Freyr - 01.08.1982, Page 39
Molar
Frá Æðarræktarfélagi
íslands.
Stofnlánadeild landbúnaðarins
lánar nú fé til bygginga vegna dún-
hreinsunarstöðva og varðskýla í
æðarvarplöndum. Hefur Æðar-
ræktarfélag íslands óskað eftir því
að Byggingastofnun landbúnað-
arins geri tillöguuppdrátt af
tveimur gerðum varðskýla.
Fræðslurit um æðarrækt kemur
út á þessu ári. Höfundur þess er
Eysteinn G. Gíslason í Skáleyjum.
Æðarræktarfélagið vinnur nú að
því að fá til framkvæmda þings-
ályktun um vísindalega rannsókn á
lifnaðarháttum æðarfugls. Félagið
beitir sér fyrir auknum aðgerðum
til þess að fækka fuglvargi og mink,
og það vill að áfram verði haldið
tilraunum með uppeldi æðarunga.
Meðal annars, sem félagið vinn-
ur nú að er að hlunnindaráðunaut-
ur verði ráðinn í heilsársstarf, að
grásleppunet verði ekki lögð á
grynnra vatni en 12 föðmum, að
grásleppuveiðar verði ekki leyfðar
nær friðlýstu æðarvarpi en 5 km,
og miðar það að verndun æðar-
fugls.
Stjórn Æðarræktarfélags ís-
lands skipa nú Ólafur E. Ólafsson,
formaður, Sigurlaug Bjarnadóttir,
og Eysteinn G. Gíslason. Ráðu-
nautur í æðarrækt er Árni G. Pét-
ursson.
Blýmengun við vegi
í Noregi er varað við að rækta
blaðgrænmeti svo sem salat, per-
sillu og sellerí nálægt miklum um-
ferðarvegum vegna hættu á blý-
mengun. Rannsóknir sýna þó að
10—15 metrum frá vegi dregur
verulega úr þessari hættu. Meng-
unin stafar af því að blýi er bætt í
bensín til að hækka oktantöku
þess, þ. e. sjálfsíkveikjumark
bensíns.
Baráttan við bjölluna kostaði
nkr. 170 milljónir á árunum
1979—’81. Þar af greiddi ríkið 80
milljónir en skógareigendur af-
ganginn.
Norinform.
Veto
AMOKSTURSTÆKI
VETO F-10 ámoksturstækin eru fáanleg á allar tegundir dráttavéla.
Allir vökvatjakkar eru tvívirkir. Standarar eru áfastir gálga svo taka
má tækin frá hvar sem er.
Hægt er að fá margs konar fylgihluti við tækin, svo sem ýtublað,
heykvísl og lyftarakló.
BOÐI f
ÁSBÚÐ 12 - 210 GARÐABÆ - SlMI 91-44573
BOX 89