Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1982, Blaðsíða 27

Freyr - 01.08.1982, Blaðsíða 27
Æfing í skotfimi á Stjórnarsandi með haglabyssum og leirdúfum. verið að um 10 000 íslendingar stundi nú skotveiðar í einhverri ntynd. Óhætt mun að fullyrða að stór hluti þessarra manna stundi skotveiðar fyrst og fremst sem sport. Útilífsiðkun til hollustu og ánægju er enn ungt fyrirbæri í ís- lensku þjóðlífi og því er eðlilegt, að staða hennar í heild og ein- stakra greina hennar, eins og skotveiða, hafi verið nokkuö óviss og nokkurn tíma og jafnvel átök hafi tekið að vinna henni viður- kenningu og heppilegan sess í nú- tíma íslensku þjóðlífi. Skotveiðifélag íslands og niarkmið þess. Skotveiðifélag íslands var stofnað 23. september 1978. Fyrir stofnun félagsins hafði farið fram mikil umræða um þörfina á stofn- un slíks félagsskapar og er það reyndar furðu seint, sem af stofnun félagsins varð. í lögum félagsins segir m. a.: „Markmið félagsins er að vinna skotveiðum verðugan sess mcðal útilífsíþrótta með: góðri meðferð skotvopna, góðri siðfræði veiði- manna, góðri umgengni við land og lífríki þess og góðum sam- skiptum við Iandeigendur". I stuttu máli eru tvö megin við- fangsefni félagsins réttur og uppfræðsla skotveiðimanna. Staða skotveiða, eins og annarra útilífsíþrótta. er enn í þróun og mótun og mun S. í. beita sér fyrir því að tryggja sanngjarnan rétt skotveiðimanna innan ramma núgildandi laga og í framtíðinni með setningu nýrrar veiðilöggjafar og jafnframt því mun S. í. vinna að samkomulagi við landeigendur um skipulagningu veiða á eignar- löndum. Skotveiðinienn og landeigendur. Núgildandi lög um fuglaveiðar kveða svo á um, að á eignar- löndum séu veiðar óheimilar nema með leyfi landeigenda og gildir það sama um ábúanda á leigujörð. þar sem veiðiréttur fylgir. Utan eignarlanda á afréttum og al- menningum, sem falla ekki undir fullkominn eignarrétt, er fugla- veiði öllum heirnil. Lögin unt þetta atriði eru skýr og vissulega skyn- santleg. Aftur á móti er eignarrétt- arstaða mjög margra afréttarlanda óskýr og hefur það oft á tíðum leitt til spennu og jafnvel ágreinings milli skotveiðimanna og þeirra, sem telja sig réttmæta eigendur afréttarlanda. Báðir aðilar reyna að sjálfsögðu að standa á sínum rétti og þar við situr nú í þeim málunt. S.I. hefur beitt sér fyrir góðum samskiptum við landeigendur og er mjög fúst til viðræðna og samn- inga við landeigendur um fyrir- komulag skotveiða. S. í. á nú full- trúa í nefnd skipaðri af Mennta- málaráðuneytinu til þess að gera tillögur um skipulagningu gæsa- veiða. í þeirri nefnd eru fulltrúar frá Búnaðarfélaginu, Stéttarsam- bandi bænda, Náttúrufræðistofn- un. Menntamálaráðuneytinu auk formanns nefndarinnar sern er Valtýr Sigurðsson, lögfræðingur. S. I. gerir sér vonir um, að gott samkomulag náist í nefndinni um æskilega tilhögun og skipulagn- ingu gæsaveiða, sem verði til hagræðis bæði fyrirskotveiðimenn og landeigendur. S. í. hefur í hyggju að beita sér fyrir því að sportveiðimenn fái eðlilega aðild Góður veiðimaður er sá sem: • virðir lög og reglur um veiðar • gætir fyllsta öryggis í meðferð skotvopna. • virðir óskráð siðalögmál skotveiðimana. • virðir rétt landeigenda • virðir land og lífríki • eykur stöðugt þekkingu sína og hæfni á öllum svið- um skotveiða. FREYR — 619

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.