Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2006, Side 62

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2006, Side 62
62 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2006 Siöast en ekki síst DV Kostakjör á kvartmila.is Á kvartmílu.is má finna dygga aðdáendur bíla og allt þeim tengt. Á vefnum ganga bílar kaupum og söl- um og oftar en ekki eru þeir auglýst- ir þar. Á síðunni má finna afar áhuga- verða auglýsingu þar sem segir i textanum að stuttur cruiser sé til sölu. Þar er sagt að allt í þeim jeppa sé upprunalegt og aðeins hafi ver- ið einn eigandi hingað til. Bíllinn ku pjwi vera keyrður 180 þúsund kílómetra og notar dísilolíu. Verðið er aðeins 200 þús- und krónur. í fyrstu hljómar þetta eins og reyf- arakaup enda ekki gengið að því vísu að fá notaðan jeppa með öllu upp- runalegu og þar að auki einungis keyrður 180 þúsund kílómetra. Eini gallinn við gjöf Njarðar er að meðfylgjandi mynd með auglýsing- unni sýnir einungis grindina und- an einhverju sem hugsanlega var jeppi í þátíð. Ekki er vitað hvort vit- laus mynd hafi verið sett inn af eig- andanum eða um grín sé að ræða en enginn vafi er á því að ekki eru það auglýsingasvik þegar sagt er að allt sé upprunalegt. Hvajl veistu um Italíu ¥ 1. Hvert er flatarmál ftalíu? 2. Hversu margir búa í landinu? 3. Hvenær er kjötkveðjuhá- 'Vfíðin í Róm? 4. Hvaða lönd eiga landa- mæri að Ítalíu? 5. Hversu mörg héruð eru í landinu? Svör neðst á síðu. (lagfræði Stormskers I hurðaleit nm alla Asíu Hvað segir mamma ? „Hún er rosalega eölileg stelpa og blátt áfram,“segir _ Ingibjörg Sigurðar- dóttir móðirHelgu Guðjóns- dóttursem sigraði i söngva- keppni framhaldsskólanna um helgina. „Hún er sisyngjandi, held að þetta sé bara I blóðinu. Ætli hún erfi ekki hæfileikana frá báðum foreldrum. Hún átti lika söngelskan afa sem hvatti hana. Hún erákaflega Ijúfog skemmtileg." *- Ingibjörg Sigurðardóttir er móðir Helgu Ingibjargar Guðjónsdóttur. Helga er fædd 17. desember 1987 og er hún í framhaldsskóla Vesturlands. Hún er búsett á Akranesi og sigraði I söngvakeppni framhalds- skólanna með laginu Vegas. Gott hjá Unni Birnu að hlúa að hinni alíslensku fimmtu gangtegund, töltinu, nú um helgina. . 301 þúsund ferkílómetrar. 2.57,5 milljónir manna. 3. (febrúar. 4. Austurríki, Frakklandi, Slóveníu og Sviss. S.Tuttugu. Undanfarin tvö ár hefur Sverr- ir Stormsker, tónlistarmaður, skáld og strigakjaftur, ferðast vítt og breitt um Asíu. Býr þar all sérstæð hag- fræði að baki. „Nei, ég er ekki alfluttur til Pattaya. Málið er að ég kom hing- að fyrir um níu mánuðum en fór í rauninni út með því augnamiði að kaupa hurðir og dótarí í húsið sem er í byggingu heima. Já, húsið sem brann suður með sjó," segir Sverrir í samtali við DV. Sverrir er nú staddur í Tælandi en eins og lesendur DV þekkja lágu leiðir þeirra Sverris og Geira á Gold- finger saman í Pattaya og var þá mikið grín, mikið gaman, eins og frá var greint í mánudagsblað- ínu. Og liggur vel á skáldinu í Asíu. Brussa í Breið- holti „Já, akkúratnúna er ég hér í góðum fíl- ing með hon- um Geira mínum. Hann er hel- Sverrir Stormsker Hefur á forsendum frumlegrar hagfræöi þvælst I tvö ár um Aslu en er væntanlegur eftir um tvo mánuði með söngleik í farteskinu. frískur," segir Sverrirsem hefur und- anfarin tvö ár flakkað vítt og breitt um Asíu. Og býr ákveðin hagfræði að baki því flakki. Sverrir er að endurreisa hús sitt og þegar fyrir lá tilboð frá smiði hér heima að útidyrahurðin ein, reynd- ar úr massívum viði, tekkhurð út- skorin, kostaði 800 þúsund krónur, lagði Sverrir dæmið fyrir sig þannig að bara sú hurð ein stæði undir góðu ferðalagi um Austurlönd. Og hurðin innifalin. „Þetta er afstætt. Menn halda að þær fjúki millumar hérna. En það er langt því frá. Hér kostar eitt viku- skrall með fimmtán kerlingum sama og kvöldstund með brussu í Breið- holti," segir strigakjafturinn og getur ekki stillt sig. Talinu er því umsvifa- laust beint aftur að hurðum og hag- fræði. Kominn í góð sambönd ytra Sverrir segir ódýrt að ferðast um Asíu. Og hann hefur farið til Víet- nam, Kína, Kambódíu og Tælands. „Kostar eins og strætóferð heima. Ég, er hér ekki múlbundinn á neinum einum stað. Enhefverið lengsthérna í Pattaya. Hér er umtalsvert ódýrara að kaupa hurðir en í Byko. Og hér eru þeir snillingar í öllu handverki. Ég ætla að hafa hurðirnar bogadregnar og útskornar. En þetta er ekki auð- fengið. Viðurinn verður að vera rétt- ur. Það er svo mikill rakamunur að ef ekki er vandað valið gætu hurðirnar sprungið í tætlur heima." Sverrir segist vera kominn í ágæt- is sambönd þar ytra og fúndið með- al annars konu sem ætlar að aðstoða hann að ffytja hurðirnar og fleira til fslands. „Græja þetta frá a til ö." linBWiwllMli Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finntandi MinnistöfUir FOSFOSER MEMORY Umboös- og söluaðili sími: 551 9239 www.birkiaska.is Birkiaska Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is BETUSAN Pattaya Þar unir Sverrir hag sínum vel en hann hefur notað timann og samið fyrir bæði Pálma Gunnarsson og Þorstein Eggerts efni i Asíu. Jólaplata með Pálma og Steina Eggerts Von er á Sverri til landsins í sum- ar. Eða strax og kofinn verður fok- heldur, sem verður eftir um tvo mán- uði. Með í farteskinu er Sverrir með splunkunýjan frumsaminn söngleik sem hann ætlar að kynna fyrir leik- húsunum. „Hann er glúrinn. Fjall- ar um þau skötuhjú Dolla prakkara og Evu Braun. Svo hef ég yerið að semja fyrir menn heima og senda. Til dæmis Pálma Gunnars sem ætl- ar að koma með jólaplötu. Og Þor- steinn Eggertsson sem á 40 eða 50 ára textaafmæli. Hann ætlar að vera með plötu líka. Ótrúlegt dæmi." jakob@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.