Freyr - 01.12.1972, Síða 2
Sjá forsíðu
INTERNATIONAL
bindivélar og traktorar
Nýju International 430-440 bindivélarnar koma nú í enn bættri útgáfu.
Þær skila yfirburða-afköstum, og hnýtibúnaður er sjálfstilltur við mis-
munandi gerðir garns. Mörgum gefst ekki vel fyrsta sprettinn með
nýja bindivél, en nú koma þær með fullkominni handbók á íslenzku
um notkun. Mikilvægt er, að garnið sé gott. Ennfremur er bændum
nauðsyn, að heima í héraði sé liðtækur maður til leiðbeininga um
meðferð vélanna. í vetur gerir Véladeild S.Í.S. sérstakt átak í þjálfun
manna til leiðbeininga og hjálpar um meðferð bindivéla.
Á forsíðu sést International bindivélin 440, sóparabreidd 152 cm, en
430 er með 132 cm sópara. Bændur, merkið með X í fyrirspurna-
formið, og þið fáið án skuldbindinga sendan fullkominn upplýsinga-
lista um þessar vélar.
Munið einnig, að rétt er að kynna sér tímanlega verð og gerð hjáplar-
tækja við hirðingu bagganna, svo sem:
Baggasleða, baggahleðslutækja og baggafæribanda.
Traktorarnir heita nú:
354 ... 38 ha
444 ... 45 ha
454 ... 55 ha
574 ... 72 ha
Já, merkið með X við traktorana í fyrirspurnaforminu, og þið fáið
senda fullkomna mynda- og upplýsingalista um þessa nýju traktora.
Sambandið og kaupfélögin afgreiddu marga slíka á liðnu sumri, og
væntanlega getum við bent á nágranna, sem á slíkan. Þegar þessar
upplýsingar berast, eru að verða síðustu forvöð að sækja um stofnlán
hjá stofnlánadeildinni vegna vélakaupa ’73. Þess vegna er rétt að
hefjast strax handa og sækja um, til þess að eiga möguleikann opinn
um afgreiðslu stofnláns. Við aðstoðum við umsókn þess, og þið hafið
möguleika á að eignast nýjan International.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
VÉLADEILD
Armúla 3 Reykjavik simi 38900