Freyr

Árgangur

Freyr - 15.06.1987, Blaðsíða 6

Freyr - 15.06.1987, Blaðsíða 6
FRA STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1988 þurfa aö berast Stofnlánadeild landbúnaðarins fyrir 15. september næst- komandi. Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á framkvæmdinni, þar sem meðal annars er tilgreind stærð og byggingarefni. Ennfremur skal fylgja umsögn héraðsráðunautar, svo og veð- bókarvottorð. Þá skal fylgja umsögn búrekstraráætlun til 5 ára og koma þarf fram hverjir væntanlegir fjármögnunarmöguleikar umsækj- anda eru. Þeir sem hyggjast sækja um lán til dráttarvélakaupa á árinu 1988 þurfa að senda inn umsóknir fyrir 31. desember nk. Eldri umsóknir falla úr gildi 15. september næstkomandi. Sérstök athygli er vakin á því að Stofnlánadeild landbúnaðarins er óheimilt lögum samkvæmt að fara á eftir öðrum veðhöfum en opinberum sjóðum. Lántakendum er sérstaklega bent á að tryggja sér veðleyfi vegna væntanlegrar lántöku frá Lífeyrissjóðum, öðrum en Lífeyrissjóði bænda og öðrum þeim aðilum, sem eru með veð í viðkomandi jörð. BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS STOFNLÁNADEILD LANDBUNAÐARINS

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.