Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.03.1990, Qupperneq 14

Freyr - 15.03.1990, Qupperneq 14
Vísir að kynbótum á bleikju hérá landi Nú er verið að innrétta tilraunaaðstöðu í fiskeldi í Straumfrœðihúsi Orkustofnunar á Keldnaholti og hefur fiskeldishópur Búnaðarfélags Islands wnsjón með því verki. Petta komfram í viðtali við Óskar ísfeld Sigurðsson, fiskeldisráðunaut B.í. stofnum víðsvegar af landinu og er ætlunin að ala þá í merkingarhæfa stærð. Sama verður gert við hluta af þessum stofnum á Hólum í Hjaltadal. Að lokinni merkingu á einstök- um fiskum verður þeim blandað saman og skipt niður í 5-6 jafn- stóra hópa og þeir settir í eldi út um land. Þetta er hugsað sem fyrsti vísir að kynbótum á bleikju hér. Framleiðnisjóður landbúnaðar- ins og Rannsóknasjóður ríkisins hafa styrkt þetta verkefni. Rannsóknaráð ríkisins hefur af sinni hálfu skipað verkefnastjórn. í henni eru: Össur Skarphéðinsson, formaður, Stefán Aðalsteinsson, Vigfús Jóhannsson, Tumi Tómas- son, Óskar ísfeld Sigurðsson, Þor- valdur Garðarsson og Þuríður Pét- ursdóttir. J.J.D. Rannsóknastofnun landbúnaðar- ins hefur tekið Straumfræðihúsið á leigu til fimm ára. Veiðimálastofn- un, Rannsóknastofnun landbún- aðarins og Búnaðarfélag Islands hafa gert samkomulag um sameig- inleg not af húsinu til rannsókna og hyggst Búnaðarfélag íslands nýta niðurstöður úr þeim til leiðbein- inga. í samkomulaginu er gert ráð fyr- ir að utanaðkomandi aðilar geti fengið aðstöðu til rannsókna í hús- inu. Tveir fulltrúar frá hverri stofnun mynda með sér faghóp sem á að tryggja að húsið nýtist vel til álit- legra verkefna. Fyrsta verkefnið verður saman- burðartilraun með bleikjustofna. Safnað hefur verið saman bleikju- Smári hf. á Porlákshöfn er brautryðjandi í bleikjueldi hér á landi. Ljósm. Óskar Isfeld Sigurðsson. Við þurfum á fullvirðisrétti okkar að halda Frh. afbls. 213. Stærsta réttlætismál í mínum huga varðandi búskap og mannlíf í Breiðdal er að sá réttur sem við höfðum til sauðfjárframleiðslu fyr- ir niðurskurð og fellur út með þeim sem ætla ekki að halda áfram. verði ekki allur af okkur tekinn. Ef þessi réttur hverfur er lífs- grundvöllurinn tekinn frá okkur nema örfárra manna í öðrum búskap, einkum mjólkurfram- leiðslu. M.E. 214 Freyr 6. MARS 1990

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.