Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1998, Page 13

Freyr - 01.09.1998, Page 13
Frá Fjárrœktar- búinu á Hesti 1996- 1997 Haustið 1996 voru settar á vetur 461 ær veturgamlar og eldri, ll5 lambgimbrar, 14 lambhrútar og 21 hrútur fullorðinn. Fyrir áramót fórust 8 ær, 4 af þeim í skurðum fyr- ir hýsingu. Tvær ásetningsgimbrar misfórust yfir veturinn, báðar fyrir áramót og einn lambhrútur kviðrifn- aði og var honum fargað í nóvem- ber. Tafla l sýnir meðalþunga og meðalþyngdarbreytingar 453 áa eft- ir aldri, sem lifandi voru við maí- vigtun í byrjun sauðburðar, og mynd l þunga- og holdaferil þeirra yfir veturinn. Þegar lömb voru tekin undan ám 29. september, vógu æmar 66,5 kg til jafnaðar, sem er l,7 kg meiri þungi en haustið 1995. Meðalholda- stig þeirra var 3,30 stig (holdastiga- skali spannar tölugildi frá 0 lægst til 5 hæst), sem er 0,07 stigum lægra en eftir Stefán Sch. Thorsteinsson, Sigvalda Jónsson og Inga Garðar Sigurðsson Rannsóknastofnun iandbúnaðarins haustið áður. Eins og undanfarin haust var ám á annan vetur, sem gengu með lambi, beitt á há, en eldri ær hafðar í úthaga þar til þeim var smalað til vigtunar 15. október. Eftir þann tíma og til 9. nóvember, er allar ær búsins vom hýstar, var þeim beitt á mikið sprottna og næringar- snauða há, sem nóg var til af. Ánum var nú ekki hyglað úti með töðugjöf, er líða tók á haustið, eins og siður hefur verið undanfarin haust, og kom það greinilega niður á haust- bötun þeirra, þar sem þynging og holdaaukning var nú umtalsvert minni en á umliðnum haustum. Góð haustbötum síðarihluta októbermán- aðar og í nóvermber hefur sýnt sig og sannað að hafa gríðarleg áhrif á frjósemi ánna, enda varð frjósemin vorið 1997 töluvert minni en undan- gengin vor enda þótt æmar hafi ver- ið teknar um tveim vikum fyrr á hús og þyngst meira yfir fengitímannn en oftast áður eða 2,4 kg til jafnaðar. Frá fengitímalokum til marsvigt- unar þyngdust ærnar um 7,3 kg og bættu við hold sín 0,17 stigum, og frá marsvigtun til mánaðamóta apríl-maí þyngdust þær um 4,7 kg, en lögðu hins vegar af sem svarar 0,09 stigum, sem er ámóta aflegging á útmánuðum og undanfarna vetur. Þessi aflegging síðustu 8-6 vikurnar fyrir burðinn sýnir, að þrátt fyrir ágæta fóðmn er fóðurþörfinni til Tafla 1. Þungi og þyngdarbreytingar ánna, kg Þungi, kg.Þyngdarbreytingar. kg Ær á Tala 25/9 15/10 27/11 9/1 17/2 25/3 29/4 25/9- 15/10-27/11 15/10 27/11 9/1 9/1- 17/2 17/2- 25/3 25/3- 29/4 25/9- 29/4 10. vetur 1 79,0 77,0 73,0 70,0 74,0 87,0 85,0 -2,0 -4,0 -3,0 4,0 13,0 -2,0 6,0 8. vetur 5 67,0 70,4 71,4 70,6 73,6 77,8 82,6 3,4 1,0 -0,8 3,0 4,2 4,8 15,6 7. vetur 17 70,5 70,7 72,4 74,8 79,1 82,5 87,8 0,2 1,7 2,4 4,3 3,4 5,3 17,3 6. vetur 38 70,4 69,5 72,6 76,7 80,3 83,1 86,8 -0,9 3,1 4,1 3,6 2,8 3,7 16,4 5. vetur 84 70,5 70,9 72,7 76,5 80,4 83,2 87,5 0,4 1,8 3,8 3,9 2,8 4,3 17,0 4. vetur 85 68,6 68,8 71,1 74,5 78,1 80,4 85,3 0,2 2,3 3,4 3,6 2,3 4,9 16,7 3. vetur 121 64,8 65,3 67,1 69,8 73,4 75,6 80,3 0,5 1,8 2,7 3,6 2,2 4,7 15,5 2. vetur 131 61,0 65,9 65,9 65,3 68,9 72,0 76,2 4,9 0,0 -0,6 3,6 3,1 4,2 15,2 Meðaltal 453 66,5 67,8 69,3 71,7 75,4 78,0 82,7 2,3 1,5 2,4 3,7 3,6 4,7 16,2 Freyr 1 1/98 - 13

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.