Freyr - 01.04.2000, Blaðsíða 15
mjólk með 3,62% fitu, eða 364 kg
af mjólkurfitu, og 2,91% prótein
mælist í mjólk hjá henni sem gefur
293 kg af mjólkurpróteini. Þessi
kýr ber í ársbyrjun og er í jöfnum
og miklum afurðum mestallt árið.
Lukkuleg er undan Þistli 84013 en
móðir hennar, Þorra 24, er vel
þekkt af listum um afurðahæstu kýr
landsins frá fyrri árum.
Þær kýr sem næstar koma, metið
á grunni mjólkurmagns, eru Nína
149 í Leirulækjarseli í Borgar-
byggð með 9.983 kg mjólkur, en
þessi kýr var, eins og margir les-
endur muna, afurðahæsta kýr land-
ins árið 1998. Þessi afreksgripur er
dóttir Andvara 87014 en fékk að
öðru leyti ítarlega kynningu í hlið-
stæðri grein á síðasta ári sem vísast
til. Þá kemur Þökk 130 á Dýra-
stöðum í Norðurárdal sem mjólkaði
9.914 kg. Þökk er dóttir Þistils
84013 en móðir hennar var Pía 79,
landsþekkt afrekskýr á sinni tíð og
móðir Stúfs 90035. Fast á hæla
henni fylgir síðan Ljómalind 58 í
Akbraut í Holtum. Hún mjólkar
9.909 kg á árinu 1999. Þessi kýr er
löngu landsþekktur kynbótagripur
en undan henni eru þrjú naut í notk-
un á Nautastöðinni eða á Uppeldis-
stöðinni. Ljómalind er dóttir Suðra
84023 en móðir hennar, Gullbrá 40,
var einnig mikil afrekskýr á sinni
tíð. Það sem hér er rakið sýnir að
trauðla verður sagt að þessar topp-
kýr landsins árið 1999 séu neinir
tilviljunargripir að uppruna.
Þegar kúnum er raðað á grunni
framleidds magns af mjólkurpró-
teini þá kemur fram nokkuð önnur
röð. Ljómalind 58 í Akbraut skipar
þar efsta sætið með mjög hátt hlut-
fall efna í mjólk og 373 kg, þá kem-
ur Orka 248 í Skipholti III í Hruna-
mannahreppi með 345 kg en þessi
kýr skipaði einnig þetta sæti á síð-
asta ári enda gefur hún mjög pró-
teinauðuga mjólk eins og hún á ætt-
ir til, síðan kemur Nína 149 í Leiru-
lækjarseli með 344 kg, þá Grána 55
í Akbraut með 332 kg og þá
Rauðka 106 í Jörfa í Kolbeinsstaða-
hreppi með 331 kg.
Tafla 1. Naut sem eiga flestar dætur meðal afurða- hæstu kúnna
Nafn Númer Yfir 5000 kg mjólk Yfir200kg mjólkurfita Yfir 200 kg mjólkurprótein
Tangi 80037 22 22 12
Hólmur 81018 111 138 40
Kópur 82001 29 28 7
Jóki 83008 53 54 16
Rauður 82025 58 68 12
Bjartur 83024 33 36 16
Hrókur 83033 44 44 9
Sopi 84004 44 38 11
Þistill 84013 100 96 45
Suðri 84023 96 87 37
Belgur 84036 51 53 18
Skíði 85002 29 24 6
Prestur 85019 77 74 18
Austri 85037 75 78 34
Prammi 85034 21 22 7
1 Listi 86002 74 68 28
Dammur 86009 24 27 5
Þráður 86013 167 174 62
Bassi 86021 156 187 70
Þegjandi 86031 104 98 24
Daði 87003 117 145 37
Flekkur 87013 83 99 23
Andvari 87014 231 230 74
Öm 87023 78 110 20
Svelgur 88001 70 92 16
Óli 83002 58 64 16
Tónn 88006 24 30 2
Holti 88017 67 76 12
Sporður 88022 24 15 5
Hvanni 89022 21 20 10
Almar 90019 22 25 8
Hafur 90026 23 22 12
Búði 91014 21 29 6
Raftur 91015 26 23 5
Gyrðir 91016 24 22 9
Otur 91027 27 25 6
Þokki 92001 21 25 6
Galmar 92005 23 21 6
Hvellur 92006 28 28 9
Sæþór 92009 21 18 6
Myrkvi 92011 20 20 8
Frekur 92017 24 21 4
Geisli 92018 21 28 5
Beri 92021 31 26 8
Tjakkur 92022 28 27 4
Skuggi 92025 23 25 6
Smellur 92028 22 25
Þegar magn mjólkurfitu er grunn- braut með 431 kg, þá Aska 152 á
ur röðunar verður röðin þessi: Efst Kirkjulæk II í Fljótshlíð með 421
er þar einnig Ljómalind 58 í Ak- kg, síðan þær stöllur Húfa 23 og
FREYR 3/2000 - 15