Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.1975, Blaðsíða 10

Freyr - 01.06.1975, Blaðsíða 10
Dr. HÓLMGEIR BJÖRNSSON, sérfræðingur við Rannsóknastofnun landbúnaðarins: Uppspretta og nýting Köfnunarefnisnám smávera. Önnur mikilvæg uppspretta köfnunarefnis í jarðvegi er köfnunarefnisnám ýmiss smá- verugróðurs. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að binding köfnunarefnis í verk- smiðjum er orkufrekur iðnaður og köfnun- arefnisnám plantna í jarðvegi er engin undantekning að því leyti. Ýmsar trjáteg- undir svo sem elri lifa í samlífi við gróður, sem bindur köfnunarefni loftsins. Kunn- astir og afkastamestir eru hins vegar rót- arhnúðagerlarnir, sem lifa í hnúðum utan á rótum belgjurta, t. d. smára. Þeir hafa Skortur á köfnunarefni er víða sá vaxtarþáttur, sem einkum takmarkar sprettu á óræktuðu landi. Af hinum náttúrlegu köfnunarefnisgjöfum er mikii- vægust hringrás köfnunarefnisins úr jörð í jurtir og dýr og aftur til jarðar sem saur og þvag dýra og rotnandi leifar jurta og dýra. Tap úr þessari hringrás verður einkum við það, að ammóníak rýkur úr fersku þvagi og saur. Einnig binst nokkuð í lífrænum efnum, þar sem þau safnast fyrir, einkum í mýrum, en útskolun úr jarðvegi er naumast umtalsverð á óræktuðu landi. í stað þess köfnunarefnis, sem tapast í hringrásinni, kemur köfnun- arefni úr andrúmsloftinu. Það ammóníak, sem áður rauk út í loftið berst til jarðar að nýju, en dreifist nú á stærri og sumpart ófrjósamari svæði, og mikið af því berst út í sjó og vötn. Einnig berst til jarðar með regnvatni nítrat, sem myndast í andrúmsloftinu við eldingar. Samkvæmt mælingum á efnamagni í úrkomu berst með henni þó innan við 1 kg N/ha á ári hér á landi, en auk þess nemur jarðvegur og gróður þessi efni beint úr andrúms- lofti. í Svíþjóð er áætlað, að árlega berist sem svarar 6—17 kg N/ha með úrkomu og við beina upptöku á nítrati og ammóníaki úr andrúmslofti. Er þá gert ráð fyrir, að það magn, sem unnið er beint úr andrúmslofti, sé þrisvar til fjórum sinnum meira en það, sem kemur með úrkomu. 242 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.