Freyr

Årgang

Freyr - 15.04.1991, Side 13

Freyr - 15.04.1991, Side 13
8.’91 FREYR 325 Aðalfundur Mjólkursamsölunnar í Reykjavík 1991 Aðalfundur MS1991 var haldinn 15. mars sl. Meðal þess sem þar kom f ram var eftir- farandi: Afkoma MS var góð á árinu 1990 sem má aðallega rekja til stöðugs verðlags og hagstæðrar vaxta- og gengisþróunar samfara þjóðarsáttinni. Sala á sérunnum mjólkurvörum jókst um 11% frá árinu áður og nemur söluvelta þeirra nú tæpum 30% af heildur- veltu mjólkurvara. Á hinn bóginn dróst sala á hefðbundnum mjólk- urvörum saman um 0,9% frá árinu áður. Síðastliðin níu ár hefur sala MS á hefðbundnum mjólkurvörum ver- ið svipuð, eða um 30 milljón lítrar á ári. Á sama tíma hefur íslending- um fjölgað um 8,6% og íbúum á höfuðborgarsvæðinu um 15%. Hér munar mestu um minni neyslu á nýmjólk. Sala á léttmjólk og undanrennu hefur á hinn bóginn aukist hjá MS jafnt og þétt á undanförnum árum. Rúmum 7 millón lítrum af léttmjólk var pakkað í fyrra eða 8,21% meira en árið 1989 og tæp- um tveimur og hálfum milljónum lítra af undanrennu eða 14,82% meira en árið árið. Á árinu 1990 var tekin upp sú nýjung að taka mið af prótein- innihaldi mjólkurinnar auk fitu- innihaldsins við ákvörðun grund- Vallarverðs mjólkur. Þessi breyting er eðlilegt framhald af breyttum áherslum í mataræði íslendinga en sífellt fleiri kjósa fituminni mat. Mjólkurfitan hefur m.ö.o. verið „verðfelld" ef svo má að orði kom- ast. Niðurstöður Rannsóknarstofu MS sýna að gæði ferskra mjólkur- afurða hafi verið mikil í fyrra. Á hinn bóginn leiddu mælingar í ljós að hitastig í mjólkurkælum er of hátt í sumum verslunum, sem get- ur spillt mjög gæðum mjólkuraf- urða. Þá þyrftu mjólkurkælar að stækka þar sem úrval mjólkurvara hefur aukist til muna undanfarin ár og verslanir eru almennt orðnar stærri að gólffleti en áður. MS setti 13 nýjar tegundir mjólkurvara á markaði í fyrra. Það er svipað og undanfarin ár en að jafnaði koma um 10 til 15 nýjungar á markað á ári. Aukin eftirspurn eftir sérunnum mjólkurvörum og fjölbreyttara framboð gerir að verkum að „líftími" hverrar nýj- ungar verður sífellt styttri. Nýjung- arnar í fyrra voru 4 tegundir af skólajógurt, 2 tegundir af eðaljóg- urt, smámáli og þykkmjólk og tvær nýjar gerðir af ídýfum. í stjórn MS sitja Magnús Sig- urðsson, Birtingaholti, sem er jafnframt formaður, Vífill Búason, Ferstiklu, Sigvaldi Guðmundsson, Kvisthaga, Snorri Þorvaldsson, Akurey, og Guðmundur Þor- steinsson, Skálpastöðum, en hann kemur í stað Gunnars Guðbjarts- sonar, sem lést nýlega. (Fréttatilkynning frá UPL). I

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.