Freyr

Volume

Freyr - 15.07.1973, Page 5

Freyr - 15.07.1973, Page 5
FRIÐRIK PÁLMASON: Nýjar áburðartegundir Áburðarverksmiðjan hefur aukið fjöl- breytni framleiðslu sinnar og vandast nú valið á áburðartegundum. en eftirleikurinn verður auðveldari, þar sem hentug blanda finnst. Blöndurnar henta mjög víða, en eingildar tegundir verður þó að nota þar sem ástæða er til þess að nota kalsíum- ríkan áburð og ekki ráðlegt að kalka. Þetta getur átt við á sandjarðvegi til dæmis. Engin hentug blanda er heldur til, þar sem fosfórþörf er lítil og kalíþörf mikil. Annars er fjölbreytni áburðarins mikil, miðað við aðstæður. Völ er á 4 NPK-blöndum, sem nota má á tún. Þá eru boðnar fram 2 NP-blöndur, sem ætlaðar eru á úthaga. Einhliða teg- undir eru eins og áður: Kjarni, þrífosfat, klórkalí með 50% K (60% K20), kalísúlfat með 41,5% K (50% K20). Auk þess eru tvær tegundir af kalkammon með 26% N og 20% N. Þar sem kalsíummagn í grasi er lítið kemur vel til greina að bera á kalkammon með 20% N. Notkun kalks með Kjarna, þrífosfati og kalí, ætti að takmarka við steinefnasnauðan mýrarjarðveg, ann- ars staðar er æskilegra að halda uppi kalsíummagni grasanna með kalkammon og þrífosfati. í blandaða áburðinum ei lítið kalsíum, svo kalsíum í ábuiði verður minna, þar sem blandaður áburður er borinn á, heldur en verið hefði með notkun þrífosfats með Kjarna og kalí. Áhrif þrífosfats á kalsíum- magn grasanna koma fram í tilraun nr. 16, sem hófst á Akureyri árið 1956 og hefur staðið síðan. Á tímabilinu 1961—1970 var kalsíummagn í grasi þannig: Tafla 1. ÁHRIF ÞRÍFOSFATS Á KALSÍUM I GRASI Tilraun nr. 16—56 Enginn 200 kg/ha Akureyri P-áburður þrífosfat % Ca í grasi Meðaltöl 1961—1970 0,333 0,415 Mismunur 0,082 Í 0,039 (í 95% tilvika) Þrífosfatið hefur því aukið kalsíummagn grassins verulega. Tilraunin hafði, í lok tímabilsins, sem mælingarnar ná yfir, staðið í 15 ár. Nú þegar hinar nýju NPK-tegundir eru teknar í notkun þarf sérstaklega að fylgj- ast með kalsíummagni í grasi og heyjum, til þess að kanna hvort grípa þurfi til ráðstafana til hækkunar á kalsíummagni í grasi eða til uppbóta á kalsíummagni heyj- anna með kalsíumgjöf Hins vegar er ekki tilefni til að ætla, að kalsíummagn í grasi sé eins og er takmarkandi fyrir sprettu. Eftir aðstæðum má velja á milli tegunda af blönduðum áburði eins og tafla 5 sýnir. Til ákvörðunar á næringarstigi er rann- sókn á jarðvegi eða gróðri nauðsynleg. Flokkunin í töflu 5 er miðuð við efnagrein- ingar á grasi. Þar sem rannsóknaniðurstöður eru ekki fyrir hendi er að sjálfsögðu stuðst við reynslu. Mætti þá til dæmis styðjast við eftirfarandi töflur: F R E Y R 335

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.