeim at-
riðum sem gerir það að verkurn að
ég getið verið mikið í útlöndum því
ég hef tök á því að taka verkefnin
með mér og vinna að þeim þótt ég
sé staddur í París,“ segir Felix og
tekur heilshugar undir spurningu
blaðamanns um hvort að hann lifi
ekki draum hversdagsmannsins.
„Þetta er í rauninni algert draumalíf
en ég er svo heppinn með fólkið
sem stendur mér næst að það hefur
skilning á öllum þessum bægsla-
fyrirkomulag hafi ekki gert þeim illt,
frekar orðið til þess að breikka sjón-
deildarhring þeirra, auk þess sem
þau hafa haft fleiri fullorðna ein-
staklinga til að leita til.“
Aðskilnaðarstefna er aldrei
góð
Þeir Felix og Baldur giftu sig á
gamlársdegi árið 1999 í Loftkastal-
anum. „Fólk vissi ekkert í hvað
stefndi heldur kom bara til veislu
sem við höfðum boðið í og svo voru
allir reknir inn í sal þar sem vinir
okkar tóku á móti þeim með
skemmtunum á sviðinu. Meðal
annars strippaði Gunni Helga þar
og það verður lengi í minnum haft,“
segir Felix og hlær við tilhugsunina
um þennan merkisdag.
Hann segir ekki hafa komið til
greina fyrir sig og Baldur að gifta sig
innan vébanda Þjóðkirkjunnar þótt
þeir hefðu átt þess kost. „Ég er ekki
meðlimur í henni. Það er nokkuð
síðan ég gekk mjög hamingjusam-
lega úr henni og ætla mér að halda
því þannig," segir Felix en tekur þó
skýrt fram að hann telji að Þjóð-
kirkjan eigi að koma til móts við þá
sem vilja staðfesta sambönd sín þar
hvort sem þeir eru samkynhneigðir
eður ei og viðurkenna þau. „Kirkjan
hefur dregið lappirnar í þessum
málum en það liggur á að klára þau.
Aðskilnaðarstefna er aldrei góð, í
henni eru engar málamiðlanir.
Annað hvort er fólk hlynnt aðskiln-
aðarstefnu eða á móti henni, svo
einfalt er það,“ segir leikarinn og
ijölskyldufaðirinn með áherslu.
Hjartans mál
Felbc hitnar ögn í hamsi þegar
þessi mál ber á góma enda mikil
hjartans mál sem um er rætt í bók-
„Við Baldur kynnt-
umstárið 7 996 /
gegnum Samtökin
„78. Mér fannst hann
svo æðislegur en
þorði lengi vel ekki að
tala við hann. Það
endaði nú samt með
því að við tókum tal
og síðan þá höfum
við íraun ekki hætt "
fáum við loks réttinn til frumætt-
leiðinga og lesbíur til að fara í
tæknifrjóvgun. Þessi mál eru nátt-
úrlega búin að vera gersamlega
absúrd. Þá sérstaklega þegar maður
fylgist með umræðunni um hvort
við erum hæfar ijölskyldur þegar
við erum fyrir löngu orðin að ijöl-
skyldum," segir Felix og hvernig er
annað hægt en að taka undir með
málflutningi hans.
„Þannig er það alltaf spurning
um hvenær samfélagið ætlar að
fara að taka tilveru okkar í sátt í stað
þess að reyna stjórna því hvernig
við lifum lífi okkar.
Við munum halda áfram að
eignast böm hvort sem öðmm líkar
betur eða verr og því er löngu kom-
inn tími til að samfélagið og löggjaf-
inn fari að taka þátt í því og hlúa að
þessum fjölskyldum eins og öðmm
ijölskyldum þessa lands. Ef það er
alltaf verið að halda okkur einhvern
veginn niðri og segja okkur og okk-
ir, það er ástæðan fyrir því að
svona hátt hlutfall fjórtán ára
barna fermist og það er ástæðan
fyrir því að svona margir eiga erfitt
með að koma út úr þessum marg-
umrædda skáp. Það er einfaldlega
svo erfitt að ganga í hina áttina
þegar öll norm ganga út á eitthvað
annað en þú ert sjálfur," segir Felix
og bendir á að þetta valdi því að
samkynhneigðir hafi ekki síst
minni fordóma fyrir sjálfum sér en
aðrir. Þeir gagnkynhneigðu þurfa
ekki að hugsa um þessi mál frekar
en þeir vilji og nenni á meðan sama
mái sé stórmál fyrir hinn samkyn-
hneigða. „Þess vegna þarf fræðslan
stöðugt að vera í gangi svo fólk átti
sig á því að tilfinningar þeirra eru í
lagi þótt þær tilheyri ekki þeim
stöðlum sem alls staðar er haldið á
lofti," segir Felix með festu.
Langskemmtilegasti
fjölskyldufaðirinn í
Vesturbænum
Blaðamaður finnur til hálfgerðs
samviskubits yfir því að hafa leitt
viðmælanda sinn inn í þessi um-
ræðuefni enda hefur Felix frá svo
mörgum öðrum hlutum að segja
en tilfinningum sínum. Um þessar
mundir er hann og tónlistarmaður-
inn Dr. Gunni í óða önn við að
leggja drög að bamasöngleik sem
ætlunin er að sýna í byrjun árs
2007. Það er langur tími en eins og
kunnugir vita er aldrei of snemmt
að láta sig hlakka til að sjá verk úr
pottum þeirra kumpána.
„Ég held að það verði fyrir börn
á öllum aldri, hvort sem þau em
fjögurra ára eða níræð," segir Felix
fremur dularfullum rómi og gerir
blaðamann enn forvitnari fyrir vik-
ið og er fljótlega neyddur til að lýsa
hreyfings og það varð úr að við
ákváðum að kaupa húsið þeirra,"
segir Felix sem viðurkennir að það
hafi verið undarlegt að koma aftur
inn á æskuheimilið. „í rauninni
upplifði ég flutningana í fyrstu sem
hálfgerða byrði og oft sagði ég við
Baldur að mig langaði bara aftur
heim, og meinti þá á Vesturgötuna.
Þetta hús skipti mig og fjölskyldu
mína samt miklu máli og ég gat ekki
hugsað mér að það færi úr fjöl-
skyldunni," segir Felbc og kímir við
tilhugsunina.
Hann segir breytingarnar á hús-
inu þó ekki hafa tekið á sig. „Ein af
forsendunum fyrir því að við
ákváðum að kaupa þetta hús af
mömmu og pabba var sú að við
höfðum ákveðnar hugmyndir tun
hvernig við vildum hafa það. Við
tókum okkur svo góðan tíma að
gera það að okkar og nú li'ður okkur
afskaplega vel þarna. Útsýnið er
frábært og þetta er í alla staði ynd-
islegur staður - ef maður lætur flug-
umferðina eins og vind um eyru
þjóta!"
Á íslandi og í höfuðborg
leikhúsanna
Felix hefur ætíð verið eftirsóttur
leikari og þá ekki síst í söngleikjum
og barnaleikritiun. Hann er einn
fárra íslenskra leikara sem hefur
haft fremur reglulega viðkomu á
Qölum leikhúsa Lundúnaborgar,
höfuðborgar leikhúsanna, en nú
hefur orðið nokkuð hlé á sviðsfram-
komu hans þar á bæ.
„Maður velur sér alltaf leiðina í
sinn karríer og ég hefði svo sem get-
að haldið áfram við að elta það að
verða leikari og listamaður í leik-
húsum Lundúna, en það er nú
gangi í mér," svarar hann brosandi.
Ástæðan fyrir hamingjunni
Blaðamaður er farinn að skilja
ástæðuna fyrir því hvers vegna það
er alltaf svona bjart yfir Felbc. Hún
er ekki sú að hann sé þaulæfður í að
koma fram heldur sú að hann er
einfaldiega afar lánsamur maður,
ekki eingöngu vegna þeirra góðu
náðargjafa sem hann fæddist með
og ræktaði, heldur einnig hve hann
á góða að.
„Við Baldur kynntumst árið
1996 í gegnum Samtökin 78. Mér
fannst hann svo æðislegur en þorði
lengi vel ekki að tala við hann. Það
endaði nú samt með því að við tók-
um tal saman og síðan þá höfúm
við í raun ekki hætt," segir Felbc og
brosir við upprifjunina um kynni
sín af lífsförunauti sínum.
„Við höfum alla tíð verið sam-
stíga og notið þess að vera saman,"
segir Felix en hann og Baldur hafa
einnig alltaf haft börnin sín, þau
Álfrúnu Perlu sem nú er að fermast
og Guðmund, sextán ára, hjá sér til
helminga á móti mæðrum þeirra.
„Þetta eru bara stórglæsilegir
krakkar og manni fallast eiginlega
hendur þau eru svo ótrúleg," segir
Felix og það er ekki annað hægt en
að hlýna einnig um hjartarætur
þegar hann minnist á þau.
„Þau hafa verið að leika í West
Side Story í Hagaskóla að undan-
fömu þannig að ég held því oft fram
að ég hafi unnið í uppeldinu þar
sem þau eru bæði komin í leiklist-
ina," segir Felix í spaugi.
„Þau er bara einstaklega vel gerð
börn og við höfúm alltaf lagt okkur
fram um að veita þeim gott heimili.
Það er ekki annað að sjá en að þetta
„Ég er ekki perri eða
öfuguggi. Ég er fjöl-
skyldufaðir úr Vestur-
bænum, gefbörnun-
um mín hafragraut og
sendi þau í skólann."
staflegri merkingu. Hann tekur þó
skýrt fram að honum finnist mál-
efni Þjóðkirkjunnar í tengslum við
viðurkenningu á sambúð samkyn-
hneigðra hafa fengið alltof mikla at-
hygli. „Biskup hefur verið of frekur
á athyglina í því og orðið sér til mik-
illar minnkunar en framganga hans
mun lifa hans dag og áramótaræða
hans verður lengi í minnum höfð,"
segir Felix en vindur sér því næst í
það sem hann telur stóra málið
þessa dagana.
„Stóra málið er það að íslenskt
samfélag er tilbúið að samþykkja
samkynhneigða sem fjölskyldur.
Það skiptir mig sem tveggja barna
föður miklu máli. Er ekki tími til
kominn að þeirra fjölskylda sé við-
urkennd eins og annarra?"
„Við erum löngu orðin að
fjölskyldum"
„Mér finnst það sem helst skipt-
ir máli um þessar mundir vera þær
breytingar sem eru að verða á hög-
um samkynhneigðra í gegnum þær
breytingar á lögum sem ræddar
hafa verið á þinginu. Þær Guðrún
ögmundsdóttir og Kolbrún Hall-
dórsdóttir hafa gengið fram með
miklum ágætum og í raun þing-
heimur allur. Mér skálst að þetta sé
nú afgreitt úr allsherjameftid og þar
ar börnum að við séum ekki alveg
æskilegar fjölskyldur verðum við
alltaf undir," segir Felix en tekur þó
fram að sem betur fer séu þessi mál
að breytast.
Ekki perri eða öfuguggi
Hann telur að yngra fólk skilji
vart lengur um hvað málið snúist
og hvernig sé hægt að gera svo
mikið mál úr engu. Þó tekur hann
fram að alltaf sé þörf á að halda
umræðunni um málefni samkyn-
hneigðra gangandi í samfélaginu.
Af þeirri ástæðu hefúr hann unnið
ötullega að því að kynna þessi mál
fyrir ungu fólki og haft viðkomu á
fjölda staða vegna þess. „Það er
ekki alltaf auðvelt og auðvitað kær-
ir maður sig ekkert alltaf um að
ræða sín einkamál við bláókunnugt
fólk í framhaldsskólum eða hvar
sem er. Mér finnst samt nauðsyn-
legt að ganga fram fyrir skjöldu og
segja „Horfið á mig". Ég er ekki
perri eða öfuguggi. Ég er fjöl-
skyldufaðir úr Vesturbænum, gef
börnunum mín hafragraut og
sendi þau í skólann. En tilfinninga-
lff mitt er þannig að ég verð ást-
fanginn af körlum en ekki konum
og það er það eina sem ég er að
segja ykkur eða biðja ykkur um að
samþykkja. Ég ætla ekki að verja
það á nokkurn máta því svona er ég
bara," segir Felix og bætir við að
þessi mál séu á góðri leið. Málefni
hjartans séu eitthvað sem allir
þekki þótt gagnkynhneigðir þurfi
ekki að útskýra þau fyrir öðrum
enda falli þau að þeim normum
sem samfélagið hefur ákveðið.
Gengið gegn normunum
Við viljum vera eins og allir hin-
efnistökunum í stuttu máli. „Okkur
langaði að gera verk sem gerðist á
þeim tíma þegar við vorum strákar,
það er að segja í kringum 1975. Það
var ýmislegt að gerast á þessum
árum, göturnar voru ekki malbik-
aðar og börn léku sér meira úti en
nú tíðkast. Verkið byggir á barna-
plötu Dr. Gunna, Abbababb. Það
verður sem sagt heilmikil nostalgía
í þessu, lifandi tónlist og skemmti-
legheit," segir Felbc en útskýrir að
líklega sé ekki við hæfi að gefa fleiri
fögur fyrirheit að svo stöddu. Nú sé
miklu frekar við hæfi að líta til þátt-
arins 6 til sjö sem hann og Guðrún
Gunnarsdóttir fjölmiðlakona sjá
um á Skjá einum um þessar mund-
ir.
„Ég er enn á ný afskaplega
heppinn með samstarfmenn og hef
hugsað mér að vera í þessu verk-
efni lengur, þó svo að sjónvarpið sé
afskaplega frekur miðiÚ," segir Fel-
bc og brosir glettnislega. „Eg held
að þeir á Skjá einum fari að sækja
mun meira að Stöð 2 eftir því sem
tíminn liður og mér þykir margt
spennandi að gerast. Þessi fjöl-
miðlasirkus er langt frá því liðinn,"
segir hann svo að lokum með spá-
mannslegum rómi.
Hvað sem öllum spádómum
líður, þá er samt eitt víst og það er
að Felix á eftir að halda áfram að
skemmta fólki, hvort sem það verð-
ur á fjölum leikhúsa, í gegnum
skáldverk, sjónvarp, söng eða
hverju því sem hann á eftir að taka
sér fyrir hendur í framtíðinni.
Hann er og verður langskemmti-
legasti fjölskyldufaðirinn í Vestur-
bænum.
karen@dv.is