Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2006, Side 44
-+
44 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2006
Neytendur DV
Neytendur
Páskaeggin eru eitt helsta kennileiti páskanna. Píslarvætti frelsarans má sín lítils
í samkeppni við páskaeggin um athygli ungviðisins, enda er hefðin fyrir að gefa
börnunum egg úr súkkulaði löngu staðfest á íslandi. Við ákváðum að fá nokkra
matsmenn til að athuga gæði eggjanna sem verslanir bjóða upp á og benda á hvert
þeirra kæmi best út. Þau rifjuðu upp spennu æskunnar og barnið í þeim náði
yfirhöndinni þegar eggin voru smökkuð.
Þau þrjú sem völdust til að bragða á páskaeggjunum koma úr
mismunandi áttum. Sérfræðingurinn í hópnum var áreiðanlega
konfektgerðarmeistarinn Ásgeir Sandholt, en hann hefur numið
konfektgerð um árabil og starfar í Sandholt bakaríi. Til að hafa
ekki einhliða dóma á eggin fengum við þau Þórhildi Jónsdóttur,
yfirkokk á Fjalakettinum í Reykjavík og Sigurð Ragnarsson, öðru
naíni Sigga storm, veðurfréttamann á NFS, til liðs við okkur.
„Það er eins og botnin sé ekki
jafnþykkur og áður,“ segir Þórhild-
ur sem saknar þess tíma þegar
bominn entist langt fram yfir páska.
Ásgeir útskýrði að ástæðuna væri að
finna í öðrum mótum sem fram-
leiðendur nota núna.
„Héma áður fyrr vom þeir með
stálform, en nota nú eingöngu plast
til að móta eggin. Það er mun auð-
veldara að vinna eggin í plast-
formunum, enda geta vélamar séð
um að snúa þeim," segirÁsgeir.
Dómaramir þrír vom sammála
um að framleiðendumir mættu
huga að formbreytingum á eggjun-
um.
„Það em reyndar komin ný form
á markaðinn, eins og til dæmis
hjartalaga eggin frá Nóa Síríus,"
* segir Ásgeir, sem finnst gömlu
formin vera orðin heldur leiðigjöm.
Ölium finnst þeim Rís-eggin frá
Freyju vera ágætis nýjung á mark-
aðnum og brjóta upp ákveðnar
hefðir í súkkulaðinu.
„Þeir hafa tekið uppá-
haldssúkkulaðið mitt og breytt því í
páskaegg," segir ÞórhUdur.
Súkkulaði eða sælgæti?
„Það er stór munur á súkkulaði
og sælgæti," segir súkkulaðisér-
fræðingurinn Ásgeir. Hann segir að
til þess að súkkulaði megi kaUast því
* nafiii þurfi það að innihalda lág-
markshlutfali kakómassa, annars
megi það ekki kaUast súkkulaði.
„Það sem við erum að bragða á
núna er því sælgæti, en ekki
súkkulaði í raun," segir Ásgeir, sem
hélt áfram að útskýra muninn af
nákvæmni og ástríðu, en að sinni
verður ekki farið nánar út í þá sálma
hér.
Framkvæmdin
TU að fá sem nákvæmasta niður-
stöðu á bragðkönnun sem þessari
var þess gætt að þremenningamir
vissu ekki frá hvaða framleiðanda
eginn vom. Innihaldið var tekið úr
eggjunum, það vegið og sett tíl hlið-
ar. Eftir að dómarar höfðu bragðað
og spjaUað um eggin gáfu þau
dóma á útlit þeirra. Að endingu
vom málshættimir lesnir upp og
andlegt innihald þeirra metið. Egg-
in komu frá framleiðendunum
i Góu, Nóa Síríus og Freyju. Könnuð
vom egg á þyngdarbilinu 350 til 550
grömm og athugað hvort raun-
þyngd væri ekki í samræmi við upp-
gefna þyngd. Athyglisvert er að allir
framleiðendumir bættu um tíu
prósentum við þyngdina í reynd.
Einkunnagjöf er miðuð við
bragðprófun á súkkulaðinu sjálfu,
en ekki niat á málshætti né útlit. Að
lokum gáfu dómarar einkunn á bil-
inu einn til tíu.
Besta eggið frá Nóa
Þrátt fyrir að dómamir séu mjög
jafnir em allir dómaramir sammála
um að páskaeggin frá Nóa Síríus
séu best meðal jafrtingja. Ástæðuna
telja sumir vera að bragðið sé búið
að festa sig í bragðlaukum þjóðar-
innar og því fái fátt um ráðið.
Dómaramir telja þó að fram-
leiðendur mættu huga að því að
leggja meiri áherslu á súkkulaði-
bragðið í framtíðinni.
„Ég held að fúllorðna fólkið vilji
frekar þannig egg," segir Sigurður
sem skilur þó vel að eggin séu eins
og þau em þar sem aðallega sé lögð
áhersla á unga bragðkirtla.
Málshættirnir
Að sjálfsögðu vekja málshættir
eggjanna athygli og uppskera mis-
jafita ánægju dómara. Einn þeirra
telur sig hins vegar vera vanhæfan
til að sitja í dómarasæti um máls-
hætti.
„Það em aðrir hlutir sem ég
kann betur að leggja mat á en ís-
lensk tunga," segir Ásgeir og hlær
við. Sigurður tekur hins vegar glað-
ur hlutverkið að sér og segir máls-
hátt eggsins frá Góu eiga ágætlega
við; „Bragð er að þá bamið finnur."
„Við getum ekki öll verið ung og
vitað allt," stendur á miðanum frá
Freyju. Sigurður segir þetta vera
„bull og rökleysa," og finnst að hug-
suðimir hjá framleiðanda mega
leggja aðeins meiri vinnu í máls-
hættina héðan af, þar með talið
pappírinn sem orðin em rituð á.
„Jöfnum þykir best saman að
búa,“ segir málshátturinn frá Nóa
Síríus og telur Sigurður margt vera
til í þeim orðum. „Það skyldi þó fara
varlega í að fullyrða um þannig
hluti," segir hann, en líklegast liggur
það í hlutarins eðli.
haraldur@dv.is
Flott skreytt egg frá Góu „Mættu huga
að því að endurnýja formin hjá sér'segir
Slgurður.
Góa nr. 6:
Uppgefin þyngd: 530 g.
Raunþyngd: 554 g.
Þarafinnihald: 214 g.
Freyja býöur upp á Rfsegg Dómarar
segja nýjungina frá Freyju vera skemmtilega
tilbreytni og jafnvel fordæmisgefandi.
Freyju Rísegg nr. 9:
Uppgefin þyngd: 475 g.
Raunþyngd: 517 g.
Þar af innihald: 245 g.
Nói Sfríus fær hæstu einkunn Sumir teija
það vera vegna þess að bragðið sé búið að
festa sig I sessi meðal þjóðarinnar.
Nói Síríus nr. 5:
Uppgefin þyngd: 435 g.
Raunþyngd: 473 g.
Þar af innihald: 170 g.
Sigurður:
„Þetta er býsna fallegt egg þrátt fyrir að
unginn sé eineygður. Það er reyndar full-
sætt fyrir minn smekk, en ég býst fastiega
viðað krakkarnir mínir myndu elska það.
Það er svoldið gróft eða kornótt - svona
eins og maður fínni fyrir mjóikurduftinu.
Fullmikill vanillukeimur afþessu, en mér
fínnst ég lika fínna lakkrlsbragð afþvl, er
það einhver vitleysa hjá mér?“
Ásgeir:
„Ég finn ekki lakkrísbragðið sem Siggi
finnur, en get vel tekið undir að það er
sætt. Ég upplifi eiginlega bara sætu, en
ekkert bragð. Það er pottþétt að krakk-
arnir flla þetta, en alltofsætt fyrir mig.
Innvolsið er mjög flnt hjá þeim, en þeir
mættu huga að þvi að endurnýja formin
hjá sér.því þetta ernæstum þvl ljótt.“
Þórhildur:
„Rjómi er þaö fyrsta sem kemur upp i
hugann. Það er miklu meira bragð af
rjóma en súkkulaði I þessu eggi. Ég er al-
veg sammála Sigga um að það er svoldið
kornótt, en ég held að það sé ekki mjólk-
urduftið. Fitan sest töluvert I gómnum á
manni. Það er hins vegar alveg hellingur
afnammi I þessu. Mér fínnst frábært að
unginn skuli vera með sólhatt. “
Meðaleinkunn: 5,6
Sigurður:
„Þetta er mjög gott egg og skemmtileg
nýjung, brýtur normið aðeins upp og ár-
angurinn er athyglisverður. Mér fínnst
samt svipaöur sætleiki vera I þessu og
fyrsta egginu. Það fellur ekki alveg að
m/num háþróuðu bragðlaukum. Það er
lika töluverður vanillukeimur afþessu og
mér finnst eins og ég bragði kókos í þessu.
Krakkarnir munu áreiðanlega gúffa þetta
I sig afáfergju."
Asgeir:
„Þetta er dæmigert fyrir ofnotkun á
essensum, sem eru aukaefni sem notuð
eru til að bragðbæta. Ég fæ nettan sviða I
hálsinn afþeim. Annars er ágætisbragð af
þessu, en það er dáldið ofsætt. Ég myndi
vilja sjá meira súkkulaðibragð afþessu
eggi, en nýjungin er snilld. Ég gæti vel trú-
að þeim til að selja helling afþessu."
Þórhildur:
„Mjög skemmtileg tilbreyting hjá þeim.
Þetta er tilvalið fýrir þá sem vilja öðruvísi
egg. Ætli þetta sé ekki bara Rls? Það er
reyndarmjög svipaður sætleiki og I fyrsta
egginu, dáldið yfirdrifið. Annars fínnst mér
þetta egg I flnu lagi, þótt ég væri til I
meira súkkulaðibragð.“
Meðaleinkunn: 6,3
Sigurður:
„Mér finnst betra bragð afþessu eggi, þvl
hitt var ofsætt fyrir minn smekk. Hérna er
miklu meira súkkulaðibragð og ekki þessi
grófleiki sem ég fann Ihinu egginu. Mér
finnst formið áþví hins vegar vera dáldið
gamaldags og unginn ekki jafn sætur og
á hinu. Það gæti vel verið að þetta sé
svona „almennt" bragð sem allir kunna
velvið."
Asgeir:
„Það er mjög sterkt vanillubragð afþessu
og töluvert meira súkkulaðibragð en af
hinu egginu. Það er áreiðanlega ööruvísi
fítal þessu en hinum, en það breytir þvl
ekki að munurinn er ekki mikill. Þetta er
samt flott egg, vel skreytt og fallegt. Þetta
er bragð sem hefur fest sig meðal þjóð-
arinnar."
Þórhildur:
„Þetta egg er rtiiklu léttara Imunniog
einhvern veginn þægilegra. Maðurþarf
ekki að hafa mikið fyrirað smakka það.
Það situr ekki mikil fíta eftir I gómnum,
óllkt hinu egginu og það er súkkulaðið er
óneitanlega bragðmeira I þessu. Ég gæti
vel trúað að þetta sé frá Nóa, þvl að þetta
er bragðsem ég kannast mjög vel við."
Meðaleinkunn: 7,7
I