Freyr

Årgang

Freyr - 01.03.1981, Side 15

Freyr - 01.03.1981, Side 15
ár. Var það fyrir 3 árum neðst í dalnum. Líklegt þykir, að veikin sé í neðanverðum Ólafsfirði en ekki hafa veruleg brögð verið að henni þar, þvi að riða hefur ekki verið greind svo kunnugt sé í kind í Ólafsfirði. Riðuveiki hefur þó komið fram í kindum, sem seldar hafa verið úr framanverðum Ólafsfirði til annarra sveita. f>á hefur riðuveiki fundist á Siglufirði og í Fljótum í Holts- hreppi. Hún hefur fundist á fáum bæjum í Hofshreppi,en haldist við á einum bæ þannig að verulegt tjón sé að. Hún hefur verið m jög skæð á einum bæ í Hólahreppi um langt skeið. Riðuveikin hefur einnig fundist á fáum bæjum í Viðvíkur- sveit og valdið þar talsverðum usla einkum þó á einum bæ þar. í Akrahreppi hefur veikin fundist á einum bæ svo kunnugt sé á seinni árum. Talið er að veikin hafi borist með aðkeyptu fé úr Ólafsfirði. Bóndinn tók þá ákvörðun að lóga öllu fé sínu fljótlega eftir að veikin kom upp; jafnframt eyddi hann gömlum húsum og byggði ný ótilkvaddur og víst án sérstakrar aðstoðar hins opinbera. Nú hefur hann fengið sér fé að nýju eftir nokkurra ára fjárleysi. Féð fékk hann frá grannbæ að þessu sinni. Forvitni- legt verður að fylgjast með því hvernig til tekst. í svona tilraunum skiptir vitanlega mestu máli að vel takist til um heilbrigði nýja fjárins. Á því hafa menn brennt sig. Vestan vatna í Skagafirði bar lítið á veikinni þar til hún gaus upp í Seyluhreppi fyrir fáum árum. Út- breiðsla í Seyluhreppi minnir á það sem gerst hefur austanlands. Veikin hefur nú fundist þar á 11 bæjum og veldur miklu tjóni sums staðar. Á fyrsta bænum sem veikin var staðfest, lógaði bóndi öllu fé sínu fyrir 5 árum og tók fé aftur í húsin sama haust. Hann hreinsaði húsin vel. Riðuveikin hefur ekki látið á sér kræla þar ennþá, en full- orðið fé sem hann fékk að hefur verið að koma fyrir á ólíklegustu stöðum síðan. í Skarðshreppi fannst veikin fyrir löngu á tveimur bæjum (20 ár) en ekki hefur hún fundist á Skaga svo vitað sé. Hins vegar fannst hún í Rípurhreppi fyrir 15 árum eða svo. Skömmu síðar var lógað þar öllu fé vegna garnaveikinnar. Eftir það hefur riðuveiki ekki orðið vart í Rip- urhreppi svo kunnugt hafi orðið. í Staðarhreppi fannst riðuveiki á byrjunarstigi fyrir 2 árum á einum bæ. Öllu fénu var lógað þar að ákvörðun bóndans og án bóta og hefur verið fjárlaust síðan á þeim bæ. Ekki er grunlaust um að veikin leynist þar enn á einum bæ. { Austur-Húnavatnssýslu hefur riðuveikin verið þekkt lengi, eink- um í Vatnsdal. Hennar hefur einnig orðið vart í Svínavatns- og Sveinsstaðahreppum. Dreifingin hefur verið mjög hæg en tjón verulegt á stöku bæjum. Aðeins hefur riðuveikinnar orðið vart í Torfalækjarhreppi og nú er farið að bera á riðuveiki í Vindhæl- ishreppi austan Blöndu og verið staðfest þar á einum 3 bæjum. í Vestur-Húnavatnssýslu hefur riðuveikin borist nýlega. Pað var að Breiðabólstað í Vesturhópi árið 1978. Á þessum bæ hefur tjón af völdum riðunnar orðið nokkurt nú þegar. Fé mun ekki hafa verið flutt þangað af riðusvæðunum í austursýslunni en hey var flutt af landi þar sem riðusjúkt fé hafði gengið. Ekki er víst að öll kurl séu komin til grafar í sambandi við sölu á heyi og túnþökum af sýktum svæðum til ósýktra. Æskilegt væri fyrir V-Húnvetninga og aðra, sem búa í lítið sýktum eða ósýktum sveitum að taka höndum saman um varnir síns svæðis. Vestfirðir: Á Vestfjörðum var veikin staðfest skömmu eftir fjárskiptin. Pað var á Barðaströnd. Ekki er vitað hvernig veikin barst. Talað hefur verið um kaup á forustufé úr Eyjafirði, en alla staðfestingu vantar á því að sú sé orsökin. Veikin hefur farið mjög hægt yfir í líkingu við það sem gerðist víða á Norðurlandi og hefur ekki náð að breiðast um hálfan hreppinn á ald- arfjórðungi rúmum. Á Barða- strönd sést ekki kláði í riðukindum og er það eins og algengast er á Norðurlandi vestanverðu. Tjón hefur verið mjög tilfinnanlegt á einum bæ aðallega um langt skeið en veikinnar hefur orðið vart að marki á fleiri bæjum í sveitinni utanverðri. Síðastliðið haust var eytt nokkrum hjörðum þar sem riða hafði verið skæð. Nauðsynlegt væri að hreinsa vel til og sótt- hreinsa undir eftirliti dýralæknis húsin á þessum bæjum áður en fjárbúskapur yrði tekin upp að nýju á þessum jörðum. Nauðsynlegt væri að ljúka gerð reglugerða um fjallskil fyrirsvæðið og fella í hana orð um varnir svæð- isins þannig að flestir gætu við unað. Mað því móti mætti e. t. v. koma betra skipulagi á smalanir og fjallskil þar sem kapp og reip- dráttur hefur á stundum ráðið ferðinni. Nauðsynleg er fyrir alla aðila góð samvinna milli sveitar- félaga um fjallskil og varnarmál. Dalasýsla: í Dalasýslu fannst riðuveiki snemma árs 1979. Það var á einum bæ í Laxárdalshólfi í nyrðra varn- arhólfinu. Á þessum bæ hafði féð verið mikið til einangrað í 12—15 ár. Því kom mjög á óvart að riðu- veiki skyldi koma upp þar. Ekki er vitað hvernig veikin barst þangað. Þar náði riðuveikin sér ekki á strik. Öllu fé var lógað um haustið og hefur ekki neinn grunur vaknað um riðuveiki víðar á því svæði. Við lógun fjárins var safnað freyr — 175

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.