Freyr - 15.07.1978, Blaðsíða 9
3. mynd A: Eitt dæmi um ófarir við
verkun votheys, ef ekki heppnast að
þyrgja súrefnið úti.
ADSTREYMÍ
LOFTS fsúrefniái
► TAP FÓÐUREFNA (25-60%)
RÝRNUN FÓDURGÍLDÍS
sláttuvél. Tætta heyið jafnast betur og
fellur þéttar saman en það heila = auð-
veldara að útiloka loftið.
• Þeim mun skemmri tíma sem fylling
geymslunnar tók, þeim mun þetur reynd-
ist heyið verkað. Sem sagt, hrein „sultu-
gerðaráhrif". Þeim mun skjótari sem við
erum að fylla ílátið og loka því (loftþétt),
þeim mun minni skömm nær súrefnið að
gera.
• Blautt fóður verkaðist oft illa. í blautu
fóðri geta óæskilegir gerlar, t.d. smjör-
sýrugerlar, náð undirtökum, m.a. vegna
þess að mjólkursýrugerlarnir ná ekki að
sýra fóðrið nógu mikið (sjá mynd 3 B og
4). Sé fóðrið þurrlegt, truflum við starf
smjörsýrugerlanna, og mjólkursýrugerl-
arnir þurfa ekki að mynda eins mikinn
súr í fóðrinu til þess, að góð verkun sé
tryggð.
Hvað er til úrbóta?
Leiki grunur á, að ekki sé ailt með felldu
um verkun votheysins, má athuga ýmsar
leiðir til úrbóta, allt eftir aðstæðum á hverj-
um stað. Hér verða nefndar nokkrar, sem
augun hafa einkum staðnæmst við í fyrr-
nefndum athugunum:
1. Meiri natni við hirðingu og frágang.
Höndum má ekki kasta til votheysgerðar-
innar (frekar en annarar heyverkunar). —
Það fáum við bara í hausinn aftur um
veturinn með margföldum þunga. Látum
regluna um súrefnið burt ekki líða úr
minni.
2. Meiri afköst við hirðingu.
Víða eru flatgryfjur það stórar í hlutfalli
við afkastagetu við slátt og hirðingu, að
fylling tekur óeðlilega langan tíma.
Nokkra bót má á þessu ráða með því að
hirða heyið í vel hallandi lög (sjá 5.
mynd). Með því móti minnkum við hey-
yfirborðið, sem súrefnið nær að leika um.
3. mynd B: Myndin sýnir niðurstöður mælinga á
fóðurtapi við verkun í nokkrum votheysgeymslum
(turnar og flatgryfjur). Verkunin fylgdi aö mestu ferl-
inum, sem lýst er á mynd 3 A. Við sjáum nauösyn
þess a5 halda hitanum við verkun (=z aðstreymi
súrefnis) niðri og að hirða heyið ekki of blautt.
Dæmi: Heyið hirt með 18% þurrefni og hæsti hiti
50°C — fóðurtap 48%. Heyið hirt með 25% þurrefni
og hæsti hiti 30°C — fóöurtap 22%.
F R E Y R
467