Freyr - 15.07.1978, Blaðsíða 20
Nýbornar Cheviotær á skosku bændabýli.
virkar, og því virðist ekki skjóts árangurs
að vænta í bráð.
Að lokum ber að geta þess, að British
Council ráðgerir að gefa öll erindin frá nám-
skeiðinu út í bók síðar á árinu.
Sautfé í beitartilraun skammt frá Edinborg í Skot-
landi.
Danir telja að pað borgi
sig vel að bera á skóg
Danska skógræktin hefur byrjað allvíðtækar
tilraunir með að bera áburð á jóska skóga.
Hafði hún áður átt í nokkrum útistöðum
við stjórn náttúruverndarmála vegna þessa.
í fyrstu lotu verður borið á allmarga upp-
grædda skóga á jósku heiðunum, í alls um
13.000 ha, til skiptis í fimm ár.
Danirnir byrjuðu á stóru heiðasvæði,
Klausturheiði, (Klosterhede), sem er milli
Holstebro og Lemvig.
Vænta þeir þess að auka afrakstur þess
um sem nemur 200 millj. ísl.kr. Þrjátíu
manns munu fá þarna atvinnu, auk þess
sem þarna fæst viður til daglegra nota,
þegar dregur að aldamótum.
Lítil flugvél, sem flýgur 15 m yfir trjá-
toppum, dreifir 520 kg af N.P.K. á ha.
Á einni viku báru þeir á 420 tonn af
áburði á 804 ha, en það er fimmtungur af
skógunum á þessu svæði.
Danska blaðið Landsbladet segir, að með
því að nota á skóg fimmtung þess áburðar,
sem brúkaður er í landbúnaði í Danmörku,
muni árlega fást 13.000 rúmmetra upp-
skeruauki af viði. Fyrir það fengjust um 200
millj. kr. Af því fara 125 millj. til skógsán-
ingar og skógarhöggs, hitt færi í áburð á
skóginn.
Þetta munu vera mestu áburðartilraunir,
sem gerðar hafa verið á skógi í Danmörku,
og Náttúruverndin danska fylgist vel með
þeim, m.a. til að sjá hvort áburðurinn þvæst
út í vatnsföll.
Frá varahlutaþjónustu,
Búnaðarfélags íslands.
Eiríkur Helgason hefur fengið nýtt
símanúmer heima: 76174.
478
F R E Y R