Freyr - 15.04.1960, Page 50
154
FRE YR
Fyrirmæli um litarmerkingar á sauðfé vorið 1960
1. gr.
Sauðfé og geitfé skal merkja, áður en því
er sleppt frá húsi í vor, samkvæmt fyrir-
mælum þessum. Merkja skal greinilega,
þannig að má'.a hornin bæði að aftan og
framan, en forðast þó að mála yfir brenni-
mörk. Kollótt fé skal merkja á hnakka,
hægri eða vinstri kjamma eftir því sem við
á. Þess skal gætt að endurmerkja fé við
rúning, eftir því sem þörf krefur.
2. gr.
í Mýrdal skal merkja féð með krómgulum
lit á bæði horn.
3. gr.
Féð í Rangárvallasýslu austan Ytri-Rang-
árgirðingar skal vera ómerkt.
4. gr.
Á svæðinu milli Ytri-Rangárgirðingar og
Þjórsár skal merkja féð með rauðum lit á
bæði horn.
5. gr.
Á svæðinu milli Þjórsár og Hvítár—Ölfus-
ár skal merkja féð með bláum lit á bæði
horn.
6. gr.
í Biskupstungum skal merkja féð með
grænum lit á hægra horn.
7. gr.
í Grímsnesi, Laugardal og Þingvallasveit,
austan Þingvallavatns og Þjóðgarðsins, skal
merkja féð með grænum lit á bæði horn.
8. gr.
í ÞingvaUasveit, vestan Þingvallavatns og
Þjóðgarðsins, Kjós Kjalarnesi og Mosfells-
sveit, skal merkja féð með rauðum lit á bæði
horn. Fé, sem haft kann að verða í einangr-
un á tilraunastöðinni á Keldum, skal merkja
með dökkbláum lit á bæði horn. Annað fé
vestan Ölfusár og á Reykjanesskaga skal
vera ómerkt.
9. gr.
í Borgarfjarðarsýslu, sunnan Skorradals-
girðingar skal merkja féð með krómgulum
lit á bæði horn. Annað fé í Borgarfjarðar-
sýslu og Hvítársíðu ofan varnargirðingar
skal vera ómerkt.
10. gr.
í Mýrasýslu vestan Hvítársíðugirðingar og
austan Langár og í Dalasýslu austan Hörðu-
dals og sunnan Haukadalsgirðingar skal
merkja féð með rauðum lit á bæði horn.
11. gr.
í Mýrasýslu vestan Langár, í Snæfellsnes-
og Hnappadalssýslu austan Snæfellsnes-
girðingar og í Hörðudal í Dalasýslu skal
merkja féð með hvítum lit á bæði hom.
12. gr.
í Miklaholtshreppi, Helgafellssveit og
Stykkishólmshreppi skal merkja féð með
bláum lit á bæði horn. Annað fé á Snæ-
fellsnesi skal vera ómerkt.
13. gr.
í hólfinu milli Haukadalsgirðingar og
Hvammsfjarðargirðingar skal merkja féð
með grænum lit á bæði horn. í Dalahólfinu
milli Hvammsf j arðar—Hrútaf j arðargirð-
ingar og Gilsfjarðar—Bitrufjarðargirðing-
ar skal merkja féð með krómgulum lit á
bæði horn.
14. gr.
í hólfinu frá Gilsfjarðar-Bitrufjarðar-
girðingu að Berufjarðar—Steingrimsfjarð-
argirðingu skal merkja féð með bláum lit
á bæði horn.
í Gufudalssveit og Nauteyrarhreppi skal
merkja féð með rauðum lit á bæði horn.
Allt fé á Vestfjörðum þar norðan við skal
vera ómerkt. Einnig skal vera ómerkt allt
fé á svæðinu frá Hrútafjarðargirðingu að
Miðf j arðargirðingu.