Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2000, Blaðsíða 2

Freyr - 01.04.2000, Blaðsíða 2
Handbók bænda 2000 Afmælisútgáfa Ut er komin Handbók bænda fyrir árið 2000 sem er 50. árgangur ritsins. í tilefni af afmælinu var leitað víða fanga um efni með það að markmiði að birta sem heildstæðast leiðbeiningaefni fyrir íslenskan landbúnað. Má þar nefna efni um fóðrun allra helstu tegunda búfjár hér á landi sem og efni um kynbætur þeirra. ítarlegt efni er um beit nautgripa og smit- sjúkdóma í sauðfé og fjölbreytt efni um jarðrækt, garðrækt, bútækni, hagfræði, auk ýmislegs annars efnis. Handbók bænda er 488 bls. að stærð og kostar kr. 2.600, en kr. 2. 755 með sendingar- kostnaði. Verð til áskrifenda er kr. 2.600 með sendingarkostnaði. Bókin fæst hjá Bændasamtökum íslands, sími 563 0300, bréfsími 562 3058, netfang sth@bondi.is I I ■—■—■■II—— Samningar á vegum WTO halda áfram í mars 2001 Landbúnaðarnefnd Alþjóða viðskiptastofnunarinnar, WTO, kom saman í Genf í mars sl. Nefndin náði þar sam- komulagi um framhald viðræðna innan stofnunarinnar um viðskipti með búvörur. Ákveðið var að halda fjóra undirbúningsfundi fyrir næstu samningalotu, í júní, september, nóvember og í janúar, þar sem tekist verður á um hin eiginlegu átakamál þeirrar lotu. Aðilar komu sér hins vegar ekki saman um hvenær ljúka á þessari lotu. Tíminn fram til mars á næsta ári verður notaður vel. Reynsla frá síðustu samningalotu WTO verð- ur tekin saman og einkum kannað hvaða afleiðingar síðasti samn- ingur hefur haft fyrir þróunar- löndin. Öllum þátttökulöndum gefst kostur á að leggja fram skoðanir sínar og tillögur um sérhvern samningaþátt, svo sem innflutn- ingstakmarkanir, stuðning við eigin landbúnað og stuðning við útflutning búvara. Tillögur á að leggja fram fyrir lok þessa árs. Þó er ekki reiknað með að Bandaríkin leggi fram tillögur sínar fyrr en að afloknum kom- andi forsetakosningum í nóvem- ber nk. Búist er við því að Bandaríkin, ásamt löndum í CAIRNS-hópnum (lönd sem stunda mikinn útflutn- ing á búvörum), krefjist miklu frjálsari viðskipta með búvörur en nú tíðkast. ESB, Japan og Noreg- ur munu á hinn bóginn leggja áherslu á fjölþætt hlutverk land- búnaðarins, þ.e. jákvæðan þátt landbúnaðar í því að varðveita byggð í strjálbýli og í umhverfis- vemd. (Bondebladet nr. 13/2000). 2 - FREYR 3/2000

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.