Freyr - 15.02.1966, Síða 11
FREYR
85
fjárræktarmenn ættu afurðarmesta fé lands
ins, þótt ég hafi talið þá hvern um sig eiga
ágætt fé og hafi oft séð hjá þeim frábæra
einstaklinga og systkinahópa. Fyrsta skil-
yrði til þess að komast á skrá með þeim, sem
hafa mestar afurðir af fé sínu, er að eiga
frjósamar ær, annað skilyrðið er, að ágæt-
lega sé búið að fénu árið um kring, hið
þriðja að fjárstofninn hafi eiginleika til mik-
illar holdsöfnunar og ærnar séu mjólkur-
lagnar. Einn þeirra þriggja ofannefndu
fjárræktarmanna, Guttormur í Geitagerði,
hefur ekki starfað í sauðfjárræktarfélagi
og hefi ég því ekki skýrslur í höndum um af-
urðasemi fjárstofns hans. Á meðan svo er,
kemst fjárbú hans ekki á skrá með búum
þeirra, sem eru í fjárræktarfélögum. Ég hef
þó séð hjá honum bæði ágætar ær og prýði-
lega dilka og geri ég ráð fyrir, að dilkar
hans hafi á undanförnum árum reynzt vel
og betur en flestra bænda í nágrenni hans.
Þeir Þórarinn í Holti og Sigurður á Gilsá
hafa lengi starfað í fjárræktarfélögum, hvor
í sinni sveit. Báðir eiga sæmilega frjósaman
fjárstofn, þótt hvorugur þeirra fái líkt því
allar ærnar tvílembdar, enda hafa þeir ekki
fylgt hámarksafurðarstefnu í fjárbúskap
sínum til hins ítrasta.
Af Holtsánum í Sf. Þistli hafa 57% átt tvö
lömb að meðaltali síðustu 10 árin, en af
Gilsáránum á skýrslu hafa 44% verið tví-
lembdar á sama tíma. Vænleiki dilka, hjá
báðum þessum þekktu fjárræktarmönnum,
er prýðilegur, þegar miðað er við meðalfall-
þunga dilka á viðkomandi sláturstöðum. Til
skýringar skal tekið fram, að lömb eru
ung í Holti í Þistilfirði, um þriðji hluti
þeirra fæddur í júní, en í Breiðdal eru dilk-
ar allajafna fremur rýrir miðað við dilka á
landinu í heild, þótt þeir séu oft vænni en í
nágrannasveitinni Fáskrúðsfirði.
Eftirfarandi tafla sýnir tölu áa í Holti og
á Gilsá á skýrslu viðkomandi sauðfjárrækt-
arfélaga um allangt árabil, vænleika dilka
eftir tvílembu, einlembu, á með lambi og
eftir hverja á. f síðasta dálki er meðalfall-
þungi dilka á viðkomandi sláturstað sama
ár.
Holt í Þistilsfirði: IVI EÐALÞUNGI, , K G Meðalfall slátur-
Eftir Eftir Eftir á Eftir dilka á
Ár Tala áa tvílembu einlembu m/lambi hverja á Þórshöfn kg
1949—'50 159 28,9 17,2 20,9 17,6 14,2
1950—'51 146 29,6 18,0 21,8 18,7 14,1
1951—'52 155 29,0 17,1 20,2 16,8 14,6
1952—'53 142 29,8 17,5 20,7 18,2 14,9
1954—'55 152 30,9 17,6 23,2 22,2 15,0
1955—'56 167 32,6 18,0 24,3 21,7 15,0
1956—'57 172 31,9 18,6 23,1 22,0 16,0
1957—'58 202 33,3 19,2 26.8 25,5 16,0
1 958—'59 209 30,0 18,0 24,1 21,8 15,1
1959—'60 205 29,2 16,6 24,3 23,2 14,6
1960—'61 217 28,7 16,7 23,8 22,3 15,0
1961—'62 214 27,9 16,9 23,2 22,2 14,7
1962—'63 229 27,8 16,4 21,4 20,4 14,9
1963—'64 237 28,1 16,8 22,1 21,2 14,7
Meðaltal 29,8 17,5 22,8 21,0 14,9