Freyr

Årgang

Freyr - 15.06.1990, Side 18

Freyr - 15.06.1990, Side 18
Hákon Sigurgrímsson, framkvæmdastjóri Stéttarsambands bænda EB, EFTAog landbúnaðurinn III Þjónusta og fjármagn. 1 þessari grein verður greint frá helstu atriðum semfram hafa komið varðandi viðræður um afnám hindrana á sviði þjónustu og fjármagnsviðskipta. Sameiginlegt þjónustusvæði. Kannaður hefur verið áhugi aðila á að skapa sameiginlegan evrópskan markað um þjónustuviðskipti, enda er hvers kyns þjónustustarf- semi stór og vaxandi þáttur í efna- hagslífi allra iðnþróaðra ríkja. EFTA-ríkin hafa lýst sig reiðubúin að hefja viðræður við EB með það að markmiði að koma á sameigin- legu Evrópsku efnahagssvæði fyrir þjónustuviðskipti og fjármagns- hreyfingar. Jafnframt hafa þau lýst sig reiðubúin til að byggja á megin- reglunum um gagnkvæma viður- kenningu, samræmingu á starfs- reglum og stöðlum og eftirlit heimaríkis til þess að koma á óhindruðum þjónustuviðskiptum milli landa innan Evrópska efna- hagssvæðisins. Ef samningar takast á þessu sviði myndi eitt rekstrarleyfi duga um allt svæðið, gagnkvæm viður- kenning mundi ríkja, nauðsynleg- ustu starfsreglur og staðlar yrðu samræmdir og viðeigandi eftirlit og stjórn yrðu í höndum heimalands. Fulltrúar EFTA-ríkjanna telja fært að leggja reglur EB til grund- vallar í samningaviðræðum með þeim fyrirvara áð nánari skýringar þurfi á ýmsum atriðum og að sér- samninga yrði að gera um einstök atriði, þar sem EFTA-ríkin væru með varanlega eða tímabundna fyrirvara. I viðræðunum var sérstaklega fjallað um bankastarfsemi og aðra fjármálaþjónustu, vátryggingar, samgöngur, fjarskiptaþjónustu, rekstur upplýsingabrunna (gagna- banka), rekstur á sviði útvarps, sjónvarps og kvikmyndagerðar. Þá var einnig fjallað um fjármagns- flutninga og fjárfestingar yfir landamæri innan EB og EFTA. Hvernig snýr þetta við Island? Gjaldeyristekjur íslendinga af þjónustu námu árið 1988 samtals 23,6 milljörðum króna eða 27,7% af heildargjaldeyristekjum. Þar af námu tekjur af fargjöldum og ferðamannaþjónustu 58,2%, tekj- ur af varnarliðinu 21,7% og tekjur af annarri þjónustu 20,1%. A sama ári greiddu íslendingar fyrir þjónustu erlendis samtals kr. 32,5 milljarða eða sem nam 34,2% af gjaldeyrisútgjöldum. Þar af var greitt fyrir ferðaþjónustu og far- gjöld 57,5% en vextir af erlendum skuldum námu 28,1% og annað nam 14,4%. Þjónustujöfnuðurinn var því neikvæður fyrir íslendinga um 8,9 milljarða króna. Við stefnumörkun okkar íslend- inga á sviði þjónustuviðskipta við önnur lönd verður að hafa framan- greindar tölur í huga. Ferðaþjón- usta skiptir verulegu máli fyrir at- vinnulíf íslendinga og sama er að segja um vaxtagreiðslur þjóðarinn- ar. Aukin sala á þjónustu íslenskra fyrirtækja í öðrum ríkjum, fjár- magnstekjur og tekjur af fjármála- þjónustu erlendis geta stuðlað að jafnvægi ígjaldeyrismálum þjóðar- innar. Frjáls bankaviðskipti. í reglum Evrópubandalagsins er gert ráð fyrir heimild banka og fjármálastofnana til þess að selja þjónustu sína í öðrum löndum og til þess að starfa með fastri búsetu utan heimaríkis undir eftirliti bankaeftirlits heimaríkisins. Fulltrúar EFTA-ríkjanna hafa lýst sig fúsa til viðræðna um starfs- réttindi banka og fjármálafyrir- tækja á grundvelli reglna banda- lagsins, en hafa uni leið gert fyrir- vara vegna núgildandi ákvæða um starfsemi erlendra banka og fjár- málastofnana. Samkvæmt lögum um viðskipta- banka er erlendum aðilum óheim- ilt að eiga viðskiptabanka hér á 482 Freyr 12, JONÍ 1990

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.