Freyr - 15.07.1978, Blaðsíða 28
velja plóg með skrúfulaga moldverpi, þá
veltur strengurinn betur og brotnar síður.
Plógar til akuryrkju eru með styttra og þver-
stæðara moldverpi og brjóta strenginn bet-
ur, en það er kostur við akurplægingu.
(2) Stærð plógs og aflþörf. Til endurvinnslu
er ekki æskilegt að nota stóran plóg, 10—
12" plógur er heppilegur vegna þess, að
þá er hægt að stilla plægingardýptinni í
hóf. Til þess að plæging sé vel gerð, þarf
að vera heppilegt hlutfall milli þykktar og
breiddar á plógstrengnum. Venja er að
miða við hlutfallið 1:1.5, þ.e. sé dýptin 20
sm, verður eðlileg breidd plógstrengs um
30 sm. Plægingardýptin 20 sm hæfir því
best 10—12" plóg (við breidd skerans bæt-
ast 1—2", því að skerinn á ekki að skera
alveg út úr strengnum). Viðunandi afköst
við plægingu fást þá með tví- eða helst þrí-
skera plóg.
Flestar dráttarvélar eru nú búnar sjálf-
virkri dýptarstillingu fyrir lyftutengda plóga.
Þessi dýptarstilling tryggir jafnari þykkt
plógstrengsins. Við greiða plægingu nær
plógurinn þó varla að fylgja ójöfnu yfir-
borði, og á slíku landi þarf að plægja dýpra
en ella.
Aflþörfin er háð jarðvegsgerð, plæging-
ardýpt og stærð plógs. Samkvæmt mæling-
um, sem Grétar Einarsson hjá Bútæknideild
hefur gert, er aflþörf við plægingu í ís-
lenskum jarðvegi allmikil, en mest í ný-
ræstri mýri og minnst í sandjörð og vel
framræstri mýri með 10 ára gamalli fram-
ræslu. Á grundvelli mælinganna var sett
upp eftirfarandi tafla um hlutfallið milli
þyngdar dráttarvélar og dráttarafls við
plægingu.
Samkvæmt 1. töflu getur meðalstór drátt-
arvél (1500—2000 kg) dregið 14" tvískera,
sé plægingardýptin um 20 sm. Stærri drátt-
arvél (2000—2500 kg) þarf til að draga 10
—12" þrískera, nema jarðvegur sé laus og
myldinn. Hve gott hjólagrip dráttarvél hef-
ur, fer annars mikið eftir rakaástandi jarð-
vegs.
1. tafla. Áætluð lágmarksþyngd (kg)
dráttarvéla við plægingu með lyftutengdum
plógum í ólíkum jarðvegi.
Plóg- stærð Vinnslu- dýpt, sm Sand- jörð Móa- jarðv. Mýrarjarðvegur Fram- ræstur Biautur
1 X16" 20 820 980 1070 1400
— 25 1030 1230 1330 1740
— 30 1230 1480 1500 2090
1 X 20" 20 1020 1220 1330 1730
— 25 1280 1590 1660 2170
— 30 1530 1840 1990 2600
2X14" 20 1420 1700 1850 2410
— 25 1780 2130 2310 3020
— 30 2130 2560 2770 3620
(3) Framkvæmd og afköst. Plægingu má
haga á mismunandi hátt. Við teigplægingu
er markað fyrir 20—30 m breiðum, samsíða
teigum. Við enda teiganna verður óplægð
rein, sem höfð er til snúninga og plægð er
í lokin. Með hóflega breiðum teigum minnk-
ar akstur með plóginn fyrir enda plægjunn-
ar. Við hring- eða myndplægingu er plæg-
ing hafin á miðri spildu, og plógförin látin
fylgja útlínum spildunnar. Á stórum stykkj-
um getur hringplæging reynst vel, en mæla
þarf út fyrir byrjunarstað plægingar.
Víxlplæging verður aðeins framkvæmd með
víxlplóg, enda landið plægt frá einni hlið.
Víxlplógar eru nú meira í tísku, þar sem
snúningi plógsins er stjórnað frá dráttar-
vélarsætinu með vökvastýri.
Afköst eru breytileg eftir aðstæðum. Við
góðar aðstæður er hægt að plægja hektar-
ann á 2.5—3 klst. með tví- eða þrískera, en
við erfiðar aðstæður getur verkið tekið
helmingi lengri tíma.
486
F R E Y R