Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2006, Page 34
Fréttir DV
42 LAUGARDAGUR 6. MAÍ2006
Þótt öryggisgæsla í íslenskum fangelsum sé ekki sú strangasta í heimi er það fremur sjaldgæft að fangar strjúki
úr vistinni. Þeir fáu sem reynt hafa að flýja fangelsismúrana hafa ávallt verið handsamaðir fljótt aftur. At-
burðarásin í þessum flóttatilraunum er oft æsileg. DV ræddi við reynslubolta úr röðum fangavarða og fékk að
*heyra um eftirminnilegustu strokufangana.
# iFlóttinn mikli
Æsilegasta flóttatilraun íslandssögunnar
er án efa tilraun þeirra Donalds Feeney og
Jóns Gests Ólafssonar í ágúst 2003.
Jón Gestur afplánaði á Litla-Hrauni dóm
sem hann fékk í júlí 2003 fyrir að nauðga sex-
tán ára gamalli stúlku í heimahúsi. Donald
Feeney hafði skömmu áður komist í fréttirn-
ar með eftirminnilegum hætti þegar hann
ásamt fyrirtæki sínu, CTU, reyndi að ræna
tveimur íslenskum dætrum Ernu Eyjólfs-
dóttur og fara með þær til Bandaríkjanna.
Feeney var ráðinn til verksins af fyrrverandi
eiginmanni Ernu, Brian Grayson.
Mannránið komst upp þegar önnur
stúlkan var komin háifa leið til Lúxemborg-
ar í Flugleiðavél og hin var í vél á Keflavík-
urflugvelli og nokkrar mínútur til brottfar-
ar. Feeney var dæmdur í
tveggja ára fang-
elsi fyrir skipu-
lagningu
mannráns-
bandaríska hernum. Sá bakgrunnur hafði
mikil áhrif á hans daglega líf. Til dæmis
hljóp hann klukkutíma á dag með bakpoka
með um þrjátíu kílóum af sandi.
Samfangar Feeneys fussuðu og sveiuðu
þá yfir þessu uppátæki en skildu betur síð-
ar tilganginn.
Samverkamaðurinn fundinn
Eftir að hafa fengið símtal frá konu sinni
Judy, sem aðstoðaði við mannránstilraun-
ina, þess efnis að fyrirtæki þeirra hjóna í
Bandaríkjunum væri á barmi gjaldþrots
ákvað Donald að láta til skarar skríða.
Það fyrsta sem þurfti að huga að var að
finna sér samverkamann. Donald þótti
ómögulegt að vera einn á flótta í ókunnugu
landi. Reynsla hans úr hernum hafði kennt
honum það. Hann reyndi því að finna ein-
hvern sem líklegur var að geta bjargað sér úr
ólíklegustu aðstæðum. Sá sem varð fyrir val-
inu var Jón Gestur Ólafsson.
Stórhættulegur
nauðgari
Jón hafði aðeins mán-
uði áður verið dæmd-
ur í fjögurra ára fangelsi
fyrir að nauðga sextán
ára stúlku í heimahúsi
í Reykjavík. Nauðgunin
þótti sérstaklega óhuggu-
leg en Jón notaði við hana
stærðarinnar hníf til að
ógna konunni sem varð fyrir
ofbeldi hans.
Jóni Gesti líkaði vistin illa
á Litla-Hrauni og tók vel í
hugmyndir Donalds um
að flýja land.
Donald Feeney Dæmdur I tveggja ára fangetsi fyrir
mannrán. Reyndi að flýja til Færeyja skömmu slðar.
Gestur hefði bakgrunn úr erlendum her-
sveitum en það var ýkjusaga sem Jón Gestur
sagði mörgum í þá daga. Meðal annars fórn-
arlambi sínu, stúlkunni sem hann nauðg-
aði.
Vinir þeirra af Hrauninu í þá daga segja
að ákvörðun Donalds um að fá Jón Gest
með í flóttatilraunina hafi einmitt ráðist af
þessum misskilningi. Og hann átti eftir
að reynast dýrkeyptur.
Hræddur við Keflavíkurflugvöll
Árið 1993 þufti enga sérstaka snill-
inga til að flýja fangelsið á Litla-
Hrauni. Kúnstin fólst frekar í því að
nást ekJd.
Flestir sem strokið höfðu árin áður
höfðu yfirleitt verið teknir innan við sól-
arhring síðar á einhverju af öldurhús-
um bæjarins. Enn aðrir skiluðu sér ein-
faldlega sjálfir í Hegningarhúsið við
Skólavörðustíg og afsökuðu
fjarvlst sína með því
að þeir hefðu haft
mikilvægum er-
indum að sinna.
Donald
Feeney vissi
sem var að
ekki var á
það hættandi
að reyna að
fljúga af
landi brott
frá Kefla-
víkur-
flug-
velli.
Bit-
ms.
Strangtru-
aður
|| her-
■ maður
Don-
W ald
Feeney
er
enn
þann
dag
(1 í dag
talinn af þeim
i sem eftir hon-
P um muna einn
1 af þeim eftir-
minnilegri sem
þar hafa dvalið.
Honum er lýst af
fyrrverandi sam-
3* föngum sem
strangtrúuðum
»kaþólikka með
bakgrunn úr
Laug til um
bakgrunn
sinn
Donald
stóð í þeirri
trú að Jón
Jón Gestur Ólafsson Var
nær dauða en llfi eftir
langhlaupið tilSelfoss.
Brian Grayson Réð Feeney
til þess að koma tveim dætr-
um sfnum úr landi og til
Bandarikjanna.
ur
H Litla-Hraun Enginn hefur
I sloppið úr rammgerðasta
■ fangelsi landsins síðustu ár.
honum það. Starfslið hans frá CTU var grip-
ið glóðvolgt á Hrauninu og þá var ekkert eft-
ir annað en að hlaupa á Selfoss.
Nær dauða en lífi
Langhlaupið reyndist Donald Feeney lít-
ið mál, enda í feiknaformi. Jón Gestur var
hins vegar nær dauða en lífi þegar þeir fé-
lagar komust loksins á Selfoss enda hafði
Donald rekið hann miskunnarlaust áfram á
leiðinni.
Frá Selfossi var tekinn leigubíll til Reykja-
víkur þar sem leiðin lá á Hótel Loftleiðir. Fé-
lagarnir köstuðu þar mæðinni enda beið
þeirra langur dagur. Snemma morguninn
eftir lögðu þeir í hann frá Reykjavíkurflug-
velli. Þeir millilentu í Vestmannaeyjum eins
og áætlað var. Ferðamennirnir stigu frá borði
en Halldór Árnason flugmaður tilkynnti
þeim að vegna slæmra veðurskilyrða þyrftu
þeir að bíða á flugvellinum þangað til það
myndi létta til. Sannleikurinn var hins veg-
ar sá að haft hafði verið samband við Hall-
dór og honum tikynnt að hann væri hugsan-
lega með strokufanga um borð. Hann var því
beðinn um að tefja tímann þar til næðist að
sannreyna hverjir væru á ferð með honum.
Veðurskilyrði voru ekki góð og Halldór
beið því spakur á flugvellinum þar til lög-
reglumenn komu á staðinn og handtóku
Donald Feeney og Jón Gest Ólafsson.
Saman í írak
Þótt flóttatilraun þeirra félaga hafi farið
svona hrapallega úrskeiðis er hún engu að
síður sú eftirminnilegasta í manna minnum.
Jón Gestur og Donald héldu vinskap sínum
eftir að þeir losnuðu loksins af Hrauninu.
Jón Gestur fékk vinnu hjá fyrirtæki Don-
alds og hlaut þjálfun í Manilla á Filippseyj-
um. Síðast fréttist af honum í i’rak þar sem
hann særðist við sjálfsmorðssprengitilræði í
Bagdad. Jón Þór er þar við störf hjá CTU við
einkaöryggisgæslu en sá iðnaður er blóm-
legur þessa dagana vegna ótryggs ástands í
landinu.