Freyr - 01.09.1998, Síða 9
Er það ekki þetta sem kallað er lostafullt bros?
Hliðstæð skipting á notkun frá
stöðinni í Borgarnesi sýndi eftirfar- andi skiptingu:
Borgarfjörður 2433 ær
Snæfellsnes 1663 ær
Dalasýsla 1736 ær
Barðastrandasýslur 483 ær
Strandasýsla 558 ær
Húnavatnssýslur 987 ær
Skagafjörður 18 ær
Múlasýslur 133 ær
Eins og ætíð var notkun á ein-
stökum hrútum ákaflega breytileg,
en með þeim hrútum sem hverju
sinni fá mesta notkun eru sæddar
rúmlega þúsund ær. Frá stöðinni í
Laugardælum var notkun langsam-
lega mest á Mola 93-986 en einnig
fengu mjög mikla notkun Garpur
92-808, Búri 94-806, Bútur 93-982,
Mölur 95-812, Þéttir 91-931 og
Dropi 91-975, en allt eru þetta
hymdir hrútar nema Búri. I Borgar-
nesi fékk Bjartur 93-800 mesta
notkun, en mjög mikil notkun var
einnig á Hnoðra 95-801, Sólon 93-
977, Byl 94-803 og Bjálfa 95-802,
en Sólon og Bylur em kollóttir en
hinir hymdir.
Tölulegt uppgjör liggur ekki fyrir
um árangur sæðinga frá stöðvunum.
Flest bendir samt til að yfirleitt hafi
víða verið góður árangur sæðinga
frá stöðinni í Laugardælum en
breytilegri frá stöðinni í Borgamesi.
Frá stöðinni í Borgamesi eru sæð-
ingar meira byggðar á sæðingum á
ám þar sem gangmál hafa verið
samstillt. Vísbendingar og reynsla
frá síðustu ámm er mjög á þann veg
að árangur við sæðingar á samstillt-
um ám sé verulega breytilegri en
þegar sæddar eru ósamstilltar ær.
Vafalítið verður þessi starfsemi að
laga sig að þeirri reynslu á næstu ár-
um.
Kostir samstillinganna em meiri
möguleikar á vali á ám sem sæddar
em og möguleikar á nákvæmara
skipulagi sæðinganna. A mjög
mörgum búum em gæði ærstofnsins
í dag allt önnur en var fyrir 10-20
árum og möguleikar á að fá sætt ær
sem eru álitlegar hrútsmæður því
mun meiri nú þó að aðeins séu
sæddar ær sem em að beiða á sæð-
ingadögum. Við sæðingar á ósam-
stilltum ám verður hins vegar aldrei
hægt að ná sömu nýtingu á sæði, en
því verða stöðvamar að bregðast við
með heldur fleiri hrútum í notkun en
ella. Stöðvamar verða einnig að
bjóða upp á sæðingar fleiri daga
samfellt á sama svæði og líklegt að
slíkt auki dreifingarkostnað eitt-
hvað. Rétt er einnig að nefna að síð-
ustu árin hefur allstór hópur bænda
notað þá aðferð að samstilla ær
gangmáli áður en sæðing á að fara
fram og þannig náð ágætum árangri.
Æmar verða þá að vísu að ganga á
tveim til þrem dögum þegar sæðing
fer fram. Þegar samstillingum er
sleppt sparast hins vegar kostnaður
vegna svampanna og ísetningar á
þeim. Þess vegna mælir margt með
því að sæðingar á ósamstilltum ám
aukist á næstu ámm og á þann hátt
verði reynt að bæta árangur sæðing-
anna.
Freyr 11/98-9