Freyr - 15.06.1990, Page 25
Byggingaþjónusta Búnaðarfélags
W
Islands tekin til starfa
Byggingastofnun landbúnaðarins hefur verið lögð niður. í kjölfar þess hefur Búnaðar-
félag Islands sett áfót teiknistofu sem mun sérhæfa sig í útihúsateikningum fyrir bændur.
Mikilvœgt er að samhœfa hús og tœknibúnað í landbúnaði segir Magnús Sigsteinsson
forstöðumaður Byggingaþjónustu Búnaðarfélags íslands í viðtali við Frey.
Þegar stjórn Stofnlánadeildar
ákvað að leggja niður Bygginga-
stofnun landbúnaðarins, leitaði
hún eftir því við Búnaðarfélag
Islands hvort félagið vildi taka við
þeirri þjónustu við bændur að
hanna og teikna landbúnaðarbygg-
ingar.
Búnaðarfélagið lýsti sig reiðu-
búið til þess, og að setja upp teikni-
stofu sem yrði viðbót við starf
bygginga- og bútækniráðunautar
félagsins.
Þessa teiknistofu ætlum við að
setja á fót á miðju ári sagði Magnús
Sigsteinsson og hún er reyndar
þegar komin í gang að nokkru
leyti. Á þessari teiknistofu verða,
auk mín, Sigurður Sigvaldason,
verkfræðingur, sem lengi hefur
starfað fyrir landbúnaðinn, fyrst
hjá Landnámi ríkisins og síðan hjá
Byggingastofnun landbúnaðarins.
Hann kemur hingað sem fastur
starfsmaður og sér um burðarþols-
teikningar. Við höfum líka ráðið
Eystein Traustason tækniteiknara.
Þessi teiknistofa verður þar sem
Búreikningastofa landbúnaðarins
hefur verið til húsa, á annarri hæð
Bændahallarinnar.
Hvað er að segja af verkefnum fyrir
landbúnaðinn núna?
Þau eru í lágmarki um þessar
mundir. Það hefur dregið úr bygg-
ingum hjá bændum og þess vegna
eru verkefni teiknistofu ekki ýkja
Magnús Sigsteinsson.
mikil sem stendur. Við ætlum því
ekki að fara af stað með meira
mannahald til að byrja með heldur
en þessa þrjá sem ég taldi upp.
Viltu skýra nánar frá að hvaða
verkefnum teiknistofan vinnur?
Við ætlum að taka að okkur alhliða
teikniþjónustu fyrir bændur varð-
andi landbúnaðarbyggingar, þó
ekki íbúðarhús, a.m.k. ekki fyrsta
kastið. En við hönnum aðalteikn-
ingar af landbúnaðarbyggingum,
s.n. bygginganefndateikningar og
burðarþolsteikningar líka.
Ég tel að með því að efla teikni-
stofu fyrir bændur hjá Búnaðarfé-
lagi ísiands sé verið að samhæfa
leiðbeiningar til bænda enn betur
heldur en áður var meðan Búnað-
arbankinn rak teiknistofuna. Ég
vænti þess að með þessari sam-
þættingu við leiðbeiningaþjónust-
una geti bændur fengið markviss-
ari lausnir á landbúnaðarbygging-
um í framtíðinni. Við ætlum að
sjálfsögðu að fylgjast vel með öll-
um nýjungum, bæði innanlands og
utan, í byggingum og tæknibúnaði
sem notaður er í gripahúsum. Það
skiptir miklu að samhæfing sé í
þessu tvennu.
Þessi deild á að heita Bygginga-
þjónusta Búnaðarfélags Islands.
Við vinnum samkvæmt hliðstæðri
gjaldskrá og verið hefur hjá Bygg-
ingastofnun landbúnaðarins,
þannig að bændur geta fengið hér
aðalteikningar og burðarþols-
teikningar af landbúnaðarteikn-
ingum á mjög vægu verði. Gjald-
skráin verður bráðlega birt í Érey.
J.J.D.
Til sölu
Til sölu Maragon-sláttu-
vagn, árgerð 1984, á
tveimur hásingum, í góðu
lagi. Einnig súgþurrkunar-
blásari H-22, ásamt raf-
mótor, 10 hestöfl, eins fasa.
Upplýsingar í síma
93-47774.
12, JÚNl 1990
Freyr 489