Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1993, Blaðsíða 38

Freyr - 01.12.1993, Blaðsíða 38
874 FREYR 23.’93 Sauðkind gefið ormalyf. blásteinsvatn 1%, álúnvatn, sortu- lyngsseyði og lýsol- eða kreolins- vatn 1%. Best mun þó hafa gefist að nota tóbak og tóbaksseyði. Handa gemlingum eða haustlömbum var notað 10 grömm af blaðtóbaki eða munntóbaki. Var tóbakinu annað hvort troðið upp í kindina í smáum skömmtum, eða gert var seyði með því að sjóða þennan afmælda tó- baksskammt í pela af vatni og gefa veiku kindinni seyðið í þremur skömmtum á einum sólarhring. Lengi var hægt að fá tókbaksblöð tollfrjálst til þessara nota. í byrjun fjórða áratungarins hóf prófessor Niels Dungal rannsóknir á ormaveiki í sauðfé, en á þeim árum olli veikin óvenjulega miklu tjóni víða um land. Jafnframt gerði hann tilraunir með lyf sem ekki hafði áður verið notað hér á landi, tetra klórkolefni. Lyf þetta, sem síðar hlaut nafnið „Dungalslyf" í munni bænda, reyndist mjög vel að dómi flestra sauðfjáreigenda, töldu sumir það hreinan bjargvætt í baráttunni við ormaveikina. Um nær tveggja áratuga skeið var „Dungalslyfið“ almennt notað, enda mjög handhægt og fjótlegt að gefa það. Hinsvegar er nauðsynlegt að svelta féð fyrir og eftir inngjöf í sólarhring og féll mörgum fjár- mönnum það illa. Ennfremur gat verið varasamt ef féð komst í kvist- beit eða fjörubeit fljótlega eftir inngjöf. Olli það stundum tjóni á einstaka jörðum. Ekki settu menn það þó svo mjög fyrir sig og var lyfið notað um allt land að kalla, þar til nýtt ormalyf, „Pheno- thiasin" eða „græna duftið", fór að berast til landsins í lok fimmta áratugarins. Lyfið þurfti að hræra vel út í vatni fyrir inngjöf og hella í kindina. Var inngjöf því mun sein- legri heldur en verið hafði er „Dungalslyfið" var notað, sem gef- ið var með sérstakri pípu er tók afmældan skammt 5 cc. Þar sem Phenothiasin var hættulaust, fjöl- virkt og ekki þurfti að svelta féð fyrir inngjöf, tóku bændur fjótlega upp notkun þess. Fé sem fengið hafði Phenothiasin, þoldi fyrst á eftir illa snjóbirtu, fékk hvarma- bólgu, jafnvel ský á augum svo að byrgja varð það inni nokkra daga, þvagið varð rauðleitt og litaði ull- ina. Hvortveggja féll sumum fjár- mönnum illa. Þau ormalyf sem nú eru notuð handa sauðfé hér á landi, eru öll fjölvirk, eru virk bæði gegn iðra- og lungnaormum en tilheyra þrem- ur óskyldum lyfjaflokkum: benzimidasolum, levamisolum og avermectinum. í lok sjötta áratugarins kom á markað hér á landi lyfið thi- benzole, hættulaust og fjölvirkara en lyf sem áður voru hér á markaði fyrir sauðfé. Lyfið var ýmist fram- leitt sem kökur (boli) eða sem mixtura, tilbúið til notkunar. Thi- benzole vet. varð fljótt vinsælt lyf og leysti að mestu af hólmi þau lyf sem fyrir voru. Síðar var farið að nota önnur ormalyf af þessum sama lyfja- flokki, einkum fenbendazol lyf og eru lyfin Panacur vet. og Fenasol vet. nú í sérlyfjaskrá og víða notuð. Um svipað leyti og Thibenzole vet. varð fáanlegt, kom á markað- inn lyf af flokki levamisola, tetra- misol klóríð, sem hér á landi var selt undir nafninu Ripercol vet. Lyfið var látið út í töfluformi. Það virkar vel á þráðorma, en með öðrum hætti heldur en lyf af flokki benzimidasola. Því var ráðlagt að nota lyf af þessum tveimur lyfja- flokkum til skiptis. bæði til þess að ná betri árangri og til að forðast að fram kæmu ormastofnar sem væru ónæmir fyrir lyfjunum. Nú er eitt lyf á markaði hér sem inniheldur tetramisol klórið, Ormasol vet. Fyrir nokkrum árum síðan komu á markað hér á landi lyf af flokki avermectina. Þessi lyf eru mjög fjölvirk. Auk þess að vera virk gegn þráðorminum í melting- arvegi og öndunarfærum eru þau einnig virk gegn maurum og lúsum. I sumum héruðum hafa þau því verið notuð í stað sauðfjárbað- ana. Hér á landi eru á markaði tvö lyfjaform af þessum flokki ætluð sauðfé. Ivomec vet, sem er stungu- lyf og inniheldur ivermectinum og Oramec Drench vet. sem er mixtura tilbúin til inngjafa og inni-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.