Freyr - 15.07.1978, Blaðsíða 19
of léleg til þess að halda uppi viðunandi
vexti lamba. Auk þess gætu ormar valdið
miklum skemmdum í meltingarfærum, en
þær leiddu til verulegra vanþrifa, þótt
ekki sæist skita á lömþunum. Þar, sem
þröngt er í högum, væri ekki síður mikil-
vægt að setja lömbin á „hreint land“, t.d.
nýrækt, en að gefa ormalyf. Reyndar væri
árangursríkast að gefa inn ormalyf, um
leið og beitarskipti færu fram. Talið var
skaðlaust að gefa vothey og þurrhey af
ormasýktu landi, ef u.þ.b. 6—8 vikur liðu
frá slætti til gjafar.
í nýtísku skosku holdanautafjósi. Takið eftir gerð
jötugrindar.
• Dilkakjöt verður seigara en ella, ef það
er geymt við lægra hitastig en 10°C
fyrstu 10 klukkustundirnar eftir slátrun,
og afleitt er talið að frysta það strax eftir
slátrun, líkt og hefur tíðkast t.d. á Nýja-
Sjálandi.
• Lögð var áhersla á nauðsyn þess að
sótthreinsa naflann á nýfæddum lömbum,
þar sem liðastirðnun (rauðsýki) gerir vart
við sig, og reyna þannig að fyrirbyggja
smitið. Langverkandi penisillín reynist
best við lækningu þessa sjúkdóms.
Texilsauðfé frá Hollandi — vel vöðvafylltir og hóflega
feitir skrokkar.
e Fyrir nokkrum árum var talið, að kláða
(kláðamaur) hafi verið útrýmt að mestu
eða alveg á Bretlandseyjum, en nýlega
hefur hann gert víða vart við sig, og nú
er verið að herða aðgerðir gegn þessum
vágesti með strangara eftirliti með sauð-
fjárböðunum. Votamæði gerir nokkuð
vart við sig, og eru Bretar hræddir um
að þurramæði berist þangað líka, t.d.
með Texelfé frá Hollandi, líkt og íalið er,
að gerst hafi í Danmörk, Noregi og Sví-
þjóð.
* Enn ríkir mikil óvissa um riðuveikina, en
m.a. er verið að rannsaka hana í Edin-
borg. Eins og þeir vita, sem til þekkja,
er riðuveiki mjög dularfullur sjúkdómur,
ef svo mætti að orði kveða, og jafnt vís-
indamönnum sem bændum mikil ráðgáta.
Þó er nú almennt álitið, að um smitandi
sjúkdóm sé að ræða, en ekki er Ijóst,
hvernig hann breiðist út. Sjúkdómsvald-
urinn (veira?) reynist jafnan ákaflega líf-
seigur, jafnvel þótt ítrustu sóttvarnarað-
gerðum sé beitt. Rannsóknir á þessum
sjúkdómi eru ákaflega erfiðar og sein-
F R E Y R
477