Freyr - 15.06.1990, Qupperneq 39
lambanna og sýnir tafla 10. hlut-
fallslega frjósemi þeirra.
Frjósemi Reykhólagemlinganna
var umtalsvert meiri en þeirra af
Hestsstofni og munar þar 19 lömb-
um eftir hverja 100 gemlinga.
Hugsanleg skýring á þessu er sú,
að um mun meiri fósturdauða,
snemma á meðgöngu vegna of
mikils hitaálags, sé að ræða hjá
gemlingum af hinum þéttholda
Hestsstofni en gemlingum af hin-
um gisvaxna Reykhólastofni.
Einnig kemur til greina, að hér sé
um að ræða áhrif af mismunandi
áherzlum við úrval, en það ætti af
skýrast á næstu árum.
Alls fæddust 139 lömb undan
122 gemlingum sem báru eða 1,14
lömb á gemling. Af þeim fæddust
5 dauð, 6 dóu í fæðingu og 3 mis-
fórust frá fæðingu til rúnings og eitt
vantaði á heimtur. Tafla 11. sýnir
fæðingarþunga lamba eftir kynj-
um, burði og stofnum.
Meðalfæðingarþungi allra
lamba reyndist 3,37 kg. Tví-
lemgingar af Hestsstofni voru
fæddir 0,56 kg (21,6%) þyngri til
jafnaðar en tvílemingar af Reyk-
hólastofni, en fæðingarþungi ein-
lembinga var að heita má hinn
sami, 3,70 kg, hjá báðum stofnum.
Tafla 12 sýnir vaxtahraða geml-
ingslamba frá fæðingu til rúnings
30. júní. Aðeins eru tekin með
heilbrigð lömb, sem gengu ein
undir.
Taflan sýnir að vöxtur gemlings-
lamba af Heststofni var umtalsvert
meiri en lamba af Reykhólastofni.
Þannig munar 14,6% á vexti hrút-
Iamba, 20,7% á vexti gimra og í
heildina 15,5% Hestlömbum í vil.
Þessi munur í lambavexti hélst þar
til lömbunum var slátrað, sem
ýmist var í sumarslátrun 22. ágúst
eða á venjulegum sláturtíma að
hausti, og verður gerð nánari grein
fyrir sláturafurðum og kjötmæling-
um stofnanna í annarri grein hér í
Frey.
Slátrað var 13 ám veturgömlum,
þar af voru 12 sem fóru yfir varnar-
línu sem áður er minnst á. Af þeim
voru 5 af valda Heststofninum, 3 af
Tafla 10. Frjósemi gemlinganna, í % og lömb eftir hvern gemling.
Tví- Ein- Al- Létu Lömb/
Flokkar Tala lembdir % lemdir % geldir % % geml.
Hestsstofn............ 49 14.3 65.3 18.4 2.0 0.94
Reykhólastofn...... 40 20.0 72.5 5.0 2.5 1.13
Afkv.rannsókn .... 41 2.4 90.3 7.3 0.95
Önnur.................. 9 11.1 77.8 11.1 1.00
Meðaltal ........... 139 12.2 75.5 10.8 1.5 1.00
Tafla 11. Meðalfæðingarþungi gemlingslamba, kg.
Flokkar Tvílembingar Einlembingar Meðal-
Tala H Tala G Tala H Tala G tal
Hestsstofn 9 3.21 7 3.07 16 3.85 16 3.54 3.51
Reykhólastofn .......... 8 2.56 6 2.64 18 3.78 11 3.59 3.35
Afkvæmarannsóknir........ 2 3.10 11 3.56 26 3.29 3.36
Önnur................... 2 2.15 4 3.28 3 2.73 2.85
Meðaltal 21 2.85 13 2.87 49 3.71 56 3.39 3.37
Tafla 12. Meðalvaxtahraði gemlings lamba g á dag.
Hrútar Gimbrar Bæði kyn
Stofn..................... Tala g/dag Tala g/dag Tala g/dag
Hestsstofn.................. 18 283 16 268 34 276
Reykhólastofn .............. 21 247 10 222 31 239
Aficvæmarannsókn............ 12 220 21 254 33 242
Önnur........................ 5 287 3 201 8 255
Meðaltal 56 256 50 249 106 253
Reykhólastofni og 4 úr dætrahóp-
um.
Vanhöld.
Af 570 ám tveggja vetra og eldri
og 140 lömbum, sem sett voru á
haustið 1988, fórust 35 ær og 5
gemlingar eða alls 41 kind (5,6%).
Einn hrútur fullorðinn drapst eftir
fengitíma. Orsakir vanhaldanna
voru: 1 vantaði á heimtur, 5 fóru
afvelta, 6 fórust í skurðum, júgur-
bólgu og júgurdrep 3, fóstureitrun
I, sprungið leg 1, garnaeitrun 1,
doði 1, slys 2, vanþrif 1 og óviss
orsök 9.
Af 1118 lömbum sem fæddust
alls á búinu misfórust 126 eða
II, 3%, sem er með mestu van-
höldum, sem orðið hafa á Hesti.
Orsakir vanhalda voru þessar;
fædd dauð 27, dóu í fæðingu 14,
misfórust á húsi, túni og í úthaga
fram að rúningi 60, dauð eftir
rúning og vantaði á heimtur 25.
Orsakir vanhalda voru helstar:
fædd veikburða, hnjask í stíum,
mjólkureitrun úr júgurbólgu ám,
drukknun í skurðum.
Keypt fé og selt.
Búið keypti 40 gimbrar og 5
lambhrúta frá Tilraunastöðinni á
Reykhólum og seldi 2 lambhrúta.
Sauðfé sett á vetur.
Haustið 1989 voru settar á vetur
530 ær tvævetur og eldri 173
lambgimbrar, alls 703 kvendýr, 18
lambhrútar af heimastofni og 5 af
Reykhólastofni, 16 hrútar full-
orðnir af heimastofni, og 5 af
Reykhólastofni. Fyrir áramót
fórust 7 ær, 4 fundust dauðar í
skurði eftir ofsaveður 30. október,
2 fundust afvelta og ein týndist í
nóvember.
Ritað í apríl 1990.
ll.JÚNÍ 1990
Freyr 503