Freyr

Volume

Freyr - 01.08.1982, Page 36

Freyr - 01.08.1982, Page 36
Óttar Geirsson: Beitarfélög / Noregi hefur um nokkurt árabil þekkst, ad tveir eða fleiri kúabændur hafa stofnað með sérfélag til að rækta beitiland handa mjólkurkúm yfir sumarið. Félagsskap af þessu tagi mœtti kalla beitarfélag og beitina félagsbeit. þess að meiri hey eru til. l’ar sem ræktunarskilyrði eru erfið getur munað vcrulega í heyöflun um þann túnhluta, sem færi undir kúabeit, væru kýrnar heima. Töluverð fjárfesting liggur í ræktun, girðingum og aðstöðu við félagsbeitina. í Noregi eru veitt rífleg fjárframlög frá ríkinu til beitarfélaga. Kýrnar eru hafðar á félagsbeitinni allan sólarhringinn og mjólkaðar í húsi eða skýli við beitilandið. Oft er notast við einfaldan, óeinangr- aðan bárujárnskúr eða bragga yfir mjaltabás og mjólkurgeymi. í Noregi er meðalkúafjöldi á félagsbeit 80 kýr. Einn maður sér um kýrnar og hirðir beitilandið yfir sumarið. Stundum skiptast fé- lagsmenn á um starfið, en oftar mun sérstakur kúahirðir ráðinn allt sumarið. Hann er oft ráðinn sem afleysingamaður að vetrinum á þeim búum, sem að beitarfé- laginu standa. Við nýrækt og girðingavinnu í upphafi vinna allir félagar eftir aðstæðum. Sameiginlegur kostn- aður skiptist eftir gripafjölda og mjólkurmagni. Stærstu kostnað- arliðir við rekstur félagsbeitar- innar eru áburður og laun kú- ahirðis. Kostir félagsbeitar eru ýmsir. Bóndinn er ekki rígbundinn við búskapinn yfirsumarið. Hann get- ur leyft sér að taka meiri frí en annars, jafnvel að fara í smá- ferðalag. Við það að losna við að sinna kúnum yfir sumarið, gefst betri tími til að sinna öðrum störf- um á búinu og gera ýmistlcgt það sem lenda vill í undandrætti og er jafnvel aldrei gert, þegar menn eru bundnir bæði kvölds og morgna við mjaltir. Annar ávinningur er betri beit. Fjölgi menn ekki kúnum vegna þeirrar beitar sem sparast heima, má fóðra betur að vetrinum vegna Holdanautastofninn í Hrísey Nýlega kom át skýrsla um holdanautastofninn í Hrísey fyrir árin 1975—'81. Skýrslan er 56 síður og er prentuð sein fylgirit ineð Frey. Skýrslan er með líku sniði og nautaskýrslur þœr sein Freyr hefur birt á undanförnum árum að því viðbœttu að Jónas Jónsson sem var formaður stjórnar Sóttvarnarstöðvarinnar í Hrísey á í henni greinum stofnun og uppbyggingu stöðvarinnar. Skýrslan verður send öllum viðskiptamönnum Nautastöðvar Búnaðarfélags Islands á Hvanneyri, en í þeirra hópi eru nær allir kúabœndur á landinu. Margir þeirra eru jafnframt áskrifendur Freys. Skýrslunni verður ekki dreift með blaðinu, en áskrífendum verður send hún þeim að kostnaðarlausu og þurfa þeir einungis að koma óskum um það áframfæri við afgreiðslu blaðsins, munnlega eða skriflega. Bændaorlof á Hvanneyri Bændaskólinn á Hvanneyri býður sveitafólki til orlofsdvalar vikuna 15.- 21. ágúst n. k. Dagskrá orlofsvikunnar verður með líku sniði og undanfarin ár, en mótast þó af áhuga dvalargesta. Dvalarkostnaður á þáttakanda er áætlaður kr. 2.100 oger þá innifalið fullt fæði, gisting á 2ja manna herbergjum með uppbúnum rúmum og ferðakostnaður í hópferðum. Börn fá 40% afslátt. í hópferðunum verður farið um sögustaði í Borgarfirði, heimsótt fyrirtæki og skoöuð bændabýli. Frekari upplýsingar fást í síma 93-7000 og þar er einnig tekið á móti pöntunum. Magnús B. Jónsson, skólastjóri. 628 — FREYR

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.