Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1998, Blaðsíða 37

Freyr - 01.09.1998, Blaðsíða 37
Leiðréttingar Flekka Dísu 95-094 Á myndinni sjáum við Flekku Dísu 95-094 í Skuggahlíð í Norðfirði. Vorið 1997 átti hún tvœvetlan þessi fjögur lömb og gekk með þau öll um sumarið. Lömbin voru öll sett á um haustið og voru hrútarnir 47 og 42 kg áfœti en gimbrarnar 43 og 32 kg. Samtals er því lífþungi lambanna 164 kg. Haustið 1996, gemlingsárið, skilaði hún affjalli tveim lömbum sem var slátrað og lögðu sig samtals með rúm- um 40 kg afkjöti. Þetta munu fágœtar afurðir. Faðir Flekku er Gráni 93-084frá Húsavík í Kirkjubólshreppi og frá honum mun Flekka hafa erft Þokugenið sem hún sjáanlega býryfir, en móðir henna Golta 90-019 varfrá Freysnesi í Örœfum. Árni rangfeðraður Skuggahlíð en ekki Skorrastaður Á bls. 42 í 2. tölublaði Freys, sérriti um sauðfjárrækt, var hópurinn á myndinni hér til hliðar sagður vera [ frá Skorrastað í Norðfirði. Það er ekki rétt því ærin og afkvæmi henn- ar eru frá Skuggahlíð í sömu sveit. Blaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum um leið og við birtum aftur mynd og textann leiðréttan. Þúsund lömb hurfu úr töflu í töflu um yfirlit fjárræktarfélaganna fyrir haustið 1996 í sauðfjárræktar- blaði Freys, 2. tbl. 1998 á síðu 12, hefur slæðst inn ákaflega meinleg villa. Það er í hlutföllum í gæða- flokkun lamba í Sf. Laxárdalshrepps sem er nr. 19 í töflu. Hinar réttu tölur eru 88% í I. flokk, 10% í II. flokk og 2% í III. flokk. Minnt skal á að í þessum hlutfallstölum telur DIB með II. flokki og DIC með III. flokki. Beðist er velvirðingar á þessari leiðinlegu og óafsakanlegu villu. Um leið er samt forvitnilegt að geta þess hvemig þessi villa kom til. Hugbúnaður við úrvinnslu á skýrsl- um fjárræktar er nokkuð kominn til ára sinna og er frá þeim tíma þegar allar tölur vom skilgreindar greini- lega með mögulegum hæstu gildum. Þar var m.a. gert ráð fyrir að fjöldi lamba á einu búi hjá fullorðnu ánum sem væm í sama gæðaflokki mundi aldrei fara yfir þúsund. Það sem þama gerðist var að í fyrsta sinn fór slíkur fjöldi lamba á einu búi yfir þúsundið og þá töpuðust þúsund lömb í útreikningi á þessum þætti. í grein um hrútasýningar haustið 1997 í 2. tbl. Freys hefur slæðst inn villa. I 1. dálki á bls. 28 er Ámi á Krossi á Barðaströnd sagður Sigur- jónsson, en hann er Sigurvinsson. Fjárræktarbúid á Hesti Framhald afbls. 18 júlí og frá 1. júlí til 25. september á þeim lömbum, sem haustslátrað var, en eins og áður segir var 33 geml- ingslömbum slátrað í sumarslátrun, ásamt þunga á fæti og fallþungi, flokkað eftir því hvemig lömbin gengu undir. Sex gemlingslömb vora vanin undir ær og era þau ekki tekin með í töflunni. Meðalvöxtur allra gemlings- lamba til 1. júlí nam 257 g/dag, sem er 13 g minni dagvöxtur en sl. sumar. Meðalvaxtarhraði frá fæðingu til 1. júlí þeirra 29 lamba, sem fargað var í haustslátrun nam 262 g á dag og síðsumarsvöxtur þeirra, 225 g á dag. Meðalþungi þeirra á fæti reyndist 36,8 kg og meðalfallið 15,0 kg. Vanhöld Af 461 á tvævetur og eldri, sem sett- ar vora á haustið 1996, fórast 22 eða 4,8% og af 115 ásetningsgimbrum fórast 4 eða 3,5%. Alls fórast því 26 ær og gemlingar eða 4,5%. Helstu or- sakir vanhalda vora, eftir bestu vitn- eskju: Fórast í skurðum 5,6 á vantaði á heimtur, óviss orsök 5, afvelta vora 3, 1 fórst af slysföram, 1 fannst dauð á fjalli, 2 úr júgurbólgu, 2 úr Hvann- eyrarveiki og 1 úr tannígerð. Alls misfórust 82 lömb á búinu eða 8,9% sem er 1,0 %-stigi minni vanhöld en á sl. ári. Ritað í apríl 1998. Freyr 1 1/98 - 37

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.