Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.1975, Blaðsíða 5

Freyr - 01.06.1975, Blaðsíða 5
FREYR BÚNAÐARBLAÐ 71. árgongur Nr. 11—12, iúní 1975 Útgefendur: BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS STÉTTARSAMBAND BÆNDA Útgáfustjórn: EINAR ÓLAFSSON HALLDÓR PÁLSSON ÓLI VALUR HANSSON Ritstjóri: JÓNAS JÓNSSON Heimilisfang: BÆNDAHÖLLIN, REYKJAVÍK PÓSTHÓLF 7080, REYKJAVÍK Áskriftarverð kr. 700 árgangurinn Ritstjórn, innheimta, afgreiðsla og auglýsingar: Bœndahöllinni, Reykjavik — Sími 19200 Ríkisprentsmiðjan Gutenberg Reykjavík — Sími 38740 E F N I : „Þetta land átt þú" Árferði 1974 Uppspretta og nýting köfnunarefnis Eru búin of lítil Tölur um landið Hraðþurrkun föðurs Nokkur huggunarorð Erlendir þœttir. „I>etta land átt þú” Nú um skeið hefur nokkuð verið talað um „skipulega nýtingu” landsins. — Rætt er um það að velja þurfi hverju og einu stað, þannig að hvert landssvæði notist helst til þess, sem það er best fallið, og jafnframt þannig, að það þjóni sem best heildarhagsmunum okkar og heildarmarkmiði með búsetu og lífi í landinu, ef svo stórt má taka til orða. Komið hafa fram hugmyndir um „heildarlandnýtingar- skipulag”. Það byggist á skipulagningu hvers landshluta og innan landshlutanna á skipulagningu smærri svæða. Þetta er meira að gera en segja. Fyrst er það, að erfitt er að sjá fyrir framtíðarþarfirnar, — en á þeim þyrfti skipulagið að byggjast. Annað er, að erfitt er að meta og vega hverjar á móti öðrum ólíkar og mjög eðlismis- munandi þarfir og hin fjölbreytilegu, hugsanlegu not, sem við getum haft af landinu. í þriðja lagi er svo vitað, að menn mun greina á um það, að hverju beri að stefna, — hvers konar lífi við viljum hér lifa. En hversu mörg Ijón, sem menn kunna að sjá á vegin- um, eiga þau ekki að fæla menn frá því að takast á við viðfangsefnið. Öll viðleitni er líkleg til að gefa einhvern árangur. Allar skynsamlegar umræður og athuganir á þessu eru líklegar til að draga úr hættunni á stórum slysum. Eitt ætti að hafa fast í huga og það er, að mikið betur þarf til ákvörðunarinnar að vanda en ella, þegar landi er ráðstafað á óafturkallanlega máta. — Land, sem sökkt er undir uppistöðulón, lagt undir borgir og verk- smiðjur eða önnur mannvirki, kemur aldrei aftur, — það eigum við ekki lengur í sjóði. Landið, sem tekið er til ræktunar, undir túnskika — eða hagarnir, sem qræddir eru, eða landið, sem bara fær að vera í friði, allt þetta land heldur áfram öllu gildi sínu. Það ætti öllum að vera Ijóst, að mannkynið bruðlar raunar óhóflega með land, — það brýtur undir sig, malar og hakkar í sig meira og meira af besta landbúnaðar- landinu. Borgirnar voru oft byggðar í bestu landbúnaðar- héruðum, þar sem best var að fæða sem flesta, — þannig er þegar mikið farið í súginn. Af þessu hafa ábyrgir menn áhyggjur víða erlendis — og komið hefur verið á lögum og reglum til að sporna við þessu. Hér á landi virðist þetta enn vera ráðandi mönnum 237 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.