Freyr - 15.03.1990, Blaðsíða 34
Handbók bænda 1990
HANDBÓK
BÆNDA
1990
Út er komin Handbók bænda
fyrir árið 1990, sem er40. árgangur
ritsins.
Hlutverk Handbókar bænda er
eins og áður að birta uppsláttarefni
fyrir bændur. Sumt af því er
óbreytt um nokkurt árabil, svo
sem ráðlagðir áburðarskammtar
og áburðartegundir á markaði.
Sama gildir um fóðurþarfir búfjár.
Annað breytist að nokkru ár frá
ári, svo sem naut í Nautaskrá,
hrútar á sæðingarstöðvum og stóð-
hestar sem eru í notkun. Þá eru
margar töflur og tölulegar upplýs-
ingar sem birtar eru ár eftir ár en
með endurskoðuðum texta og töl-
um í hvert sinn, óbreyttum og
breyttum. Þar má nefna lánareglur
Stofnlánadeildar landbúnaðarins,
Hagtölur landbúnaðarins og áætl-
anir um kostnað við ræktun, fram-
ræslu og girðingar.
Þá má nefna kaflann um stjórn
búnaðarmála, félög og stofnanir
sem er í sífelldri endurskoðun.
Bæði er kerfið í sífelldri endurnýj-
un, starfsemi er lögð niður en ný
starfsemi tekin upp, og á hverju ári
verða margar mannabreytingar
innan þess. Að þessu sinni verður
m.a. sú breyting á þeim kafla að
birt er símfaxnúmer stofnana land-
búnaðarins eftir því sem vitað var
um þau, en fjölmargar stofnanir
komu sér upp slíkum búnaði á
árinu 1989.
Þá er ótalið það sem á að vera
krydd hvers árgangs Handbókar-
innar en það eru nýjar greinar. Af
einstökum efnisflokkum er þar ít-
arlegast fjallað um framleiðslu
nautgripakjöts. Þá er fjallað um
votheysgerð og tvær greinar eru
um garðyrkju; um þokusvælingu í
gróðurhúsum og um gúrkuaf-
brigði.
I kafla um hagfræði er ný grein
um afköst búvéla sem ætluð er að
koma að notum við áætlanagerð í
búskap.
Þá er ný grein eftir Benedikt
Jónsson framkvæmdastjóra Líf-
eyrissjóðs bænda um lánveitingar
Húsnæðisstofnunar ríkisins. Þar er
m.a. gerð grein fyrir hinu svokall-
aða Húsbréfakerfi sem sett var á
laggirnar á árinu 1989.
Búnaðarfélag íslands gefur út
Handbók bænda, en ritstjórar eru
Matthías Eggertsson og Óttar
Geirsson. Búnaðarfélagið annast
dreifingu bókarinnar. Handbók
bænda 1990 er 444 bls. Hún kostar
kr. 1.350, en kr 1.485 send gegn
póstkröfu.
BÁRUPLAST
Framleiðum báru- og tropizulogað plast í
mörgum stœrðum og gerðum, vel glcert.
íslensk framleiðsla.
Fyrirliggjancli á lager: plötujárn, flatjárn,
rúnjárn, I- og U bitar, vinklar o.fl.
J. HINRIKSSON HF.
Súðarvogi 4, 104 Reykjavfk.
Símar: 91 -84677, 91-84380 og
91-84559
234 Freyr
6. MARS 1990