Freyr

Árgangur

Freyr - 15.06.1990, Blaðsíða 27

Freyr - 15.06.1990, Blaðsíða 27
bændur kaupi nýjar fullkomnar vélar þá spari sumir með því að kaupa ódýrasta og ef til vill ófull- komnasta sætið. Þetta er að mínu mati misskilinn sparnaður. Auð- vitað verður hver og einn að meta hvenær er komið út í bruðl og óhóf, en sætin þurfa að vera fj aðr- andi, þokkalega bólstuð og þannig að bakið fái sem bestan stuðning. Titringurinn frá dráttarvélunum veldur álagi á líkamann. Hann Ieiðir upp eftir líkamanum og veld- ur oft miklu álagi á hálsinn. Gott sæti getur dregið úr titringnum. Það er slæmt fyrir líkamann að hafa stöðugan vinding í baki alltaf í sömu átt auk titringsins frá vélinni en það eru vinnuaðstæður bænda á dráttarvélum. Stutt hlé minnka álagið. Eins og fram kom í kaflanum hér á undan þá veldur vinna á dráttar- vélum einhliða álagi á líkamann. Það er talið minnka verulega álag- ið að taka stutt hlé. Hvíldin er mest í upphafi hlésins, þess vegna hafa stuttu hléin betri áhrif á líkams- starfsemina en færri og lengri hlé. Þegar setið er langtímum saman á dráttarvél er æskilegt að taka ör- stutt hlé, 3-5 mínútur á hverjum klukkutíma. í þessum stuttu hléum er best að fara af vélinni rétta úr sér og jafnvel liðka axlir og bak með léttum æfingum eða leggjast upp í loft á jörðina þar sem aðstæður leyfa. Góð vinkona Freys í Vesturheimi, Stefanía Sveinbjarnardóttir fjár- bóndi á Yeoman Farm í Ontario í Kanada, sendi kaffistofunni eftir- farandi pistil: Ég má til með að senda ykkur á kaffistofuna vísu sem mér barst fyrir skömmu. Tildrög þess voru að ég skrifaði grein fyrir Lögberg/ Heimskringlu um féð mitt og erfið- leikana með mæðiveikina og visn- una. Fyrir nokkrum dögum barst mér svo pakki í pósti frá Birni Jónssyni lækni í Swan River, Manitoba. í pakkanum voru þrjár bækur, „Göngur og réttir“ fyrsta og annað bindi og „Forystufé" og var Björn að gefa mér þær. En það sem kom mér til að brosa strax og ég sá pakkann var ferskeytla sem Munið að fjölbreytni við vinnu er af hinu góða. Stuttu hléin skila góðum árangri þannig að líkaminn endist lengur við vinnu og hættan á álagssjúkdómum minnkar. Björn hafði ort og skrifað utan á pakkann. Hún er svona: Visna fellir á og á ekkert finnst til varnar Ráðabestar reynast þá rollukerlingarnar. Þeta sýnir að þó svo íslendingar setjist að í öðrum löndum þá tapa þeir ekki þeirri list að kasta fram stöku. Björn sagði mér, þegar ég hringdi í hann til að þakka bækurn- ar, að hann hefði engan til að tala íslensku við að staðaldri. Samt fann ég ekki neinn hreim á því máli sem hann talaði. Kaffistofan þakkar Stefaníu kærlega fyrir bréfið. Rollukerlingarnar ráðabestar. BÁRUPLAST Framleiðum bóru- og trapizulcigcið plast í mörgum stœrðum og gerðum, vel glcert. íslensk framleiðsla. Fyrirliggjandi á lager: plötujárn, flatjárn, rúnjárn, I- og U bitar, vinklar o.fl. J. HINRIKSSON HF. Súðarvogi 4, 104 Reykjavík. Símar: 91-84677, 91-84380 og 91-84559 12. JÚNl 1990 Freyr 491

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.