Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.2000, Blaðsíða 7

Freyr - 01.04.2000, Blaðsíða 7
Niðurstöður úr skýrslum nautgriparæktar- félaganna árið 1999 Hér verður fjallað um nokkr- ar helstu niðurstöður úr skýrsluhaldi nautgnparækt- arfélaganna árið 1999. Gefið er yf- irlit um helstu niðurstöðutölur, fjallað um þær og breytingar frá fyrra ári skoðaðar. Framkvæmd skýrsluhaldsins tók engum meginbreytingum á árinu 1999 en breytingar í umhverfi mjólkurframleiðslunnar voru ef til vill harðari og meiri en oft hefur verið. Þróun undangenginna ára til fækkunar mjólkurframleiðenda og þá um leið stækkunar þeirra ein- inga, sem eftir standa í framleiðsl- unni, var líklega hraðari en nokkru sinni áður. Þá höfðu rýmri loforð afurðastöðva en undangengin ár um greiðslur mjólkur umfram fram- leiðslurétt einstakra framleiðenda vafalítið umtalsverð áhrif á þróun í framleiðslunni. í töflu 1 er að fmna helstu fjölda og meðaltalstölur skýrsluhaldsins ár- ið 1999 fyrir landið í heild, en einnig brotið niður eftir héruðum á hlið- stæðan hátt og áður hefur verið gert. Bú, sem skiluðu skýrslum á árinu, voru 853 (876), en í þessari grein eru svigatölur ætíð sambærilegar tölur ársins 1998 til sam- anburðar. Búunum hefur því fækkað um 23, eða 2,6%. Ekki er um að ræða að bú séu að hætta skýrsluhaldi, þar eftir Jón Viðar Jónmundsson, Bænda- samtökum íslands eru fleiri sem bætast við en leggja niður skýrsluhald, eins og greini- lega kemur fram hér á eftir í um- fjöllun um hlutfallslega þátttöku í skýrsluhaldi. Þessi breyting endur- speglar því hina hröðu fækkun búa í mjólkurframleiðslunni. Fjöldi kúa, sem kom á skýrslur á árinu, er 29.592 (29.463) en af þeim voru 15.245 (15.766) kýr sem voru á skýrslu frá fyrsta til síðasta dags ársins og eru þær kýr nefndar heilsárskýr í þessum texta. Reikn- aðar árskýr reyndust vera 21,382,5 (21.930,6). Samanburður við sviga- tölumar sýnir að kýr samtals eru nú fleiri og þá um leið fleiri en nokkm sinni hefur áður verið frá upphafi í skýrslum nautgriparæktarfélag- anna. Arskúnum fækkar hins vegar örlítið, sem segir þá um leið að hreyfanleiki gripa í stofninum eykst enn og er orðinn ótrúlega mikill. Þáttur sem þar kemur til, sem hefur meiri áhrif en áður, er að nokkuð var um að mjög stór kúabú væru að hætta í framleiðslu á árinu. Almenn þátttaka mjólkurfram- leiðenda í skýrsluhaldi nautgripa- ræktarinnar er af fleiri ástæðum mikilvæg og líklega einn allra besti mælikvarði á faglegan styrk grein- arinnar. Mjólkurframleiðsla í dag verður ekki stunduð nema með Tafla 1. Helstu yfirlitstölur úr skýrsluhaldi 1999 Búnaðarsamband/ Nautgripasamband Bú alls Kýr alls Árskýr Meðal- bústærð, árskýr Afurðir árskúa Nyt kg Kjarnfóður Kjalamesþings 6 231 173,5 28,9 3693 495 Borgarfjarðar 79 2626 1868,5 23,7 4395 603 Snæfellinga 33 1002 734,2 22,2 4741 684 Dalasýslu 20 583 419,7 21,0 4241 727 Vestfjarða 37 901 682,4 18,4 4427 663 Strandamanna 1 29 22,6 22,6 4406 646 V-Húnavatnssýslu 22 626 444,5 20,2 4663 784 A-Húnavatnssýslu 44 1304 977,3 22,2 4249 812 Skagfirðinga 69 2458 1869,2 27,1 4781 869 Eyjafjarðar 139 6005 4431,3 31,9 4605 765 S-Þingeyinga 81 2120 1609,2 19,9 4706 769 Austurlands 28 790 581,0 20,8 4305 619 A-Skaftafellss. 14 403 284,0 20,3 4819 931 V-Skaft, Rang. 134 4596 3243,0 24,2 4612 731 Ámessýslu 146 5918 4042,1 27,7 4626 756 Landið allt 853 29592 21382,5 25,1 4579 748 FrEYR 3/2000 - 7

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.