Freyr - 01.07.1994, Page 17
Garðyrkjan er nokknð sér u parti i samfélagi bœnda. (Freysmynd)
ara kerfi. Ég taldi alveg öruggt að slík
breyting tæki mið af þörfum allra
búgreina, þ.á.m. garðyrkjunnar. Mér
fannst þetta mjög aðkallandi fyrir
okkur vegna veikrar stöðu greinarinn-
ar t.d. í EES og GATT.
Nú hafa bændur verið spurðir hvort
þeir vilji framangreinda sameiningu
og flestir svöruðu þessu játandi sem
kunnugt er.
Fyrir liggur að aðalfundur Stéttar-
sambandsins og auka Búnaðarþing
afgreiði málið t' lok ágúst, og sem
vinnuplagg þar verða drög að sam-
þykktum vegna sameiningarinnar sem
samþykkt voru á Búnaðarþingi í mars.
Ég geri mér Ijóst að sameiningar-
nefnd BÍ og SB hefur verið að fást við
erfitt og viðkvæmt verkefni. en ég get
ekki leynt vonbrigðum mínum yfir
því hve óljós staða lítilla búgreina er
nú sem fyrr.
Fátt hefur breyst hvað okkur varðar:
eftir sem áður er heimild fyrir því að
búgreinasamband fari með forræði
greinar sinnar á tilteknum sviðum (3.
gr.) og gert er ráð fyrir fagráðum (11.
gr.).
Framtíöin
I ræðu og riti hafa forystumenn
okkar bænda lagt áherslu á að mikil-
vægasta atriðið við sameininguna sé
það að í Bændasamtökum íslands geti
bændur þjappað sér saman og staðið
sterkari en fyrr. Ég er einn af þeim
garðyrkjubændum sem vilja enga
samleið með öðrum bændum. Þess
vegna vona ég að lögð verði mikil og
vönduð vinna í að tengja búgrein eins
og okkar við stjómkerfi hinna nýju
samtaka. Þar verða allar boðleiðir að
vera skýrar, stjómir og starfsmenn
færir um að skilgreina vandamálin og
bregðast skjótt við þegar þess er þörf.
Sú vinna hefur því miður ekki farið
fram ennþá.
Greinarhöfimdur er garðyrkjuhóndi.
Hann á sæti í Framleiðsluráði tandhún-
aðarins. er stjórnarmaður í Samhandi
garðyrkjuhænda og fyrrverandi kennari
við Garðyrkjuskóla ríkisins.
13-14*94 - FREYR 481