Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.1975, Blaðsíða 27

Freyr - 01.06.1975, Blaðsíða 27
12. gr. í hólfinu milli Gilsfjarðar- Bitrugirðingar og Berufjarðar- Steingrímsfjarðargirðingar skal merkja féð með ljóshláum Iit á bæði horn. Féð í Reykhólahreppi, milli Berufjarðar- og Þorskafjarðargirðingar, skal merkja féð með hvítum lit á hæði horn. í Gufudalssveit og Nauteyrarhreppi skal merkja féð með gulum lit á hæði horn. Allt fé á Vestfjörðum, þar norðan við, skal vera ómerkt. Einnig skal vera ómerkt allt fé á svæðinu frá Hrúta- fjarðargirðingu að Miðfjarðargirðingu. 13. gr. Á svæðinu milli Miðfjarðargirðingar og Blöndu skal merkja féð með brúnum Iit á bæði horn. Milli Blöndu og Héraðsvatna skal vera ómerkt. 14. gr. Frá Héraðsvötnum að sýslumörkum Eyjafjarðarsýslu- og Skagafjarðarsýslu og á Siglufirði skal merkja féð með gulum lit á bæði horn. f Saurbæjarhreppi og aðliggjandi hæjum, sunnan og vestan Eyjafjarðargirðinga skal merkja féð með dökkbláum Iit á hæði horn. Annað fé á svæðinu vestan Eyjafjarðargirðingar skal vera ómerkt. 15. gr. Á svæðinu milii Eyjafjarðargirðinga og Skjálfandafljóts skal merkja féð með rauðbrúnum Iit á bæði horn. 16. gr. Á svæðinu milli Skjálfandafljóts og Jökulsár á Fjöllum, sunnan Gæsafjallagirðingar, skal merkja féð með hvítum lit á hæði horn. Norðan girðingar skal vera ómerkt. 17. gr. Á Hólsfjöllum, Axarfirði og Núpasveit, sunnan Sléttugirðingar, skal merkja féð með grænum lit á hægra horn. 18. gr. f Presthólahreppi og Svalbarðshreppi. norðan Sléttugirðingar, skal merkja féð með gulum lit á hæði horn. 19. gr. í Svalbarðshreppi, sunnan Sléttugirðingar, Sauðneshreppi, Múlasýslum báðum og Austur- Skaftafellssýslu að Hornafjarðarfljóti, skal merkja féð með Ijósbláum lit á bæði horn. 20. gr. Þeir fjáreigendur, sem merkja sauðfé sitt með varanlegum Iitamerkjum (t. d. úr harð- plasti) og viðeigandi litum á varnarsvæðum, samkvæmt reglugerð um búfjármerkingar á öllu landinu, eru undanþegnir merkingum þeim með málningu, sem um ræðir í fyrir- mælum þessum. 21. gr. Öllum fjáreigendum er stranglega bannað að litarmerkja fé á hornum eða haus, öðruvxsi en að framan greinir, nema að fengnu leyfi framkvæmdastjóra Sauðfjársjúkdómanefnd- ar. Gamlar litarmerkingar, sem brjóta í bága við framanskráð fyrirmæli, skal afmá. 22. gr. Hreppstjórum er skylt að sjá um, að fyrirmælum þessum verði framfylgt. Undanbrögð eða brot á þeim varða sektum samkvæmt lögum nr. 23 frá 10. mars 1956. Reykjavík, 4. apríl 1975 SAUÐFJÁRSJÚKDÓMANEFND F R E Y R 259

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.