Freyr - 15.03.1990, Side 21
Vélar& I
hkHHAHRhh
þjónusta hf
1. tölublaö 2. árgangur 1990
Case IH 885 XLA 85 hestöfl meö Veto FX15 moksturstækjum
NýVETOFX
moksturstæki
Veto moksturstækin frá
Thrige Agro byggja á 40 ára
reynslu, eöa allt frá árinu 1950.
Síöustu tvö árin hafa verið
þau umsvifamestu hjá Thrige
Agro í sölu á Veto moksturs-
tækjum. Líklega má rekja þá
miklu söluaukningu, sem orðið
hefur þessi tvö ár, til hönnunar-
innar á nýju FX línunni.
Salan á nýju Veto FX tækjun-
um hefur stóraukist allstaðar í
Evrópu þar sem FX tækin hafa
verið sett á markað. Markaðs-
hlutdeild þeirra í Danmörku er til
dæmis um 50%, en tækin eru
seld þar á allar algengustu
gerðir dráttarvéla.
Breytingar frá eldri gerö eru
miklar og má þar nefna að
festingar eru nú í heilu lagi og
sérstaklega langar, tilaðtryggja
að dráttarvélin fái þann styrk sem
nauösynlegur er til að standast
álagið sem íylgir notkun mokst-
urstækja.
Hraðtengibúnaðurinn er
almennt talinn sá hraðvirkasti í
heimi og liggur hann nær
dráttarvélinni og neðar, og er
því yfirsýn úr dráttarvélinni miklu
betri en áður.
Mjög einfalt er að tengja tækin
við vélina og aftengja þau,
einnig er fyrirkomulag vökva-
tengja miklu betra en áður var.
Skóflusveifla hefur verið
stóraukin, sem gerir alla vinnu
léttari og þægilegri.
Hægt er að velja á milli þess
að tengja tækin inn á stjórnventla
í dráttarvélinni eða að tengja við
þau sérstakan stjórnbúnað í
tveimur eða einni stöng.
í tækjunum er tvöfaldur U-
prófíll og fremsti endi tækjana er
gegnheill til að standast betur
það álag sem á honum er.
Brotkraftur skóflutjakka er
38% meiri en lyftitjakka sem er
til að tryggja örugga meðhönd-
lun þess sem verið er að lyfta.