Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2006, Síða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2006
Helgarblað DV
00
5 ARA BORN UM PASKANA:
Jesfis ffir til himna í
OG ALLIR FÖSTUDAGAR ERUJAFN LANGIR
Páskahátíðin gengur í garð. Heimili eru skreytt með páskalilj-
um og páskaskrauti og börn bíða spennt eftir páskaeggjunum
sínum. En hversu mikið vita böm um þessa mestu hátíð krist-
inna manna, núna þegar svo rík áhersla er lögð á trúfrelsi að
lítið ef nokkuð er rætt um kristni við lítil börn? Á leikskólanum
Dvergasteini við Seljaveg biðu nokkur fimm ára börn eftir
blaðamanni Helgarblaðs DV, reiðubúin að segja frá því hvað
gerðist um páskana. Þau heita Dagur Ari Kristjánsson, Dagbjört
Arthúrsdóttir, Jóhann Axelsson, Þórdís Halldóra Sigurðardóttir
og Hákon Elliði Arnarson:
„Um páskana dó Jesús ekki, hann
var bara krossfestur," segir Dagur
Ari. „Það komu þrír hermenn og
krossfestu hann.“
Afhverju?
„Ég skil ekki af hverju, ég var ekki
til í gamla daga.“
Jóharrn er sammála Degi um
fjölda hermannanna, sem hann seg-
irhafa komið tii að taka Jesúm fastan
og drepa hann:
„Þeir ætluðu að loka hann inni
með stórum steini," bætir Dagur við,
„en þá kom engill, ýtti steininum frá
og hermennimir duttu niður og
dóu.“
„Jesús var krossfestur af því að
sumir vom svo vondir menn og þeir
lcrossfestu hann bara út af því,“ segir
Hákon Elliði.
Kindalæri, vín og öl
Áður en að þessu kom muna þau
að Jesús og vinir hans sátu við
kvöldmatarborð:
„Hann ætlaði að fara frá vinum
sínum og kveðja þá,“ segir Þórdís,
„en fyrst ætlaði hann að þvo fæturn-
a á þeim. Svo kom hann aftur."
Dagur er ekki alveg sammála
þessu: „Nei, hann kom ekkert aftur.
Hann gat hitt þá á himninum."
Hvað borðuðu þeir í þessari
veislu?
„Læri af kind." Um það em þau
öll sammála nema Dagur bætir við
að hann haldi að þeir hafi borðað
kartöflur með „og svona eins og við
fáum, baunir og svoleiðis.“
En hvað drukku þeir með matn-
um?
„Vín“, svara þau öll nema Hákon
Elliði sem svarar umhugsunarlaust:
„öl" og ein fóstran segir mér síðar
að Hákon Elliði hafi búið í Dan-
mörku og hafi auk þess gríðarlegan
áhuga á víkingatímabilinu þegar
menn drukku öl úr hornum að hans
sögn.
„Hann var með matarboð og ég
held að einhver vinur hans hafi svik-
ið hann," segir Hákon Elliði. „Ég veit
ekki alveg hver það var. Ég veit ekk-
ert hvað þeir vom að borða, ábyggi-
lega kjöt og drukku öl með matn-
um.“
Afhverju haldið þið hin að þeir
hafí drukkið vín?
Það er Dagur sem svarar:„Af því
að svona menn drekka svo oft vín."
Hvernig vissu hermennirnir hvar
Jesús var?
„Þeir bara komu, þeir vom að
leita að honum. Ég held að það hafi
verið svikari sem sagði hvar hann
var."
Vitið þið hvað svikarinn hét?
„Nei."
Hann hét Júdas.
„Júdas? Það er nú skrýtið nafn!“
segja þau og hlæja.
Ekki til jakkaföt í gamla daga
Vitið þið hvernig Jesús og læri-
sveinarnir voru klæddir?
„Já, þeir vom í röndóttum fötum.
Jesús var í grænum og gulum bún-
ingi. Hann var samt mest grænn
með einhverjum gulum svona lauf-
blöðum á. Svo var hann með eitt-
hvað hvítt í hárinu. Fötin hans vom
eiginlega bara kjóll."
„Já, þetta var svona skrýtinn
kjóll, eins og fermingarkjóll, bara
ekki hvítur," bætir Þórdís við.
Finnst ykkur skrýtið að þeir hafí
ekki verið íjakkafötum?
Nú skellihlæja þau og líta á mig
eins og ég sé eidd í lagi:
„Jakkafötum?! Þetta var í gamla
daga og þá voru ekki til jakkaföt!"
En hvers vegna vildu hermenn-
irnir krossfesta Jesúm. Hafði hann
gert eitthvað afsér eða sagt eitthvað
sem þeir vildu ekki?
„Nei, nei, þeir vildu bara drepa
hann. Það var bara lygarinn sem
sagði eitthvað um Jesúm. Og her-
mennirnir tóku Jesúm fastan, hinn
kjaftaði frá. En Jesús dó ekki. Sálin
hans fór í himininn."
íhverju var Jesús á krossinum?
„Hann var í einhverju hvítu..."
„Nei, nei, það er mynd heima hjá
mér þar sem hann er í einhveiju
bláu."
„Þegar hann var krossfestur þá
var hann með hausinn niður og í
einhverju hvítu og bundið svona
hvítt hérna," segja þau og benda á
mittið. „Svo negldu þeir nagla á fæt-
urna og hendurnar og alls staðar
bara. Hann var með svona axlarhár
og skegg."
„Á krossinum var hann í hvítum
fötum, ég man það alla vega," segir
Hákon Elliði og bætir við: „Hann var
ekki i skóm. Svo var hann settur inn
ígröf."
Átti hann ekki mömmu og
pabba?
„Jú en þau voru á himninum. En