Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2006, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2006, Qupperneq 42
42 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2006 Helgarblað DV Valur Gunnarsson skrifar um ævintýri sín á finnskri grundu. Að þessu sinni er hann staddur á stað þar sem bannað er að reykja, ganga í stuttbuxum og tala eftir klukkan níu á kvöldin og veltir hann því fyrir sér hvort sögur um samkynhneigð munka eru sannar eður ei. „Bannað að reykja. Bannað að vera í stuttbuxum. Bannað að tala eftir kl. 9 á kvöldin." Að mörgu leyti er lífið í klaustrinu ekki mikið öðruvísi en lífið annars staðar í Skandinavíu. Veturinn tórir leng- ur í Karelíu, sem er langt inni í landi, en hann gerir niðri við sjöinn í Helsinki. Það er enn mínus 20 á kvöldin, og því veldur stutt- buxnabannið ekki teljandi erfiðleikum. Ekki heldur talbannið. Ég er staddur þarna hvorki til að drekka né tala heldur til að skrifa. Munkarnir brugga reyndar ágætis vín og eru flestir fremur kringlóttir að sjá, rétt eins og Tóki munkur í sögunum. Þeir eru einnig með eigin bakarí og eldhús. Kannski bæta þeir sér upp kynlífsskortinn með að ein- beita sér að öðrum nautnum. Það þarf þó ekki endilega að vera, eins og ég mun seinna komast að. Allir dagar eru sunnudagar En vínið verður áfram í flöskun- um hvað mig varðar, lítið varð úr skrifum í Pétursborg og útgefendur eru farnir að kvarta yfir seinagang- inum. Því þarf að grípa til örþrifa- ráða og leita á náðir Guðs, vika af sunnudögum til að bæta upp fyrir heilan mánuð af laugardögum. Mér finnst eins og ég sé farinn að lifa lífi næturvarðar eða sjómanns, vika af yfirvinnu og svo vika á barnum, enda eru líklega allir ísiendingar túramenn innst inni. En reykbannið tekur á, jafnvel heilagur andi er enginn staðgengill fyrir eiturgufurnar sem Altadis Fin- „En reykbannið tekur 4 jafnvel heHagur andi er enginn stað- gengiil fyrir eiturguf- urnar sem Altadis Fin- land Oy framleiðir." land Oy framleiðir, seldar í aðlað- andi bláum og hvíturn pakkningum sem segja manni nákvæmlega hvernig þær drepa mann á bæði finnsku og sænsku. Að sjá ekki drottinn fyrir trjánum Ég hverf út í skóg nokkrum sinn- um á dag þar sem trén byrgja himn- unum sýn, enda kristnuðust skóg- arþjóðir seinna en aðrar. Þetta er eina skiptið yfir daginn sem ég fer út úr herberginu, fyrir utan guðs- þjónusturnar. Þær eru tvisvar á dag, kl. sex og sex. Ég kíki á kvöldin en enginn máttur, hvorki mannlegur né almáttugur, getur dregið mig úr Valur Gunnarsson Hefur brotið bindindisreglu klaustursins. rúminu kl. 6 á morgnana. Ábótinn segir mér að þeir kjósi heist menn í góðu formi til að ganga í klaustrið, þar sem standa þurfi fjóra tíma á dag undir messum. Sumir koma langt að til að krjúpa fyrir þessu ósýnilega afli sem öllu á að ráða, en ég kýs frekar að standa. Tíminn liðast í burtu eins og sígarettureykur Síður eru svertar og sígarettur svældar, en hraðar gengur á þær síðarnefndu. Einhvers staðar niðri í tösku er heill bakki af nicorette- stautum sem ég hafði verið svo for- sjáll að taka með. Fötin dreifast um gólfið en stautarnir finnast á end- anum. Skrifin geta haldið áfram, en nú er tímapressan orðin tvöföld. Kaflinn þarf að klárast áður en bæði þolinmæði útgefanda og stauta- skammturinn eru á þrotum. Að lok- um verður ekki meira gert, ég fæ mér glas af víni munkanna og sný aftur í siðmenninguna. Þar sem tó- baksbúðirnar eru, þar sem barirnir eru. Frá sjónarhóli klaustursins lít- ur Joensuu, höfuðborg finnsku Kar- elíu og tvíburabær ísafjarðar, út eins og stórborg. Áframhaldandi ævintvri skíðastökkvarans drykk- feljda í bænum frétti ég að það er búið að loka fyrrum skíðastökkvarann og stripparann Matti Nykanen inni fyr- ir að berja konuna sína, pulsu- prinsessuna frá Tampere. Hann sat síðast inni fýrir nokkrum árum fyrir að stinga sextugan mann, en bar því við að hann hafi ekki ætlað að drepa hann. Enda hafði það ekki tekist hafi það verið ætlunin. Pulsuprinsessan mun líklega grenja hann lausan áður en langt um líður, og ævintýri þessa and-Beckhams og Posh Spice Finnlands munu halda áfram. Kátir klaustursveinar Ég heyri einnig sögur af samkyn- hneigðu saurlífi munkanna í kfaustrinu, enda hafa slíkar sögur verið sagðar síðan á tímum de Sade og líklega mun lengur. Ég veit ekki hvort þær eru tilkomnar vegna van- trausts á orþódoxtrúnni, sem þykir kannski hættulega rússnesk, eða hvort þær eru sannar, en líklega er vandfundið það samfélag þar sem svo mikil ró ríkir að menn þurfa ekki stanslaust að vera að fá það. Að minnsta kosti myndi það setja aug- lýsingu ábótans eftir hraustum mönnum í annað samhengi. Ég held aftur til Helsinki þar sem barirnir eru fleiri, áður en næsta vinnutörn byrjar. Til þess þarf ég að halda út í skóg, að höggva við og hugsa um ketti. Og halda svo áfram með skrudduna, sem étur upp meiri tíma og peninga en jafnvel kröfu- harðasta kærasta myndi láta sér detta í hug. Og heimtar stöðugt meira.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.