Freyr - 15.04.1991, Page 39
8.’91
FREYR 351
4. Hafa á síðustu 12 mánuðum
unnið samtals a.m.k. 425 dag-
vinnustundir í tryggingarskyldri
vinnu.
Hafi maður stundað samfellt
vinnu fyrir og eftir að hann náði
16 ára aldri, öðlast hann rétt til
bóta, ef hann hefur unnið trygg-
ingarskylda vinnu a.m.k. þriðj-
ung tilskilins dagvinnutíma eftir
að hann varð 16 ára.
5. Sanna með vottorði vinnumiðl-
unarskrifstofu að þeir hafi verið
atvinnulausir.
Hér er aðeins rúm til þess að
rekja megin atriði þessara ákvæða.
I lögunum eru ýmis nánari ákvæði
um bótaréttinn og fyrirvarar í því
sambandi. Einnig ákvæði um
hámark bóta, bætur vegna barna
o.fl. Samkvæmt lögunum um at-
vinnuleysistryggingar er það skil-
yrði fyrir því að fá notið atvinnu-
leysisbóta að viðkomandi sé félagi
í stéttarfélagi. Þetta þýðir með
öðrum orðum að viðkomandi þarf
að gerast félagi í verkalýðsfélagi í
heimabyggð sinni eða því félagi
sem næst er vettvangi.
Verkalýðsfélögin opin öllum.
Allir sem taka laun samkv. kjara-
samningum verkalýðshreyfingar-
innar eiga rétt á að vera félagar í
stéttarfélögum innan hennar vé-
banda. Þetta gildir því um þá sem
vinna á bændabýlum og taka laun
skv. kjarasamningi Stéttarsam-
bandsins og VMSÍ eða öðrum hlið-
stæðum samningum. Þetta gildir
einnig um starfandi bændur og
húsfreyjur í sveitum og aðra þá
sem kunna að vinna daglauna-
vinnu sem hlutastarf eða hluta úr
árinu svo sem við sláturstörf, af-
leysingar, sjósókn eða fiskvinnu.
Með þátttöku sinni í stéttarfélagi
launþega öðlast þessir aðilar rétt-
indi sem slík þátttaka veitir í hlut-
falli við vinnuframlag sitt á þessum
vettvangi. Á þetta m.a. við um rétt
til atvinnuleysibóta og rétt til bóta
úr sjúkrasjóðum verkalýðshreyf-
ingarinnar.
Greiðsla í lífeyrissjóð.
Kjarasamningurinn kveður á um
að vinnuveitanda sé skylt að halda
eftir af kaupi starfsfólks 16 ára og
eldri iðgjaldi til lífeyrissjóðs, 4% af
öllum launum, og standa skil á því
ásamt mótframlagi sínu, 6% af öll-
um launum, til þess lífeyrissjóðs
sem næstur er vettvangi. Sé um að
ræða fólk úr fjölskyldu viðkom-
andi bónda, sem á lögheimili á
búinu, þá til Lífeyrissjóðs bænda.
Stéttarsamband bænda leggur
áherslu á mikilvægi þess að bændur
gæti þess að tryggja því unga fólki
sem hjá þeim vinnur, jafnt sínum
eigin börnum sem öðrum, þau rétt-
indi sem lífeyrissjóðirnir veita.
Sérhver greiðsla til lífeyrissjóðs,
þótt smá sé, er ávísun á réttindi
síðar í lífinu. Með samstarfi lífeyr-
issjóðanna er í flestum tilfellum
tryggt að þessi réttindi nýtast, enda
þótt greitt sé til margra mismun-
andi sjóða á starfsævinni.
Ráðningarsamningar.
Árlega koma upp all mörg tilvik
þar sem deila verður um ráðning-
arkjör milli bænda og fólks sem
þeir hafa ráðið tímabundið til
starfa. Til þess að koma í veg fyrir
slík atvik og óþægindi sem þeim
jafnan fylgja er öruggast að aðilar
geri með sér skriflegan samning
Aðsópsmikill loftrœningi.
Frh. afbls. 356.
um 82%. Kostnaður við að fækka
máf með skotum er mismunandi
eftir aðstæðum. Þannig kostaði
það a.m.k. 317 kr. að skjóta hvern-
fullorðinn máf á höfuðborgar-
svæðinu en 182 kr. á Suðurnesjum.
Ef hinsvegar allur kostnaður er
tekinn með í reikninginn, þ.m.t.
veiðar með svefnlyf, aksturskostn-
aður, eftirlit, stjórnun o. fl., og
verði ráðist í stórfelldar fækkunar-
aðgerðir, telja höfundar að kostn-
aður geti orðið u.þ.b. 396 kr/fugl.
Miðað við að stofninn sé í 10%
árlegri fjölgun reiknast heildar-
stofn sílamáfa u.þ.b. 110.000 fugl-
þar sem tekin eru fram öll helstu
atriði sem ráðninguna varða.
í kjarasamningi Stéttarsam-
bandsins og VMSI er tekið fram að
stefnt skuli að því að gerður verði
ráðningarsamningur vegna allra
þeirra sem ráðnir eru á sveitaheim-
ili samkvæmt ákvæðum samnings-
ins.
Stéttarsambandið hefur látið
sérprenta samningsform og geta
bændur fengið það á skrifstofum
búnaðarsambandanna og á skrif-
stofum verkalýðsfélaga. Einnig er
hægt að fá eyðublaðið hjá Ráðn-
ingastofu landbúnaðarins og á
skrifstofu Stéttarsambandsins.
Launauppgjör.
í kjarasamningnum er gert ráð fyr-
ir að laun séu greidd eigi sjaldnar
en einu sinni í mánuði um mánaða-
mót fyrir liðinn mánuð eða fyrsta
virkan dag næsta mánaðar.
Til þess að auðvelda frágang
launauppgjörs er hér í blaðinu
prentuð skrá yfir þau atriði sem
taka þarf tillit til við launauppgjör.
Hægt er að kaupa í bókabúðum
og rifangaverslunum handhægar
blokkir með launaseðlum og er
eindregið mælt með að bændur
verði sé úti um slík eyðublöð.
Hákon Sigurgrímsson er framkvœmda-
stjóri Stéttarsambands bœnda.
ar, auk unga, en sé hann í jafnvægi
reiknast hann tæplega 90.000. At-
hyglisvert er að höfundar telja að á
ári hverju þurfi að veiða yfir þriðj-
ung af kynþroska sflamáfum til
þess að hafa áhrif til fækkunnar.
Miðað við 40% veiði yrði kostn-
aður veiði á Suðvesturlandi á
fyrsta ári aðgerða 6,4 milljónir kr.
Höfundar leggja ekki dóm á hvort
fækka skuli sflamáf í stórum stíl en
benda hinsvegar á að nauðsynlegt
sé að fylgja þessum rannsóknum
eftir með athugunum á stofnbreyt-
ingum á Suðvesturlandi og láta þær
einnig ná til stærri svæða.
J.J.D.