Freyr - 01.12.1972, Side 60
VanlíSan, lystarleysi og van-
næring fylgir saltskorti. I*að er
góð ráðstöfun að salta hey um
leið og fyllt er í hlöður.
natríum að halda en nautgripir. Heimildir
telja að ær þurfi 4—5 g natríum á dag og
lömb á vetrarfóðrum 3—4. Á Hesti í Borg-
arfirði hefur nyt íslenzkra áa verið athug-
uð. Reyndist einlemba mjólka 1,3 kg á dag
að meðaltali og tvílemban 1,7. Nokkru
meira þurrefni er í sauðamjólk en í kúa-
mjólk svo að ætla mætti að meira salt
væri í henni. Heimildir um það finnast
hins vegar ekki svo að lítið hefur það
verið rannsakað. Skárst verður því að
reikna dæmin eins og sama saltmagn
væri í sauðamjólkinni og kúamjólkinni.
Dæmin fyrir sauðféð reiknast því þannig:
1. Ær á vetrarfóðrum með meðalmagni
natríum í heyi étur um 1 kg á dag og fær
úr því 1,1 g natríum en þarf 4—5. Þetta
er ekki nærri nóg.
. Ef er hámarksmagn natríum í heyinu
eða 0,16% fær kindin samt undir 2 g natr-
íum á dag sem er enn ekki nóg.
3. Um lágmarksmagnið þarf ekki að
ræða þar eð hámarksmagnið dugar ekki
samkvæmt þeim þarfamörkum sem nefnd
eru hér að ofan.
4. Ekki lagast dæmið þegar borið er
saman það magn sem kindin þarf af natr-
íum og það sem hún fær úr gróðri afrétt-
anna. Hún getur étið tæp 4 kg þurrefnis
og mjólkað 1,7 kg mjólkur. Hún fær þá um
3 g natríum en þarf um 10. Ekki þarf að
efa að bezt er fyrir kindina að fá svona
mikið magn af salti eins og þessi þarfa-
mörk vilja vera láta, en þar eð ekki verður
neitt stórtjón þó að kindur gangi á slíkum
afréttum sem þessum, sem voru athugaðir
í haust, þá má búast við að þessi mörk séu
mjög rýmilega áætluð. En hinsvegar þegar
skepnan fær natríum svona langt undir
þessum þarfamörkum má búast við að
henni líði mjög illa af salthungri, sé óróleg
og standi ekki vel á beit og jafnvel æði um.
Matarsalt og fóðrun.
Salt er hægt að gefa á margvíslegan hátt.
Nefna má saltsteina, saltupplausn í drykkj-
arvatni, saltað hey, salt í steinefna- og
kjarnfóðurblöndu, söltuð síld og söltuð
loðna.
Saltsteinar eru handhægir í notkun, sér-
staklega handa sauðfé. Hengja má þá upp
516
F R E Y R