Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.1982, Qupperneq 9

Freyr - 01.08.1982, Qupperneq 9
til skiptanna hjá bændum, sem framleiðslan er meiri. Með þessu vil ég þó ekki segja að við ættum ekki að stunda ein- hvern útflutning á dilkakjöti. Ég held það sé rétt með tilliti til framtíðarinnar og þess að verð kunni að batna, að við reynum að halda einhverjum mörkuðum opnum. Færeyjamarkaðurinn tekur við um 700 tonnum af kjöti og mun þar nú vera best verð að fá. Brýnt að minnka sauðfjár- framleiðsluna — en það tekur nokkurn tíma. Brýnt er að minnka framleiðsluna — en það tekur nokkurn tíma. Menn hafa þá dregið þá ályktun að það sé raunar brýnt að draga úr sauðfjárframleiðslunni, en eins og ég áður sagði verður það ekki gert í haust. Það sem sköpum skiptir er hvernig ásetningurinn verður á næsta hausti og af því ræðst að mestu hver framleiðslan verður haustið 1983. En hætt er við því að það höfum við birgðir frá fyrri árum, þegar þessa er gætt að við munum sennilega eiga allt að 2000 tonn óseld í haust og við fáum kannski um 3700 tonn umfram innanlandsþarfir. Eru fvrirhugaðar einhverjar opin- berar ráðstafanir til þess að niinnka kjötfranileiðslnna? Það hefur mikið verið um það rætt, allt frá áramótum að hvað miklum samdrætti eigi að stefna og á hvern hátt eigi að framkvæma hann. Stjórnvöld hafa ekki, svo ég viti, markað ákveðna stefnu um það hve mikið skuli draga saman og hvernig eigi að standa að því og hvernig eigi að minnka við sig og hverjir eigi að stjórna því. Þá er það einnig úrlausnarefni hvað gera skuli við það ærkjöt sem kemur væntanlega á markað í Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri. haust og verður þeim mun meira, því meira sem dregið verður saman. Þetta er viðfangsefni út af fyrir sig sem ég sé ekki að verði leyst nema með töluverðri hjálp og góðum skilningi ríkisvaldsins. Ég álít að til þess verði ríkisvaldið að verja töluverðum fjármunum. Það er ótækt annað en að þeim bænd- um sem verða að fækka fé sé tryggt fullt verð fyrir þær ær sem þeir farga. Jafnvel þyrftu þeir að fá líka ákveðnar bætur fyrir afurðatjón, t. d. fullt dilksverð samkvæmt verðgrundvelli 1982. Þetta yrði þá einskonar verð- laun og hvatning til þeirra, sem hafa aðstöðu til þess að draga saman framleiðsluna en vitanlega eru aðstæður manna afar misjafn- ar til þess. Ef þetta fengist, og ég held að rnjög brýnt sé að fara að semja við stjórnvöld um það þá, yrði miklu léttara að fá menn til að draga saman. Hér hjá bændasamtökunum, þ. e. Búnaðarfélaginu, Stéttar- sambandi og Framleiðsluráði hafa menn rætt þessi viðfangsefni mjög ítarlega bæði hvaða stefna skuli mörkuð og hvernig, og að leiðbeiningaþjónustan einbeiti sér að þeim aðgerðum, sem stjórnvöld velja. Eflaust kæmi í hlut Stéttar- sambandsins eða Framleiðsiuráðs fyrst og fremst að framkvæma þær aðferðir. Úrræði vegna samdráttar í sauðfjárframleiðslu. Auðvitað eru ákveðnar for- sendur, sem menn vilja setja sér fyrir því hvernig þessi samdráttur yrði. Ég hygg að fyrsta forsendan sé FREYR — 601

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.