Freyr - 15.04.1991, Qupperneq 24
336 FREYR
8.’91
Nokkur dæmi um námskeið eru
sem hér segir:
Landbúnaðarstefnan í dag: Til-
gangurinn er að efla grundvallar-
þekkingu á ríkjandi landbúnaðar-
stefnu og alþjóðlegri landbúnaðar-
pólitík og lýsa þróunarmöguleika
landbúnaðar á Norðurlöndum.
Landbúnaðurinn og umhverfið:
Umfjöllun um vatna- og vistkerfi.
áhrif loftmengunar á landbúnað og
hvernig bændur geta bætt um-
hverfi síns eigin búskapar.
Að vinna með fjölmiðlum: Til-
gangurinn er að sýna fram á mikil-
vægi þess fyrir landbúnaðinn að
vinna með fjölmiðlum og einnig að
æfa þátttakendur í þáttagerð og
viðtölum.
Samvinnuhugsjónin ogþróunar-
möguleikar hennar: Tilgangurinn
er að skapa betri heildarsýn yfir
samvinnuhreyfinguna og bænda-
samtökin og ræða þá framtíðar-
möguleika sem fyrir hendi eru fyrir
samvinnu bænda bæði innanlands
og á alþjóðlegum vettvangi.
Landbúnaðurinn og þjóðfélags-
þróunin: Fyrirlestrar, hópvinna og
umræður um þjóðfélagsþróunina
og landbúnaðinn. Einkum ætlað
fólki sem tekið hefur að sér trúnað-
arstörf fyrir bændasamtökin.
Litli vinnustaðurinn: Yfirlit yfir
það hvernig bóndinn getur gert
vinnustað sinn að góðurn stað
ásamt áætlanagerð, vinnustjórnun
og lausn vandamála.
Frantíðarsýn árið 2010: Á hvern
hátt mætum við breytingum í þjóð-
félaginu og landbúnaðinum og
hvernig höldum við að landbúnað-
urinn verði árið 2010? Á hvern hátt
getum við haft áhrif á þróunina
þannig að hún verði jákvæð fyrir
landbúnaðinn.
Námsskeið fyrir ungliða innan
bændasamtakanna: Ungt fólk í
landbúnaði er með virk samtök
innan LRF og á hverju ári eru
haldin hin ýmsu námskeið fyrir
þessa hópa. Þar liggur áherslan á
félagsmálin og fræðslu í framsögn,
hópvinnu og leiðtogafræði, auk
margs annars.
Aðalbyggingin á Sánga-Saby en alls eru um 20 hús á svæðinu sem eru
gestahús, starfsmannahús, heimavistir og fyrirlestrasalir.
Námshópur 1989-1990 nýútskrifaður á tröppum Herragarðsins á Sánga-
Saby. Greinarhöfundur erfyrir miðju í öftustu röð.
fram spurningum og sýna sjálfs-
gagnrýni en til þess þarf kjark sem
þarf að byggja upp, en eitt hlutverk
samvinnu bænda er að byggja upp
sterka sjálfsímynd stéttarinnar
með háleit markmið í huga.
Um hvað f jalla einstök
námskeið?
Ráðstefnur þær sem haldnar eru á
Sánga-Sáby geta verið af ýmsum
toga. Þar koma allar greinar land-
búnaðar við sögu svo og vinnslu-
stöðvarnar. Samnorrænar ráð-
stefnur eru algengar sem og al-
þjóðlegar og mörg átaksverkefni
eru í gangi hvað varðar landbúnað
í þriðja heiminum og Austur-Evr-
ópu og þó sérstaklega í Eystrasalts-
ríkjunum.
Sé litið á hin ýmsu námskeið má
sjá að þau eru ólík að gerð en fjalla
öll, hvert á sinn hátt, um landbún-
að og eru fyrir bændur og fólk sem
starfar innan hinna ólíku sam-
banda innan landbúnaðarins.